Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar 22. apríl 2026 08:31 Reykvíkingar kjósa nýja borgarstjórn eftir 24 daga. Í mínum huga snúast kosningarnar um næstu kynslóð Reykvíkinga. Velur unga fólkið að búa í höfuðborginni okkar? Er húsnæði hræðilega dýrt? Er gaman að stofna fyrirtæki? Er ég stanslaust á bið? Bið eftir leikskólaplássi, bið eftir þjónustu og bið eftir ákvörðunum. Reykjavík er biðlistaborg og biðlistaborgir eru hvorki sjarmerandi né skemmtilegar. Við þurfum að snúa við nálguninni. Borgin á ekki að þvælast fyrir Reykvíkingum heldur á hún að vera til staðar og veita þjónustu sem borgarbúar þurfa á að halda. Reykjavík á að vera borg sem virkar. Borg sem er einfaldari, frjálslyndari og skemmtilegri. Borg sem þjónar en þvælist ekki fyrir Reykjavík fær um 200 milljarða króna í tekjur á ári. Það skiptir öllu máli að þessi peningur skili sér aftur út í hverfin eins hratt og hægt er. Í grunnþjónustuna, skólana, sundlaugarnar, velferðina, í það að halda borginni hreinni. Peningurinn á að fara í fólkið en ekki kerfin. 13 prósent treysta borgarstjórn Reykjavíkur. Því þarf að snúa við. Ein leið til að byggja upp traust er að treysta á móti. Við í Viðreisn ætlum að gera það. Treysta fagfólki, treysta atvinnulífinu, treysta fólki sem vill skapa og treysta fjölskyldum til að lifa sínu lífi. Ný kynslóð Allir sjá að eitthvað er að en það er ekki nóg. Það er ekkert mál að greina og tala um vandamálin við eldhúsborðið eða á samfélagsmiðlum. Annað er að bjóða fram lausnir. Við í Viðreisn bjóðum fram lausnir til þess að snúa Reykjavík við og teymi sem getur unnið saman og látið þessar lausnir raungerast. Öll málefni okkar eru aðgengileg hér. Við erum ekki að leita að þægilegri innivinnu heldur bjóðum okkur fram til að mæta glöð og peppuð í vinnuna á hverjum degi fyrir borgarbúa. Við bjóðum okkur fram til þess að búa til skemmtilegri og betri borg sem Reykvíkingar eru stoltir af og velja að búa í. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Viðreisn Björg Magnúsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Reykvíkingar kjósa nýja borgarstjórn eftir 24 daga. Í mínum huga snúast kosningarnar um næstu kynslóð Reykvíkinga. Velur unga fólkið að búa í höfuðborginni okkar? Er húsnæði hræðilega dýrt? Er gaman að stofna fyrirtæki? Er ég stanslaust á bið? Bið eftir leikskólaplássi, bið eftir þjónustu og bið eftir ákvörðunum. Reykjavík er biðlistaborg og biðlistaborgir eru hvorki sjarmerandi né skemmtilegar. Við þurfum að snúa við nálguninni. Borgin á ekki að þvælast fyrir Reykvíkingum heldur á hún að vera til staðar og veita þjónustu sem borgarbúar þurfa á að halda. Reykjavík á að vera borg sem virkar. Borg sem er einfaldari, frjálslyndari og skemmtilegri. Borg sem þjónar en þvælist ekki fyrir Reykjavík fær um 200 milljarða króna í tekjur á ári. Það skiptir öllu máli að þessi peningur skili sér aftur út í hverfin eins hratt og hægt er. Í grunnþjónustuna, skólana, sundlaugarnar, velferðina, í það að halda borginni hreinni. Peningurinn á að fara í fólkið en ekki kerfin. 13 prósent treysta borgarstjórn Reykjavíkur. Því þarf að snúa við. Ein leið til að byggja upp traust er að treysta á móti. Við í Viðreisn ætlum að gera það. Treysta fagfólki, treysta atvinnulífinu, treysta fólki sem vill skapa og treysta fjölskyldum til að lifa sínu lífi. Ný kynslóð Allir sjá að eitthvað er að en það er ekki nóg. Það er ekkert mál að greina og tala um vandamálin við eldhúsborðið eða á samfélagsmiðlum. Annað er að bjóða fram lausnir. Við í Viðreisn bjóðum fram lausnir til þess að snúa Reykjavík við og teymi sem getur unnið saman og látið þessar lausnir raungerast. Öll málefni okkar eru aðgengileg hér. Við erum ekki að leita að þægilegri innivinnu heldur bjóðum okkur fram til að mæta glöð og peppuð í vinnuna á hverjum degi fyrir borgarbúa. Við bjóðum okkur fram til þess að búa til skemmtilegri og betri borg sem Reykvíkingar eru stoltir af og velja að búa í. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar