Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar 15. apríl 2026 07:33 Ríkisstjórnin hefur lagt til að þjóðin greiði atkvæði í lok ágúst um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Slík ákvörðun snertir grundvallarhagsmuni þjóðarinnar og framtíðarsýn til lengri tíma. Það er því eðlilegt og mikilvægt að gerðar séu ríkar kröfur til slíkrar atkvæðagreiðslu. Staðreyndin er sú að lýðræði snýst ekki aðeins um réttinn til að kjósa. Það snýst líka um að tryggja að kosið sé við aðstæður þar sem umræðan er upplýst, gagnsæ og byggð á traustum forsendum. Nýjar ógnir steðja að lýðræðislegri umræðu Undanfarin ár hafa sýnt að forsendur lýðræðislegrar umræðu hafa breyst hratt. Samfélagsmiðlar og stafrænt umhverfi hafa gjörbreytt því hvernig upplýsingum er dreift, hvernig skoðanir mótast og hversu hratt rangfærslur geta náð fótfestu í almennri umræðu. Við höfum séð alþjóðleg dæmi um samhæfðar herferðir þar sem falsað efni og markviss dreifing rangra eða villandi skilaboða eru notuð til að hafa áhrif á niðurstöður kosninga. Þetta er því miður orðinn raunverulegur hluti af því umhverfi sem lýðræðisríki þurfa að bregðast við. Utanríkisráðherra staðfesti þetta í umræðum á Alþingi sl. mánudag. Þar lýsti hún upplýsingaóreiðu og árásum á miðlun upplýsinga sem einni stærstu ógn sem við stöndum frammi fyrir og jafnvel sem nýrri tegund innrásar í lýðræðissamfélög. Viðurkennd ógn Það vekur því athygli að þrátt fyrir þessi augljósu hættumerki eru svör ráðherra um undirbúning fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu fremur almenn, jafnvel óljós. Vissulega er mikilvægt að styrkja greiningargetu, efla netöryggi og auka alþjóðasamstarf. Slíkar aðgerðir eru nauðsynlegar til lengri tíma. En þegar ákveðið hefur verið að leggja fyrir þjóðina eitt stærsta stefnumótandi mál síðari tíma vaknar eftirfarandi spurning: Af hverju liggur ekki nú þegar fyrir fagleg greining á þeim áskorunum sem fylgja breyttu upplýsingaumhverfi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB? Regluverkið og nýr veruleiki Íslensk lög kveða vissulega á um ákveðið gagnsæi í upplýsingamiðlum s.s. varðandi starfsemi stjórnmálasamtaka en í þeim er m.a. mælt fyrir um takmarkanir stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda til að birta auglýsingar eða áróður. Lögin takmarka þannig að einhverju leyti getu erlendra aðila til að hafa óeðlileg áhrif á skoðanamyndun almennings. Núverandi lagaumgjörð var hins vegar mótuð við aðrar aðstæður en nú ríkja og nær ekki að fullu utan um þann veruleika sem við búum við í dag. Lykilatriðið er að í dag geta áhrif á umræðu orðið án hefðbundinna auglýsinga. Samhæfðar stafrænar herferðir, óbeint kostað efni, gerviaðgangar á samfélagsmiðlum og sjálfvirk dreifing skilaboða og geta haft veruleg áhrif á það sem almenningur sér og heyrir. Þess vegna erréttmætt að spyrja af hverju við höfum ekki lært af reynslu annarra þjóða. Getur verið að við höfum einfaldlega verið kærulaus? Ferlið og niðurstaðan Það er mikilvægt að undirstrika að þessi sjónarmið snúast ekki um hvaða niðurstaða eigi að koma út úr þjóðaratkvæðagreiðslu. Þau snúast um að tryggja að þjóðin fái raunverulegt tækifæri til að mynda sér skoðun á grundvelli staðreynda og málefnalegrar umræðu. Traust til niðurstöðu ræðst ekki aðeins af fjölda atkvæða, heldur einnig af því hvort almenningur telur að umræðan sem leiddi til hennar hafi verið sanngjörn. Ábyrgðin Utanríkisráðherra benti á sl. mánudag að upplýsingaóreiða sé viðvarandi áskorun sem muni fylgja okkur í framtíðinni. En næsta stóra áskorun íslensku þjóðarinnar er farsæl þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst um framtíðarhagsmuni þjóðarinnar. Sú atkvæðagreiðsla verður ekki farsæl nema undirbúningur hennar sé traustur. Það vekur því furðu að ekki hafi verið unnið markvisst að því að tryggja að miðlun upplýsinga taki mið af erlendum viðmiðum og reglum um áróður og óeðlileg áhrif á skoðanamyndun. Ef gagnsæi og trúverðugleiki þjóðaratkvæðagreiðslu er ekki til staðar, skapast hætta á að traustið sem lýðræðið byggir á veikist, ekki vegna niðurstöðunnar sjálfrar heldur vegna þess hvernig staðið var að undirbúningi hennar. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Ingibjörg Ólöf Isaksen Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar