Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar 22. apríl 2026 16:55 Samfylkingin í Reykjavík vill bjóða upp á systkinaforgang þannig að yngra systkin komist alltaf inn á sama leikskóla og eldra systkin. Þetta er eitt af mínum uppáhalds stefnumálum fyrir kosningarnar vegna þess að yfir þriggja ára tímabil keyrði ég börnin mín á sitthvorn leikskólann á hverjum degi og þar af í heilt ár á milli hverfa í Reykjavík. Það er nógu flókið fyrir foreldra ungra barna í Reykjavík að láta vinnu og fjölskyldulíf ganga upp, það er nógu mikið af skutli og sæk-i, þótt við séum ekki að senda foreldra á mismunandi leikskóla með börnin sín. Breytum þessu Ég veit að sum önnur sveitarfélög bjóða upp á systkinaforgang nú þegar, en hann var afnuminn í Reykjavíkurborg árið 2008 eftir álit borgarlögmanns, sem taldi forganginn fara gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, m.a. þar sem stundum hefði systkinaforgangur þau áhrif að yngri börn sem ættu eldra systkin væru tekin fram yfir eldri börn sem vildu komast inn á sama leikskólann. Það þarf að vera skýrt hvað sveitarfélög mega og mega ekki gera í þessum efnum. Þess vegna hefur Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík, lagt til að lögfesta skýra heimild sveitarfélaga til að taka mið af þáttum eins og stöðu systkina og búsetu við úthlutun leikskólaplássa. Með því væri verið að styrkja grundvöll sveitarfélaganna til að ákvarða úthlutun. Þetta er eitt lítið en gott dæmi um það hvernig ríkið og sveitarfélögin geta og þurfa að starfa saman að því að skapa betri skilyrði fyrir foreldra ungra barna. Stuðningur við foreldra skilar sér Nýlega kynnti Samfylkingin þrjú samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga þar sem meðal annars er lögð áhersla á að lækka kostnað barnafólks. Þessi verkefni eru lögfesting leikskólastigsins, eins og gert er á öðrum Norðurlöndum og leikskólastigið þannig viðurkennt sem fyrsta skólastigið, þak á leikskólagjöld og svo 100% systkinaafsláttur, ásamt því að efla frístundastyrki. Reykjavík hefur undir stjórn Samfylkingarinnar, auk þess að stilla leikskólagjöldum almennt í hóf miðað við önnur sveitarfélög á suðvesturhorninu, boðið rausnarlega systkinaafslætti sem hafa nýst okkur fjölskyldunni vel. Án slíks afsláttar myndi kostnaður aukast töluvert og þrýstingur á heimilið líka. Að einhverju leyti getur systkinaafslátturinn virkað eins og hvati til barneigna en til dæmis er afslátturinn 100% af bæði fæðis- og dvalargjaldi fyrir öll börn umfram tvö. Þriðja barnið er frítt! Við í Samfylkingunni viljum að Reykjavík verði enn betri borg til að ala upp börn. Leikskólarnir okkar eru frábærir, það þekkjum við foreldrarnir í borginni. En við þurfum fleiri pláss og betri starfsaðstæður fyrir kennara og annað starfsfólk. Öflugt leikskólakerfi er nefnilega forsenda jafnra tækifæra barna og gerir foreldrum kleift að taka fullan þátt í atvinnu og samfélagi. Þess vegna setur Samfylkingin í Reykjavík leikskóla í forgang. Höfundur skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Samfylkingin Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar