Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar 15. apríl 2026 09:31 Á Íslandi búa tæplega 400.000 manns. Um helmingur þeirra er launafólk og rúmur helmingur þess launafólks er með háskólamenntun. Undanfarinn áratug hafa lægstu launakjörin leitt þróun í kjarasamningum. Ríki og sveitarfélög hafa gripið til aðgerða til að styðja gerð þessara samninga. Þá er ljóst hver það eru sem hafa greitt fyrst og fremst fyrir þessar aðgerðir. Það er fólk með millitekjur, í þriðju og upp í níundu launatíund. Af hverju er það? Það er vegna þess að fólk í fyrstu og annarri launatíund hafa ekki af neinu að taka og borga sem betur fer ekki háan skatt, og margt efnaðasta fólkið í efstu tekjutíund hefur sínar tekjur að miklu leyti af fjármagni. Þau borga ekki útsvar af þeim og ekki heldur tekjuskatt á sama hátt og venjulegt launafólk. Það þarf að gæta þess að fólk með millitekjur borgi ekki með þannig aðgerðum. Það gengur ekki að semja um krónutöluhækkun eða prósentuhækkun sem dregst aftur úr verðbólgu. Þar verður að taka tillit til byrði vegna námslána háskólafólks og ævitekja þeirra miðað við aðra hópa. Það er vegna þess að Ísland þarf að hafa fjölda háskólafólks til að sinna almannaþjónustu og sérfræðiþjónustu í nútíma samfélagi. Þar þarf líka fólk til nýsköpunar. Þar myndar háskólafólk hryggjarstykkið í rannsóknum, nýsköpun og markaðssetningu. Í nýsköpun er ekki nóg bara að veiða fisk, sinna ferðaþjónustu eða landbúnaði. Þar þarf að bjóða upp á vörur eða þjónustu sem fólk er tilbúið að greiða hærra gjald fyrir. Nýsköpun á bæði almennum og opinberum markaði er fyrst og fremst rekin með þverfaglegum hópum háskólamenntaðra. Í fjölda ára höfum við fengið að heyra að opinberir starfsmenn hafi leitt launaþróun. Það er ekki skrýtið, enda hefur verið kappkostað að bæta laun margra starfsmanna sem höfðu setið eftir með sáralág laun, sem engan veginn dugðu til framfærslu. Háskólamenntaða sérfræðingar, sem í flestum tilfellum hafa einfaldlega fengið taxtahækkanir samkvæmt samningum og ekkert umfram það, hafa ekki leitt launaþróun. Þegar borin voru saman laun sambærilegra sérfræðinga á almennum markaði og opinberum markaði í fyrsta skipti á kerfisbundinn hátt, kom í ljós 1,5% meiri launahækkun á almenna markaðnum. Nú er unnið að sátt til að samningum verði ekki rift í september á þessu ári. Hún verður að endurspegla raunverulegan ábata fyrir millitekjufólk sem fær ekki aðrar hækkanir en taxta kjarasamninga. Hún má ekki bara innihalda aðgerðir sem millitekjufólk fær að borga fyrir aðra. Vanda lágtekjufólksins verður að leysa á annan hátt og aðgerðir sem gagnast hátekjufólki verður að fella brott. Það tvennt gæti hæglega fallið vel saman. Höfundur er upplýsingafræðingur og stjórnsýslufræðingur, og er í framboði til stjórnar Visku. Félagsmenn geta kosið rafrænt til kl. 12 á fimmtudag 16. apríl. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar