„Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar 17. apríl 2026 14:46 Regnbogar eru sérstök og falleg náttúrufyrirbrigði. Við kynnumst þeim sem börn og undrumst fegurð þeirra alla ævi. Þeir eiga sér sess í flestum menningarheimum jarðar og eru oftast tákn fegurðar, friðar og vonar. Sem náttúrufyrirbrigði eru regnbogar merkilegir. Hvítt sólarljós fellur á ótal vatnsdropa í andrúmsloftinu, brotnar upp í hverjum og einum þeirra og endurkastast til áhorfanda sem stendur með bakið í sólina. Í augum hans birtist bogi af litum sem spanna allt svið hins sýnilega ljóss, frá rauðum til fjólublás. Líkt og svo margt eða jafnvel flest í náttúrunni, birta regnbogar okkur samfellt róf. Í þeim er enginn litur afbrigðilegur eða furðulegri en einhver annar. Þar eru engin frávik eða undantekningar því öll litbrigðin eru jafnnáttúruleg. Á þann hátt endurspegla regnbogar fullkomlega fjölbreytileika mannlífsins – engin manneskja er undantekning eða frávik á nokkurn hátt. Fánar sem sýna regnboga eru ekki birtingarmynd hugmyndafræði frekar en regnbogarnir sjálfir. Regnbogafánar minna okkur einfaldlega á fjölbreytileika lífsins og náttúrunnar sem við erum öll hluti af. Þeir eru ekki aðeins sjálfsagðir heldur nauðsynlegir í umburðarlyndu og víðsýnu samfélagi sem við viljum vonandi sem flest vera hluti af. Höfundur er náttúrufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Snæbjörn Guðmundsson Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Sjá meira
Regnbogar eru sérstök og falleg náttúrufyrirbrigði. Við kynnumst þeim sem börn og undrumst fegurð þeirra alla ævi. Þeir eiga sér sess í flestum menningarheimum jarðar og eru oftast tákn fegurðar, friðar og vonar. Sem náttúrufyrirbrigði eru regnbogar merkilegir. Hvítt sólarljós fellur á ótal vatnsdropa í andrúmsloftinu, brotnar upp í hverjum og einum þeirra og endurkastast til áhorfanda sem stendur með bakið í sólina. Í augum hans birtist bogi af litum sem spanna allt svið hins sýnilega ljóss, frá rauðum til fjólublás. Líkt og svo margt eða jafnvel flest í náttúrunni, birta regnbogar okkur samfellt róf. Í þeim er enginn litur afbrigðilegur eða furðulegri en einhver annar. Þar eru engin frávik eða undantekningar því öll litbrigðin eru jafnnáttúruleg. Á þann hátt endurspegla regnbogar fullkomlega fjölbreytileika mannlífsins – engin manneskja er undantekning eða frávik á nokkurn hátt. Fánar sem sýna regnboga eru ekki birtingarmynd hugmyndafræði frekar en regnbogarnir sjálfir. Regnbogafánar minna okkur einfaldlega á fjölbreytileika lífsins og náttúrunnar sem við erum öll hluti af. Þeir eru ekki aðeins sjálfsagðir heldur nauðsynlegir í umburðarlyndu og víðsýnu samfélagi sem við viljum vonandi sem flest vera hluti af. Höfundur er náttúrufræðingur.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar