Foreldrahús – enn eitt fórnarlamb ríkisstjórnarinnar Jens Garðar Helgason skrifar 21. apríl 2026 09:32 Það þótti öllum nóg um þegar að ríkisstjórnin stóð fyrir því að Janus endurhæfing lokaði á síðasta ári. Mörg ungmenni sem nýttu sér þjónustu Janusar endurhæfingar hafa fallið milli kerfa og enga aðra þjónustu fengið. Nú er nýjasta „afrek“ ríkisstjórnarinnar að raungerast því nú stendur til að loka Foreldrahúsi frá og með næstu mánaðarmótum. Foreldrahús var stofnað árið 1986 og í 40 ár hefur starfsemi Foreldrahúss fylgt sama markmiðinu í öll þessi ár: Að styðja og efla foreldra sem eiga börn með vímuefnavanda og áhættuhegðun. Í fyrra komu 586 ólögráða einstaklingar og 1.213 foreldrar í Foreldrahús. Veitt voru 3.891 viðtöl. Samtökin stóðu fyrir fjölda námskeiða og fræðslu fyrir fagfólk og foreldra. Veitt voru 3.190 viðtöl án endurgjalds og 326 símtöl við foreldra eftir kl.16.00 á daginn líka án endurgjalds. 197 foreldrar greiddu fyrir viðtöl á árinu. Hluti þeirra foreldra sem greiddu eiga lögráða börn í neyslu, foreldrar sem koma í uppeldis- og sálfræðiráðgjöf eða ung börn sem koma í framhalds listmeðferð, íhlutun barnaverndar er hætt, en foreldrar eða forsjáraðilar óska eftir fleiri tímum. Rekstrarkostnaður Foreldrahúss er um 74 milljónir á ári. Framlag ríkisins hefur verið um 30 milljónir á ári. En nú er því lokið. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir, í viðtali við Ríkisútvarpið, að orsökin sé áhugaleysi stjórnvalda á úrræðinu. Forsvarsmenn Foreldrahúss fá engin viðtöl eða viðbrögð frá ráðherrum. Með reglulegum hætti standa stjórnarþingmenn, ekki síst þingmenn Viðreisnar, í ræðustól Alþingis og tala sig hása um velferð barna og fíknivanda ungmenna. Hvernig væri að tala minna um hvað þið eruð góð og gera raunverulega gott? Girðið ykkur í brók og bjargið rekstri Foreldrahúss. Foreldrar barna í vímuefnavanda og börnin sjálf eiga það skilið. Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jens Garðar Helgason Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Það þótti öllum nóg um þegar að ríkisstjórnin stóð fyrir því að Janus endurhæfing lokaði á síðasta ári. Mörg ungmenni sem nýttu sér þjónustu Janusar endurhæfingar hafa fallið milli kerfa og enga aðra þjónustu fengið. Nú er nýjasta „afrek“ ríkisstjórnarinnar að raungerast því nú stendur til að loka Foreldrahúsi frá og með næstu mánaðarmótum. Foreldrahús var stofnað árið 1986 og í 40 ár hefur starfsemi Foreldrahúss fylgt sama markmiðinu í öll þessi ár: Að styðja og efla foreldra sem eiga börn með vímuefnavanda og áhættuhegðun. Í fyrra komu 586 ólögráða einstaklingar og 1.213 foreldrar í Foreldrahús. Veitt voru 3.891 viðtöl. Samtökin stóðu fyrir fjölda námskeiða og fræðslu fyrir fagfólk og foreldra. Veitt voru 3.190 viðtöl án endurgjalds og 326 símtöl við foreldra eftir kl.16.00 á daginn líka án endurgjalds. 197 foreldrar greiddu fyrir viðtöl á árinu. Hluti þeirra foreldra sem greiddu eiga lögráða börn í neyslu, foreldrar sem koma í uppeldis- og sálfræðiráðgjöf eða ung börn sem koma í framhalds listmeðferð, íhlutun barnaverndar er hætt, en foreldrar eða forsjáraðilar óska eftir fleiri tímum. Rekstrarkostnaður Foreldrahúss er um 74 milljónir á ári. Framlag ríkisins hefur verið um 30 milljónir á ári. En nú er því lokið. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir, í viðtali við Ríkisútvarpið, að orsökin sé áhugaleysi stjórnvalda á úrræðinu. Forsvarsmenn Foreldrahúss fá engin viðtöl eða viðbrögð frá ráðherrum. Með reglulegum hætti standa stjórnarþingmenn, ekki síst þingmenn Viðreisnar, í ræðustól Alþingis og tala sig hása um velferð barna og fíknivanda ungmenna. Hvernig væri að tala minna um hvað þið eruð góð og gera raunverulega gott? Girðið ykkur í brók og bjargið rekstri Foreldrahúss. Foreldrar barna í vímuefnavanda og börnin sjálf eiga það skilið. Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar