Borgarlínublekkingar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason skrifar 21. apríl 2026 15:02 Íbúar Borgarholtsbrautar í Kópavogi hófu nýverið undirskriftarsöfnun til að mótmæla fyrirætlunum Kópavogsbæjar um lagningu borgarlínunnar niður götuna þeirra. Núverandi fyrirætlanir gera ráð fyrir fjarlægingu bílastæða og á að breyta götunni í einstefnu að hluta, líkt og má sjá á myndinni hér að neðan. Myndin var notuð sem forsíða kynningar á borgarlínunni í Kópavogi þann 15. janúar 2025. Í Bítinu á Bylgjunni í morgun, 21. apríl, mættust oddvitar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Kópavogi. Þegar borgarlínan kom upp kom í ljós að flokkunum greinir ekki á um áform borgarlínunnar í Kópavogi nema þá að Sjálfstæðisflokkurinn heldur því nú fram að mikil vinna fari fram varðandi endurhönnun áforma á Borgarholtsbrautinni. Þetta er áhugavert í ljósi þess að Miðflokkurinn í Kópavogi fékk mjög góða kynningu frá Betri Samgöngum í gær, 20. apríl, þar sem hið gagnstæða kom fram. Eins og allir sem þekkja til Borgarholtsbrautarinnar vita þá mun reynast gríðarlega erfitt að koma borgarlínunni þar fyrir án þess að skoða möguleika þess að fara inn á lóðir fólks og fjarlægja öll bílastæði sem liggja eftir brautinni. Við í Miðflokknum höfum bent á þá óhóflegu þéttingu sem hefur átt sér stað í Kópavogi, þá sérstaklega á Kársnesinu, í Fannborginni og við Sunnusmára. Allt er þetta á fyrirhugaðri leið borgarlínunnar. Nú virðist bæjarstjóri Kópavogs ætla að skipta um stefnu korter í kosningar. Þau muni ekki leyfa þrengingar að fjölskyldubílnum eða fjarlægingu bílastæða. Samt er það nákvæmlega það sem öll deiliskipulög núverandi meirihluta gefa til kynna og þau hafa framkvæmt á kjörtímabilinu. Það þarf enginn að velkjast í vafa um afstöðu Miðflokksins. Við teljum enga ástæðu til þess að Kópavogur fari að elta Reykjavík í nýsköpun bílastæðakvíða og umferðartafa. Það á að liðka fyrir fjölskyldubílnum, ekki þrengja að honum, Virkja þarf endurskoðunarákvæði samgöngusáttmálans og forgangsraða vegaframkvæmdum sem greiða fyrir umferð. Vinna þarf betur með íbúum og slaka á áformum um háreistar þéttar byggðir án bílastæða í grónum hverfum. Blekkingar Sjálfstæðisflokksins rétt fyrir kosningar munu ekki virka á þá sem búa við þéttingarreitina, enda er ekki nóg að segjast ekki ætla að þrengja þegar íbúar finna daglega fyrir þeim þrengingum sem bærinn hefur staðið fyrir undanfarin ár. Ég hvet alla Kópavogsbúa sem vita ekki hverjum þeir eigi að trúa að kíkja í stuttan bíltúr og skoða aðstæður með eigin augum. Keyra um Hlíðar- og Sunnusmára, skoða aðstæður í Fannborg, keyra niður Borgarholtsbrautina og enda á Hafnarbrautinni hjá Brasserie Kársnses. Það munar um Miðflokkinn í Kópavogi, við gerum það sem við segjumst ætla að gera og ætlum að koma skynsemi aftur í skipulagsmálin. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Einar Jóhannes Guðnason Miðflokkurinn Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar