ASÍ er látið niðurgreiða laun formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar 21. apríl 2026 07:46 Í nýlegu minnisblaði launanefndar VR, sem birt var í fjölmiðlum um helgina, er lagt til að laun formanns félagsins, sem er stærsta stéttarfélag landsins, verði ákveðin sem heildarlaun sem taki með í reikninginn allar greiðslur sem formaðurinn fær frá öðrum aðilum innan verkalýðshreyfingarinnar, þar á meðal Alþýðusambandi Íslands. Laun formanns VR fyrir starf sem einn af varaforsetum ASÍ skulu koma til frádráttar launum fyrir starfið hjá VR eða renna beint til félagsins, samkvæmt tillögu launanefndar VR sem að stjórn félagsins hefur samþykkt. Þetta þýðir að laun sem ASÍ greiðir einum varaforsetanna renna til VR og lækka þannig þá upphæð sem félagið sjálft greiðir formanninum. Með öðrum orðum: Þau laun sem önnur aðildarfélög ASÍ, eins og Efling, taka þátt í að fjármagna með sköttum sem þeim er gert að greiða til sambandsins, eru notuð til að niðurgreiða launakostnað formanns VR. Slíkt fyrirkomulag stenst hvorki lög ASÍ né góða stjórnsýslu innan verkalýðshreyfingarinnar. Sjálfstæð embætti samkvæmt lögum ASÍ Samkvæmt lögum Alþýðusambands Íslands er miðstjórn ASÍ, sem stjórnar sambandinu milli sambandsþinga, skipuð forseta, þremur varaforsetum og ellefu meðstjórnendum. Þessir einstaklingar eru kosnir sérstaklega á sambandsþingi, sem er haldið á tveggja ára fresti og er æðsta vald ASÍ. Í 26. grein laga ASÍ sem lesa má á vef sambandsins, segir að allir fullgildir félagsmenn aðildarfélaga séu kjörgengir í miðstjórn. Það er, embættin eru ekki bundin við tiltekin störf eða stöður innan einstakra aðildarfélaga. Í 33. grein laganna segir að miðstjórn hafi æðsta vald í málum sambandsins milli þinga og að þeir sem gegna trúnaðarstörfum fyrir sambandið lúti boðvaldi hennar. Af þessu er ljóst að varaforsetar eru sjálfstætt kjörnir fulltrúar með ábyrgð gagnvart miðstjórn ASÍ, ekki gagnvart einstökum stéttarfélögum. Hlutverk og skyldur þeirra eru afmörkuð innan sambandsins, þótt þeir kunni að gegna trúnaðarstörfum á vettvangi eigin félaga. Ráðningarsamband varaforseta er við ASÍ Varaforsetar ASÍ starfa samkvæmt sjálfstæðum ráðningarsamningi við sambandið. Þar er skýrt kveðið á um ýmsis atriði, eins og þau að ASÍ sé vinnuveitandi, að launagreiðslur, lífeyrissjóðsiðgjöld, skattar og önnur gjöld séu á ábyrgð ASÍ, að starfið sé tímabundið samkvæmt kjörtímabili sambandsþings, o.s.frv. Ráðningarsamningurinn er undirritaður af varaforseta og framkvæmdarstjóra ASÍ, sem gerir það fyrir hönd sambandsins. Slíkum ráðningarsamningi er engum samtökum utan ASÍ heimilt að breyta. Þegar stjórn VR ákveður að láta laun sem að ASÍ greiðir varaforseta renna til félagsins, er í raun verið að taka fjármuni sem öðrum félögum innan hreyfingarinnar er skylt að greiða í formi skatta til ASÍ og nota þá til að lækka eigin útgjöld. Alþýðusamband Íslands er látið niðurgreiða launakostnað formanns VR. Ósamræmi og hagsmunaárekstrar Afstaða launanefndar og stjórnar VR er að starf varaforseta ASÍ sé framhald eða hluti af starfi formanns VR. Það er rangt og í beinni andstöðu við lög ASÍ. Án nokkurs samráðs við miðstjórn ASÍ hefur stjórn eins félags af 44 aðildarfélögum sambandsins útbúið nýjar reglur, þar sem það félag nýtur fjárhagslegs ávinnings af sjálfstæðum stöðum sem sérstaklega er kosið í, án þess að þetta sé borið undir og samþykkt af þeim sem greiðir launin. Með þessu eru tvö aðskilin ráðningarsambönd gerð að einu og forsendur skapaðar fyrir hagsmunaárekstra. Ef formaður VR fær greidd laun frá ASÍ sem renna til VR og sem metin eru þar sem hluti af launakostnaði formanns, er ASÍ gert að fjármögnunaraðila launakostnaðar formanns VR. Það er ekki hlutverk sambandsins, það hefur aldrei verið rætt í miðstjórn ASÍ og þar af leiðandi hefur miðstjórn aldrei samþykkt að slíkt fyrirkomulag sé heimilt. Fordæmi og trúverðugleiki Efling, þar sem ég gegni formennsku, er annað stærsta aðildarfélag ASÍ og greiðir á hverju ári tugi milljóna til sambandsins. Áætla má að heildarupphæð skatta Eflingar til ASÍ á árinu 2026 verði um 150 milljónir króna. Það er algjörlega óásættanlegt fyrir félagsfólks Eflingar að hluti þess fjár, sem ætlaður er til að reka sambandið og verja hagsmuni allra sem tilheyra aðildarfélögunum, sé notaður til að niðurgreiða laun eins formanns í öðru félagi. Þetta gengur gegn jafnræði innan hreyfingarinnar, gegn góðum og gagnsæum bókhaldsreglum og gegn grungildum þeim sem verkalýðshreyfingin á að standa fyrir og standa vörð um. Laun sem greidd eru af Alþýðusambandi Íslands fyrir störf innan sambandsins eru aðeins það - greiðsla fyrir störf í þágu alls sambandsins. Þessi laun eru ekki tækifæri einstakra félaga til að lækka eigin launakostnað. Með ákvörðun stjórnar VR hefur félagið tekið einhliða ákvörðun um að breyta hlutverki varaforseta ASÍ úr sameiginlegum málsvara hreyfingarinnar í fjárhagslegan bakhjarl formanns VR. Það er óheimilt samkvæmt lögum ASÍ, það er siðferðilega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika verkalýðshreyfingarinnar. Ef stjórn VR vill á tímum þar sem að forsendur langtímakjarasamninga eru við það að bresta, kjarasamninga sem hljóða upp á hóflegar launahækkanir, færa formanni gríðarlega miklar launahækkanir, langt umfram það sem félagsfólk VR fær samkvæmt fyrrnefndum kjarasamningum, eiga meðlimir stjórnarinnar að gera það á eigin ábyrgð – án þess að draga ASÍ inn í græðigisvæðinguna og með því miðstjórn og öll aðildarfélög sambandsins. Höfundur er formaður Eflingar og annar varaforseti ASÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Sólveig Anna Jónsdóttir Kjaramál ASÍ Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun