Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar 22. apríl 2026 15:02 Viltu að barnið þitt eigi möguleika á að komast í framhaldsskóla eftir að það lýkur grunnskóla? Hvort skiptir meira máli að það sé pláss fyrir öll börn í skólunum okkar eða að einkunnir séu gefnar í tölustöfum? Framhaldsskólar miða við ákveðið kerfi þegar þeir taka inn nemendur í skólana. Það er ekki gert handahófskennt heldur er stuðst við það einkunnakerfi sem nú er í grunnskólunum. Hvaða leiðir skólarnir nota er mismunandi en flestir horfa til árangurs í stærðfræði, íslensku og ensku. Hæfni nemenda ekki bara mæld í prófum Í grunnskólum er unnið eftir hæfnimiðuðu námsmati þar sem nemendur fá einkunnir í formi A, B, C og D. Þetta er faglegt heildarmat sem byggir á fjölbreyttum þáttum en ekki bara á prófum. Einkunnirnar A og B þýða að nemandi er fullfær um að hefja nám í framhaldsskóla. Nemandi sem fær einkunnina C eða D nær ekki alveg öllum viðmiðum en getur hafið framhaldsskólanám á því sem áður var kallað hægferð, 0-áfangi eða upprifjun en í dag heitir að hefja nám á fyrsta þrepi eða á framhaldsskólabrú. Alls ekki allir framhaldsskólar bjóða upp á nám fyrir þau sem fá C eða D en þeim hefur samt fjölgað verulega á undanförnum árum enda eiga stjórnvöld lögum samkvæmt að bjóða öllum börnum nám til 18 ára aldurs. Við viljum að það sé pláss fyrir öll börn „Gamli tíminn” þar sem nemendur „féllu” í grunnskólanum er löngu liðinn og innritunarreglur byggja nú á reynslu síðustu ára og dýpri þekkingu á því hvernig námsmat grunnskólans endurspeglar hæfni nemenda á mun ólíkari hæfnisviðum en áður. Við sem samfélag viljum að í skólunum okkar sé pláss fyrir öll börn, líka þau „fullorðnu“ sem stunda sitt nám í framhaldsskólanum. Það er vissulega verðugt viðfangsefni en verulegur árangur hefur orðið í því á síðustu árum. Það nýjasta í því er að nú hefur verið opnað á að umsækjendur geti skilað inn ítargögnum sem snúa að öðru en hefðbundnu námsmati, til dæmis góðum árangri í íþróttum eða listum. Þetta er mikilvægt skref í átt að heildstæðara mati á hæfni nemenda. Kerfið virkar Kennarasamband Íslands hefur margoft óskað eftir alvöru samráði um skólamál í landinu, þar á meðal umræðunni um skilin milli skólastiga grunn- og framhaldsskólans. Í því höfum við séð stöðugt betri árangur. Haustið 2025 fengu 93% nemenda inngöngu í þann framhaldsskóla sem þau völdu sem sitt fyrsta val. Það er ótrúlegur árangur sem vekur athygli í alþjóðlegum samanburði. Það segir okkur líka að kerfið virkar. Kerfið virkar. Það er fyrirsjáanlegt og í stöðugri þróun. Við eigum að halda áfram að þróa kerfið af skynsemi og byggja á reynslu. En við eigum ekki að kollvarpa því. Höfundur er formaður Kennarasambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þór Jónsson Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar