Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 22. apríl 2026 13:22 Golf hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein stærsta lýðheilsu- og fjölskylduíþrótt landsins. Á landsvísu eru hátt í 30 þúsund einstaklingar skráðir í golfhreyfinguna og fjölgunin hefur verið meiri en í flestum öðrum íþróttagreinum. Þar af er fjölgunin mest á meðal þeirra sem eru 50 ára og eldri. Yfir 1000 einstaklingar eru nú á biðlista eftir því að komast að hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Langir biðlistar sýna skýrt að núverandi aðstaða er ekki að anna eftirspurn. Aðstaðan fyrir golfiðkun í Reykjavík er einfaldlega orðin of lítil miðað við þann fjölda sem vill stunda íþróttina. Það er jákvætt að gríðarleg gróska sé í golfi, en borgin verður að bregðast við með raunverulegum aðgerðum. Við getum ekki treyst á nágrannasveitarfélögin um uppbyggingu aðstöðu fyrir kylfinga sem búa í Reykjavík. Það þarf að skoða ný svæði undir golfvöll í samstarfi við golffélög og kylfinga á næsta kjörtímabili. Jafnframt þarf að skoða smærri og hagkvæmari útfærslur, svo sem stækkun núverandi svæða, 9 holu velli, par-3 velli, vipp- og púttsvæði og fleiri inniherma í hverfum borgarinnar til að auka aðgengi að íþróttinni. Jöfnum aðstöðumun Um 15 prósent skráðra kylfinga á Íslandi eru börn og unglingar, sem setur Ísland í efstu sæti í Evrópu yfir hlutfall 18 ára og yngri skráð í golfklúbba. Reykjavíkurborg hefur stutt við þessa þróun með frístundastyrkjum fyrir börn en borgin getur einnig komið til móts við golfiðkun barna með litlum æfingasvæðum í hverfum borgarinnar þar sem börn geta prófað sig áfram í íþróttinni. Við í Framsókn höfum lagt til í borgarstjórn að komið verði á fót frístundastyrkum fyrir tekjulágt eldra fólk til að auka aðgengi þess að íþróttum. Komumst við í meirihluta á komandi kjörtímabili munum við láta það verða að veruleika, en núverandi meirihluti borgarstjórnar kærði sig ekki um að samþykkja þetta góða lýðheilsumál. Hvers vegna golf? Golf er einstök íþrótt að því leyti að hún sameinar hreyfingu, útivist, félagsskap og náttúruupplifun. Á Íslandi hefur hún rutt sér til rúms sem almenningsíþrótt og hún er lágþröskulda hreyfing, fyrir bæði ungt og eldra fólk, sem getur með golfi verið virkt allt sumarið og haldið við færni yfir veturinn með æfingum í golfhermum. Ávinningurinn til lengri tíma er augljós. Bætt lýðheilsa og aukin félagsleg virkni þýðir til lengri tíma minna álag á félags- og heilbrigðisþjónustu. Rannsóknir benda jafnframt til þess að þeir sem stunda golf lifi að jafnaði lengur. Reykjavík þarf skýra framtíðarsýn fyrir golfíþróttina þar sem aðgengi fólks að íþróttinni er tryggt. Framsókn mun styðja við skipulagningu nýrrar golfaðstöðu í Reykjavík og vinna að því að golf njóti sambærilegs stuðnings og aðrar íþróttagreinar. Setjum X við B Höfundur er í 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum 16. maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Golfvellir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar