Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir skrifar 19. apríl 2026 11:02 Að horfa upp á foreldri sitt veikjast illa af alvarlegum sjúdómi er erfitt. Vera á hliðarlínunni þegar það veikist meira og meira þangað til það að lokum lætur lífið, fyrir aldur fram, af þessum illvíga sjúkdómi.Að finna sjálfan sig veikjast af sama sjúkdómi og vilja fara í greiningarferli og fá hjálp en koma að lokuðum dyrum kerfisins fyllir mann miklum vanmætti. Veggir kerfisins eru grjótharðir og múraðir með hrauni.Hitt foreldrið mitt lést af bráðu hjartaáfalli, líka fyrir aldur fram.Eftir það fór ég og lét kanna hjartaheilsu mína og þá tók kerfið mér opnum örmum. Ég fékk fljótt tíma hjá hjartalækni og hjartað mitt var rannsakað í bak og fyrir. Gekk út með stálslegið hjarta í toppstandi eftir hraða og góða þjónustu.Annað foreldrið mitt lét lífið af hjartasjúdómi en hitt geðsjúkdómi. Þar liggur munurinn og hann er mjög mikill. Ég hef kynnst því því að geðheilbrigiðiskerfið á Íslandi er stórlega laskað. Bæði sem einstaklingur og aðstandandi.Það er mjög óþæginleg tilfinning að vita að maður þurfi hjálp en upplifa kerfi sem kastar manni milli úrræða og ekkert grípur. Heyra heimilislækni segja að kerfið virki eins og Villta vestrið svo erfitt sé að fá hjálp. Mér hefur í raun liðið eins og ég sé að ónáða kerfið að vera að biðja um hjálp og vilja fara í forvarnir gegn þessum sjúkdómi. Svo hef ég líka lært að það er ekkert til í þessu kerfi sem flokkast undir forvarnir.Hugsa að mér yrði ekki kastað aftur út á götuna ef hjartað mitt væri að klikka. Ég yrði gripinn og fengi viðeigandi hjálp og finndi fyrir öryggi.Ég vil hjálp við mínum vanda. Ég vil ekki skammast mín fyrir hann. Hann er mjög ættgengur og erfist kynslóð frá kynslóð í minni ætt. Ættarsagan er mjög sterk en það hefur ekki hjálpað mér að fá viðeigandi aðstoð.Meðan ég upplifði öryggi með að skoða hjartaheilsuna mína upplifi ég mikið óöryggi og ótta tengdan geðheilsukerfinu.Undanfarna mánuði hefur mín helsta ósk í lífinu verið að komast að hjá góðum geðlækni til að fá hjálp og vinna í mér. Hljómar kannski sérstakt en ég vil virkilega læra inn á þennan sjúkdóm og kynnast honum betur. Því lífið er dýrmætt og ég vil njóta þess.Ég er kannski .... mögulega ..... komin með geðlækni eftir að hafa barist eins og ljón og notað sambönd. Þar er ég á biðlista og bíð.Ég hugsa um alla hina sem kerfið grípur ekki og kastar út um allt. Þá sem hafa ekki tök á að nota röddina sína og berjast við þetta eins og ég. Þá sem ekki eiga pening fyrir dýrum sálfræðitímum eins og ég.Það að fólk hrósi íslensku geðheilbrigðiskerfi eða tali vel um það er afar sjaldgæft. Það væru þá þeir „heppnu“ sem voru gripnir. En ég hef heyrt alltof margar slæmar sögur. Sögur sem eiga það til að enda mjög illa.Það leitar sér enginn hjálpar við geðrænum vanda að óþörfu.Þetta verður að breytast og það er ekki nóg að tala bara um þetta. Það verður að framkvæma og stórbæta aðgengi og hjálp fyrir bæði börn og fullorðna. Ég hef heyrt að fyrir hverja krónu sem er sett inn í geðheilbrigðiskerfið komi fjórar út á móti.Það getur hver sem er séð að það margborgar sig. Veikt fólk sem líður illa kostar mikið. Veikt fólk sem deyr af geðsjúkdómum kostar líka mikið. Eftir sitja fjölskyldur og einstaklingar í sárum sem kosta líka mikið.Það eiga að vera eðileg mannréttindi að geta fengið hjálp við öllum vanda á Íslandi. Í dag er þetta stórlega stigskipt og þeir sem glíma við þetta andlega eru lægst settir. Sitja eða standa neðst á botninum og öskra eða góla á hjálp og kannski .... bara kannski er einhver sem heyrir í þeim eða grípur. Þá eru þeir „heppnir.“ En ég finn mikið til með öllum hinum sem þjást og fá ekki þá þjónustu sem þeir þurfa og eiga skilið.Getum við farið að líta okkur nær? Hætt að loka augum fyrir augljósum vanda og fundið það fjármagn sem þarf til að gera betur?Rekstur geðheilbrigðiskerfisins er ljótur blettur á samfélaginu.Og eftir sit ég með hraust og vel virkandi hjarta en með ósýnilega sársaukafulla sprungu í hjartanu getur dýpkað ef ég fæ ekki eðlilega og viðeigandi aðstoð. Og það veldur mér sjúklegum ótta! Höfundur er kennari, móðir og áhugamanneskja um bætt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Sjá meira
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun