Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar 18. apríl 2026 11:01 Ég er á lífi í dag. Það er ekki yfirvöldum að þakka. Það er fólki að þakka sem rétti mér hjálparhönd þegar kerfið rétti mér handjárn. Ég er óvirkur fíkill. Ég hef misst fleiri vini en ég get talið. Fólk sem átti foreldra, systkini, börn. Fólk sem hefði getað lifað. Í hvert sinn hugsa ég það sama. Hvar voru yfirvöld? Hvar var heilbrigðiskerfið? Hvar var raunverulegt viðbragð við faraldri sem hefur verið augljós í mörg ár? Svarið er mjög einfalt, hvergi. Yfirvöld eru enn mjög fjarlæg enda ekki margir flokkar sem hafa raunverulega látið sig málið varða. Á meðan lyfjatengd dauðsföll hafa margfaldast hafa stjórnvöld haldið uppi sýningu. Starfshópar. Stefnumótun. Falleg orð um nýja nálgun. Frumvörp sem daga uppi. Ráðafólk sem lofar, gera svo ekkert og fara. Á sama tíma deyr fólk, bak við lokaðar dyr sem samfélagið kýs að horfa ekki á. Refsistefnan sem enn ríkir er ekki hlutlaus. Hún drepur. Hún drepur meðal annars vegna þess að fólk þorir ekki að hringja á sjúkrabíl af ótta við lögreglu. Hún drepur vegna þess að fólk er hrakið frá heilbrigðisþjónustu með skömm. Hún drepur vegna þess að það er þægilegra fyrir stjórnvöld að kalla okkur glæpamenn en að meðhöndla okkur sem fólk sem þarf heilbrigðisþjónustu. Stundum hefur læðst að mér sú hugsun hvort það sé mögulega markmið aðgerðarleysis stjórnvalda að drepa “helvítis dópistana”. Á meðan yfirvöld bíða, bregðast aðrir við. Matthildarsamtökin gera það sem kerfið gerir ekki. Þau reka Reyk sem er vettvangsþjónusta, aðallega fyrir fólk sem reykir ópíóíða og örvandi efni, en þau vísa engum frá og aðstoða fólk við að tengjast þjónustu. Þau senda teymi út á næturlífið þar sem ein röng tafla getur drepið. Þau fræða fólk í fangelsi um naloxón og er því dreift á alla ganga fangelsanna. Þau standa í málsvarastarfi sem nánast enginn annar sinnir með sömu þekkingu og ástríðu. Það er það sem Matthildarsamtökin gera, á hverjum einasta degi. Koma fram við okkur eins og manneskjur til þess að minna okkur á að við séum þess virði. Sjálfboðaliðar halda þar uppi þjónustu sem ætti að vera grunnstoð í heilbrigðiskerfi siðaðs samfélags. Samtök sem standa á milli lífs og dauða eiga að fá réttmæta athygli velferðarkerfis borgarinnar og ríkisins. Yfirvöld þurfa að skilja eitt. Hver dagur sem líður án aðgerða er dagur þar sem einhver deyr sem hefði getað lifað. Barn, barnabarn, foreldri, fjölskyldumeðlimur, vinur eða önnur manneskja sem er okkur mikilvæg. Ég lifði af. En of mörg gerðu það ekki. Höfundur er óvirkur fíkill og skipar 4. sæti Pírata fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Unnar Þór Sæmundsson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar