„Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar 13. apríl 2026 11:17 Flestir sem sækja landið heim og jafnvel sumir sem aldrei hingað koma hafa heyrt um frasann ,,þetta reddast!” sem á að lýsa þjóðarsálinni hvað best. Það er vissulega eitthvað til í því að þetta sé þjóðareinkenni. Íslendingar eru úrræðagóðir á ögurstund og við höfum sýnt í gegnum tíðina að við getum tekið höndum saman og leyst stór og erfið verkefni með litlum undirbúningi, s.s. að bregðast við meiri háttar nátturuhamförum af aðdáunarverðri fagmennsku, ef ekki sérstaklega mikilli forsjárhyggju. Hin hliðin á þessum peningi er að við sem eigum gott með að bregðast hratt við, eigum erfiðara með að gera góðar langtímaáætlanir. Það hef ég a.m.k. upplifað á eigin skinni hafandi starfað á Íslandi, sem og í Bandaríkjunum og Bretlandi og í fjölþjóðlegu samstarfi erlendis. Til þess að sletta örlítið, af því að íslenskan er eðli málsins dálítið fátæk af her-tengdum hugtökum, þá eigum við auðvelt með að vera ,,taktísk” en erfitt með að vera ,,strategísk.” Að sumu leyti er þessi skortur á strategískri sýn hluti af sameiginlegum vanda lýðræðisríkja víða um heim. Þar sem leiðtogar eru kjörnir til fjögurra ára í senn er erfitt að horfa og gera áætlanir áratugi fram í tímann. Skortur á langtíma strategíu er meiri eftir því sem meiri ágreiningur er um lykilmál innan þjóðfélaga. Til dæmis má segja að Ísland hafi í stórum dráttum haft eina strategíska sýn allt Kalda stríðið og í raun allt til samtímans - sem er að okkur sé best borgið í nánu öryggissamstarfi við líkt þenkjandi ríki og að öryggi okkar sé best tryggt með aðild að Atlantshafsbandalaginu. Í fræðunum er talað um ,,strategíska menningu” (e. strategic culture) sem er sýn ríkja á öryggismál út frá sameiginlegum grundvelli gilda, sögu og hefða. Oft er ekki fyrir hendi einsleit strategísk menning í hverju ríki, en þó oft í þeim mæli að segja megi að þjóð hafi ákveðna sýn á öryggisáskoranir og leiðir til þess að mæta þeim, eins og með aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu að ofan. Slík ,,menning” breytist og þróast samhliða því að áskoranir og ógnir þróast og nú lifum við tíma grundvallarbreytinga í alþjóðamálum þar sem einpóla heimur sem við höfum búið við frá lokum Kalda stríðsins er að líða undir lok. Þetta þýðir að við lifum á tímum vaxandi stórveldasamkeppni og jafnvel átaka, auk þess sem virðing fyrir alþjóðalögum og mannréttindum er á miklu undanhaldi, jafnvel hjá okkar helsta bandamanni vestanhafs. Til þess að strategísk menning fái þróast og hægt sé að takast á við slíkar kringumstæður er upplýst umræða innan samfélaga mikilvæg og Ísland býr við nokkra veikleika hvað það varðar. Í grunninn má segja að lykilþættir slíkrar umræðu samanstandi af nokkrum meginþáttum; samtal við stjórnvöld og upplýsingagjöf stjórnvalda; upplýsingaskylda fjölmiðla og rými til dýpri umfjallana; umræða innan háskólasamfélagsins sem nær til þjóðfélagsins í heild, m.a. með starfsemi hugveita. Öll þessi svið eru tiltölulega veik á Íslandi og mikilvægt er að stjórnvöld, akademían og jafnvel einkageirinn hlúi að og efli þessa umræðu enda varðar það grundvallarhagsmuni okkar sem fullvalda ríkis að hafa þroskaða sín á eigin öryggismál og leiðir til þess að tryggja fullveldi Íslands og öryggi. Þetta er ekki síst áríðandi nú þegar umrædd vatnaskil eru að verða í alþjóðamálum, en einnig þegar þjóðin veltir fyrir sér kostum og göllum aðildar að Evrópusambandinu. Þar væri mikill ókostur ef illa upplýst umræða og upplýsingaóreiða næði að vera í forgrunni, svo ekki sé minnst á miklar líkur á að erlend ríki hafi bæði vilja og getu til þess að hafa áhrif á umræðu og skoðanamyndun hérlendis í tengslum við kosningar. Sú ógn er vel kortlögð af flestum grannríkjum okkar, sem og NATO og ESB, en vinna hérlendis við að greina og bregðast við slíkri ógn er skammt á veg komin. Á Norðurlöndunum eru hugveitur styrktar af stjórnvöldum til þess að sinna sínum hluta af þessu grundvallarhlutverki, þ.e.a.s. að rannsaka og styðja umræðu um utanríkis- öryggis- og varnarmál og efla þannig samtal allra aðila í þjóðfélaginu um stefnmótun og forgangsröðun. Þannig eru sænska friðarrannsóknarstofnunin SIPRI, utanríkistofnun Svíþjóðar UI, norska utanríkispólitíska stofnunin NUPI, og friðarrannsóknarstofnunin PRIO, danska alþjóðamálarannsóknarstofnunin DIIS, og finnska alþjóðamálastofnunin FIIA allar ríkisstyrktar að verulegu leyti. Hér á Íslandi er því ekki að heilsa og stendur það upplýstri umræðu um alþjóða- og öryggismál fyrir þrifum. Þegar við hugum að því hvernig efla megi innlendan viðnámsþrótt með yfirlýstri fjárfestingu í öryggis- og varnarmálum, sem NATO ríki samþykktu á leiðtogafundinum í Haag í fyrrasumar, er áríðandi að sú fjárfesting feli í sér fjárveitingar sem efla umræðu um þessi mál hérlendis og efla strategíska menningu Íslands. Alþjóðamál og staða Íslands í alþjóðakerfinu verða rædd á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins - í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála - sem haldin verður í Norræna húsinu, þriðjudaginn 14. apríl. Skráning á ráðstefnuna fer fram á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar www.ams.hi.is Höfundur er hernaðarsagnfræðingur og gestafræðimaður við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erlingur Erlingsson Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar