Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Stefán Árni Pálsson skrifar 17. apríl 2026 12:31 Eik er engum lík. Flugfreyjan Eik Gísladóttir hitti Völu Matt í Íslandi í dag en þessi fjölhæfa kona hefur innréttað fallega íbúð inni í bílskúrnum sínum og færði eldhúsið inn í stofu til að fá aukaherbergi inni í íbúðina. Svo er hún með heilsurækt inni í stofu. „
Ég bara breytti skipulaginu. Af því ég vildi vera með eldhúsið hérna sem birtan er og útsýnið. Ég hef gert upp mörg hús og íbúðir. Ég hef alltaf sett bara allt dótið mitt í geymslu, ríf allt út og er með eina dýnu og svo bara kaupi ég golfefni og held áfram,“ segir Eik en nýjasta framkvæmdin á hennar heimili var að breyta bílskúrnum í stúdíóíbúð þar sem yngsti sonur hennar býr. Með þetta í blóðinu „Ég labbaði inn í bílskúrinn og ég vissi bara nákvæmlega hvernig ég ætlaði að hafa þetta. Ég bara sé það strax. Þannig að þetta er bara í blóðinu. Þetta er bara áhugamál og ég sé allt einhvern veginn í þrívídd og ímynda mér hlutina alla fyrir mér og ég get lokað augunum og séð hluti fyrir mér.“ Eik passar sig á því að hreyfa sig alltaf reglulega og þegar hún til dæmis fer í flug sem flugfreyja, þá fer hún alltaf í líkamsræktina á hótelunum. En í íbúðinni hennar hefur hún útbúið heimaæfingastöð sem hún notar mjög mikið, minnst fjórum sinnum í viku. Þar til að mynda notar hún fimleikahringi til að æfa. Hangi hér á morgnana „Ég er búin að vera að spá svo mikið í þessu og ég hef náttúrulega unnið við líkamsrækt í mörg ár og verið í alls konar íþróttum. Það sem ég geri á morgnana er að ég kem og ég hangi hérna í hringjunum og teygi á þessu öllu saman. Þetta hjálpar manni bara að koma sér í gang á morgnana. Og svo þegar mér dettur í hug að þá tek ég aðeins í lóðin og svoleiðis. Auðvitað fer maður út að hjóla og gerir ýmislegt en mér finnst svo gott að hafa þetta við hendina. Það teygir á öllum líkamanum að hanga þarna,“ segir Eik og bætir við að stundum sé hún nokkuð stíf á morgnana. Hún er einnig með rimla á veggnum sem hún notar mikið. „Eins og með þetta TRX. Það eru mjög margar góðar æfingar sem ég hef notað í mörg ár. Ég hef notað þetta mikið og þetta er í öllum heilsuræktum, bæði erlendis og hérna heima. Og allar alhliða æfingar er hægt að gera með þessu eina bandi hérna og það gætu allir fengið sér svona heim og notað þetta. Það er hægt að gera ákveðnar upphífingar þar sem þú liggur og togar þig upp og alls kyns. Þú getur tekið hnébeygjur og annað með öðrum fætinum og þá ertu með þennan balans í böndunum,“ segir Eik og nefnir til sögunnar fleiri æfingar sem hún gerir heima í stofu en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Vala Matt Hús og heimili Ísland í dag Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira