ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir skrifar 16. apríl 2026 07:15 ADHD og hvatvísi ADHD og hvatvísi Hvað er það? Hvernig virkar það? Leyfið mér að útskýra. Ég er 32 ára gömul kona sem á mann og börn. Ég er með ógreint ADHD en er núna á biðlista til að komast í greiningu. Hér áður fyrr var ég ekkert að pæla í þessu, en svo varð hvatvísin áberandi hjá mér, ég er búin að hætta og byrja í skóla í mörg ár, svo kom þessi dópamín þörf fram vegna þunglyndis sem hélst í hendur við hvatvísi, ég hætti að pæla í að spara peninga og fór á eyðslu flipp, og þá hófst herferðin mín í að taka endalaus skammtímalán og svo einn daginn hætti ég að getað borgað lánin niður og þá tók við að finna út hvernig ætti ég að borga allt saman. Ég er stórskuldug kona, ég er korter í gjaldþrot, ég er atvinnulaus því jú, ég lét hvatvísina stjórna mér, og Vinnumálastofnun er núna að beita refsiaðgerðum sem ég er skil svona nokkurn veginn, ég er launalaus í þrjá mánuði ofan á þessa tvo sem ég var að klára í apríl. Fimm mánuðir án launa takk fyrir pent, jú kannski á ég þetta skilið en eigum við þetta virkilega skilið eða er þetta rugl, jú margir munu vera sammála Vinnumálastofnun en aðrir munu mótmæla þessu, já ég gerði mistök en mér finnst þetta heldur ströng refsing frá þeim, fimm mánuðir án launa og við fáum ekkert um það ráðið, við getum ekki breytt lögum og reglum í landinu, ekki gera eins og ég, hættið að kvarta yfir vinnunni ykkar, þið sem eruð að díla við mikla hvatvísi, ekki láta undan, þið eruð að fara missa allt, jú maðurinn minn er að fá einhver skítalaun en það dugar skammt. Við fáum ekki hjálp frá sveitarfélaginu okkar því ótrúlegt en satt þá erum við of tekjuhá samkvæmt Excel skjalinu þeirra og lögum í landinu. Ég vara ykkur enn og aftur við ALLS EKKI hætta í vinnunni ykkar nema vera búin að fá aðra vinnu. Ég er búin að sækja um ótal störf og ferilskráin mín er mjög góð en ég fæ samt enga vinnu og sérstaklega þar sem ég bý á Akranesi, því þó að ferilskráin sé góð þá er það ekki nóg. Ég elska fjölbreytileika í starfi og er því búin að prófa margt, jú ADHD hefur eitthvað við þetta að gera en þegar ég er komin í þessa meðferð þá mun allt hægjast á í sambandi við höfuðið og kannski mun ég verða smá normal kannski ekki 100 % normal heldur svona 70 % jafnvel minna. En biðlistinn er langur og ég verð bara að vona það besta á meðan, jú ég er í fullt af námskeiðum sem tengist hvernig á að vinna með ADHD og hef lært margt. En geðheilbrigðiskerfið er sprungið og við getum lítið gert í því. Að vera með alvarlegt ADHD er dýrkeypt en þú getur farið á allskonar námskeið og þið getið farið á biðlista eftir meðferð en vinnan er 120 % ykkar. Ég mæli með að allir sem eru í greiningarferli við ADHD eða greind með ADHD ættu að fara í námskeiðin, ADHD kaos og ADHD og fjármál, þessi námskeið eru að hjálpa mér mjög mikið. Já enn og aftur ekki láta hvatvísina vinna. Höfundur er heimavinnandiógreindur ADHD listamaður og kvikmyndagerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði ADHD Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar