Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Kjartan Kjartansson skrifar 21. apríl 2026 13:16 Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum. Bæjaryfirvöld sömdu við World Class um rekstur og uppbyggingu heilsuræktar þar þrátt fyrir að útboð þeirra hefði verið kært öðru sinni. Vestmannaeyjabær Kröfu fulltrúa Sporthallarinnar um að útboð Vestmannaeyjabæjar um líkamsræktarstöð yrði stöðvað tímabundið var hafnað vegna þess að bærinn samdi við World Class áður en kærunefnd komst að niðurstöðu. Nefndin hefur kæru vegna útboðsins enn til skoðunar.
Vestmannaeyjabær auglýsti rekstur og uppbyggingu heilsuræktarstöðvar við íþróttamiðstöð bæjarins öðru sinni í mars. Bæjaryfirvöld féllu frá fyrra útboði áður en kærunefnd úrskurðaði það ólöglegt. Fulltrúar Sporthallarinnar, sem gerðu tilboð í verkefnið, kærðu seinna útboðið og kröfðust þess að það yrði stöðvað tímabundið á meðan kærunefnd útboðsmála kæmist að niðurstöðu. Töldu þeir útboðið sérsniðið að World Class sem bærinn gerði tímabundinn samning við í fyrra. Í útboðinu var meðal annars gerð krafa um að væntanlegir rekstraraðilar hefðu að minnsta kosti fimm þúsund áskrifendur og hefðu einn milljarð króna í eigið fé. Þá var þeim metið til tekna að reka stöðvar víðar um landið. Kærendur töldu World Class eina fyrirtækið í heiminum sem uppfyllti öll þessi skilyrði. Ekki hægt að ógilda að breyta samningnum Kærunefndin hafnaði kröfu kærendanna í síðustu viku, en þó ekki á efnislegum forsendum. Taldi nefndin sig ekki hafa annarra kosta völ í ljósi þess að Vestmannaeyjabær hefði haldið áfram með útboðið eftir að kæran barst og gert samning við World Class. Ekki væri hægt að fella þann samning úr gildi eða breyta honum jafnvel þótt framkvæmd útboðsins eða samningsgerðin hefði verið ólögmæt. Aðrar kröfur kærenda, þar á meðal um að skilyrðin útboðsins sem þeir töldu hygla World Class yrðu felld úr gildi, eru áfram til skoðunar á kærunefndinni. Tóku tvo daga í það sem átti að taka fimm Í ákvörðun nefndarinnar kemur fram Vestmannaeyjabæ hafi verið tilkynnt um kæruna sama dag og hún barst, 10. mars. Þrátt fyrir það hefði bærinn haldið ferlinu áfram og opnað tilboð 23. mars. Mat á tilboðum átti að taka fimm daga samkvæmt útboðsgögnum en bæjaryfirvöld tilkynntu aðeins tveimur dögum eftir að tilboð voru opnuð að þau hefðu ákveðið að vilja tilboð World Class. Bindandi samningur væri þegar kominn á um það.
Vestmannaeyjar Úrskurðar- og kærunefndir Líkamsræktarstöðvar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira