Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar 12. apríl 2026 18:02 Að keyra um Dalabyggð á fyrstu dögum vormánaða er oft töfrum líkast. Litirnir sem koma undan snjónum skreyta fjallstoppana, fuglalífið vaknar og náttúran tekur andköf eftir frost vetrarins. Svona ætti upplifun allra að vera á fallegum degi í Dalabyggð — en því miður er það ekki raunin. Þegar beygt er inn á þjóðveg 60 við Bröttubrekku blasir við vegakerfi sem mætti fremur telja til annars eða jafnvel þriðja flokks. Vegirnir í Dalabyggð eru í svo slæmu ástandi að þeir standast hvorki kröfur dagsins í dag né þá framtíðarsýn sem stjórnvöld og sveitarfélög boða. Þetta eru hvorki afskekktir sveitavegir né einhverjir útúrdúrar um fámenna sýslu. Þessir vegir eru lífæð bæði íbúa, atvinnulífs og alls samfélags á Vestfjörðum. Um þá fer gríðarleg umferð stórra ökutækja með verðmæti og aðföng sem skapa ríki og sveitarfélögum tekjur — er það virkilega annars eða þriðja flokks? Samkvæmt drögum að samgönguáætlun 2024–2028 er aðeins gert ráð fyrir um 700 milljónum króna í stofnvegaframkvæmdir á öllu Vesturlandi á næstu árum. Það er einungis 1,6% af heildarfjármagni slíkra framkvæmda á landsbyggðinni — og af þeirri upphæð má gera ráð fyrir að Dalabyggð fái aðeins lítið brot. Þetta er ekki bara ófullnægjandi heldur beinlínis vanræksla gagnvart íbúum og öllum þeim sem um vegina fara. Um árabil hefur verið talað um að efla landsbyggðir, styrkja atvinnulíf og fjölga tækifærum utan höfuðborgarsvæðisins. En þó svo þessi markmið hljómi vel í ræðum þá eru grunninnviðum eins og vegum einfaldlega ekki sinnt. Á sama tíma hefur Dalabyggð notið mikils uppgangs. Einstaklingar og fyrirtæki sjá tækifæri í vaxandi ferðaþjónustu og í landfræðilegum kostum sem ýtt hafa undir fjölbreyttar framkvæmdir og fjárfestingar. Sveitarfélagið hefur einnig lagt sitt af mörkum. Þar má nefna margvíslega afslætti fyrir húsbyggjendur sem hafa hvatt til uppbyggingar leiguíbúða — enda er skortur á húsnæði. Þá réðist sveitarfélagið í mikla uppbyggingu innviða sem skilaði sér í glæsilegu íþróttamannvirki, sundlaug og fjölbreyttum pottum. Þetta er mikilvæg og verðmæt uppbygging. En hver er ávinningurinn þegar vegirnir sem tengja okkur við umheiminn eru orðnir hættulegir? Þegar ferðamönnum er beinlínis ráðlagt að forðast svæðið vegna skemmdahættu á bílaleigubílum? Þegar mögulegir nýir íbúar láta sig hverfa eða leita annað vegna óöryggis í samgöngum? Metnaðarfullar áætlanir duga skammt ef fólk kemst ekki örugglega á milli staða. Það er gagnslaust að kalla eftir atvinnuuppbyggingu ef grunninnviðirnir stöðva hana strax í upphafi. Það er þó mikilvægt að minna á að Dalirnir hafa upp á margt að bjóða — jafnvel þótt samgöngur standi höllum fæti. Þess vegna vil ég hvetja alla til að leggja land undir fót, koma í Dalabyggð og bera ástandið sjálf augum. Sjáið ekki aðeins vegina sem þarf að laga, heldur líka fólkið, náttúruna og kraftinn sem svæðið býr yfir. Og ef ferðin reynist lengri eða holóttari en skyldi? Þá er fullkomið að enda daginn í nýju sundlauginni í Búðardal. Þar er hægt að slaka á, njóta, hlaða batteríin — og velta fyrir sér hversu mikilvægt það er að tryggja Dalabyggð þau samgöngumannvirki sem hún á skilið. Höfundur er Dalamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dalabyggð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar