Sveitarstjórnarmál

Fréttamynd

Þörf eftir sér­tæku hús­næði fyrir yngri en 25 muni „fara veru­lega vaxandi“

Nokkuð löng bið getur verið eftir plássi í skammtímadvöl í Kópavogi og eftir sértæku húsnæði. Tuttugu börn biðu í lok mars eftir dvöl í skammtímadvöl, elsta umsóknin er frá því í ágúst 2021. Þá bíða 28 eftir sértæku húsnæði. Meðalaldur umsækjenda er 39 ár og segir í samantekt velferðarsviðs bæjarins að þörfin muni fara verulega vaxandi hjá þeim sem yngri eru en 25 ára. 

Innlent
Fréttamynd

Krefja Ingu svara við leikskólaá­formum Sam­fylkingarinnar

Sjálfstæðismenn telja leikskólaloforð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem hún kynnti á laugardag í Kópavogi, lið í kosningabaráttu flokksins á sveitarstjórnarstiginu og krefja Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, skýringa á því hvernig hún hyggst efna það?

Innlent
Fréttamynd

Nýtt fram­boð í Reykja­vík á elleftu stundu

Undirskriftasöfnun fyrir Góðan daginn, nýtt framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur hófst í gærkvöldi, hálfum sólarhring áður en framboðsfrestur rennur út. Hópurinn vill meðal annars endurskoða borgarlínu og Sundabraut.

Innlent
Fréttamynd

Fremst í yfir­byggingu

Nú styttist ört í sveitarstjórnarkosningar og má vænta þess að á komandi vikum og mánuðum muni umræðan snúast í einni eða annarri mynd um ráðstöfun útsvars. Þar er lykilatriði að sem stærstur hluti af skattfé fari í þjónustu við íbúa, en ekki yfirbyggingu.

Skoðun
Fréttamynd

Nafnið verði krefjandi verk­efni en í höndum í­búanna

Árneshreppur og Kaldrananeshreppur á Vestfjörðum munu sameinast eftir að meirihluti íbúa í báðum sveitarfélögum samþykktu tillöguna í íbúakosningu sem lauk í gær. Oddviti Kaldrananeshrepps trúir að sameinað sveitarfélag fái kröftuga innspýtingu frá ríkinu enda sé mikill áhugi á svæðinu og skortur á íbúðarhúsnæði eftir því. 

Innlent
Fréttamynd

Ekki hættur í Sam­fylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Fram­sókn

Formaður Samfylkingarinnar í Grindavík segist hvergi nærri hættur í flokknum þó að hann sé á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Erfitt hafi verið að fá fólk á lista fyrir Samfylkinguna og hann því ákveðið að taka slaginn með Framsókn.

Innlent
Fréttamynd

Kosningar hafnar um sam­einingu hreppanna

Í hádeginu hófust íbúakosningar um tillögu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps. Kosningar standa yfir til 28. þessa mánaðar íbúar sveitarfélaganna sem náð hafa sextán ára aldri fyrir lok tímabilsins mega greiða atkvæði.

Innlent
Fréttamynd

Stofna fram­boð fyrir þá sem leggjast gegn sam­einingu

Framboðslistinn Framtíð Árneshrepps mun bjóða fram í hreppnum í komandi sveitarstjórnarkosningum en framboðið vill höfða til þeirra sem eru mótfallnir mögulegri sameiningu við Kaldrananeshrepp. Íbúar kjósa um sameininguna í mars en sveitarstjórnarkosningar eru í maí.

Innlent
Fréttamynd

Á­kvarðanir teknar af heift en ekki skyn­semi

„Jájá, ég hef verið teiknaður upp sem leiðindagaur en ég er alinn upp við prinsippmennsku og ekki tilbúinn að láta allt yfir mig ganga,“ segir Stefán Guðmundsson forstjóri Gentle Giants. Hann fagnar því nú að menn séu farnir að sjá ljósið í áralöngu deilumáli. Nú sé mál að linni.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn hafnar eigin til­lögu um byggingu í­búða fyrir eldra fólk

Á síðasta bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðarbæjar lögðum við bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að hefjast handa um byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Hafnarfirði. Tillagan byggir á niðurstöðum starfshóps sem lauk störfum í lok síðasta árs þar sem gert er m.a. ráð fyrir íbúðum fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu og við Heiðvang/Vesturvang í Norðurbæ.

Skoðun
Fréttamynd

Einar fundar með borginni um mál­efni mið­borgar

Skrifstofa borgarstjóra ætlar að funda með Einari Bárðarsyni, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, um ýmis mál er varða veitingarekstur í miðborginni. Þau vilja ekki kalla það „friðarviðræður“ eins og Einar hefur kallað eftir en Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri borgarinnar, segir eiga að ræða ýmis mál er varða miðborgina á fundinum.

Innlent
Fréttamynd

Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning

Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogi segir um mistök í stjórnsýslunni að ræða og lækkunin sem ákveðin var í apríl í fyrra hafi ekki komist til framkvæmda. En um leið og þetta uppgötvaðist var haft samband við bæjarfulltrúa og þeim tjáð að þeir hafi fengið ofreiknuð laun eða þóknun og þurfi því að endurgreiða þóknunina.

Innlent
Fréttamynd

Er Reykja­vík virki­lega dreifð? Gögn segja annað

Í umræðunni um skipulag og þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu hefur lengi verið haldið fram að Reykjavík sé miklu dreifðari en sambærilegar borgir í nágrannalöndum. Þessi fullyrðing hefur jafnvel verið notuð sem rök fyrir stórum breytingum á skipulagi og samgöngum. En þegar rýnt er í alþjóðleg gögn kemur í ljós að þessi forsenda stenst ekki.

Skoðun