Heilbrigðisþjónusta eftir póstnúmeri Sif Huld Albertsdóttir skrifar 24. apríl 2026 15:47 Ég valdi að búa á landsbyggðinni en ég valdi ekki að þurfa að borga meira fyrir heilbrigðisþjónustu. Samt er það raunin fyrir marga sem þurfa að sækja sérfræðilækna utan heimabyggðar. Undanfarin ár hefur þessi staða verið rædd við stjórnvöld og breytingar hafa orðið. Ferðum sem eru niðurgreiddar vegna læknisþjónustu utan lögheimilis hefur fjölgað úr tveimur í fjórar á ári á síðustu árum. Þær breytingar voru mikilvægt skref, en síðan þá hafa ekki orðið frekari úrbætur þrátt fyrir að þörfin sé enn til staðar. Mér er annt um að fjölskyldur á landsbyggðinni hafi raunverulegt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, ekki bara á blaði heldur í framkvæmd. Raunveruleikinn á bak við tölurnar Ég hef undir höndum raunverulegt dæmi frá fjölskyldu á landsbyggðinni sem þarf að fara reglulega með barn í læknisþjónustu utan heimabyggðar. Á nokkrum mánuðum safnast upp kostnaður upp á hundruð þúsunda króna. Hluti fæst niðurgreiddur en stór hluti stendur eftir og fellur á fjölskylduna sjálfa. Fyrir fjölskyldu á Ísafirði er um 420 kílómetra akstur aðra leið til Reykjavíkur, eða 840 kílómetrar fram og til baka. Endurgreiðslan miðast við 41 krónu á kílómetra en dugar oft ekki fyrir raunverulegum kostnaði þegar eldsneyti og gjöld eru tekin með í reikninginn. Fyrir einstakling á höfuðborgarsvæðinu getur heimsókn til sérfræðings verið innan við klukkustund og kostað lítið sem ekkert. Fyrir fjölskyldu á landsbyggðinni getur sama heimsókn þýtt heilan dag í ferðalag, hundruð kílómetra akstur/flug og tugþúsunda króna kostnað. Þetta er sami réttur en allt önnur raunveruleg byrði. Að fljúga er oft eina raunhæfa leiðin. Greinaskrifandi er búsett á Ísafirði þar sem ekki er flogið oft á dag og því ekki alltaf hægt að fara fram og til baka samdægurs. Það þýðir að ferð vegna læknisheimsóknar verður ekki bara ferð heldur verkefni sem getur tekið meira en sólarhring, með tilheyrandi kostnaði við gistingu og annað. Þegar komið er til Reykjavíkur þarf svo að komast áfram með leigubíl eða bílaleigubíl og sá kostnaður er ekki sjálfkrafa niðurgreiddur. Ferðin er því aldrei bara flugmiðinn heldur heildarkeðja af kostnaði sem leggst á fjölskyldur. Fjórar ferðir eru vissulega framfaraskref en fyrir þá sem þurfa reglulegt eftirlit eða meðferð duga þær oft ekki. Þótt hægt sé í ákveðnum tilvikum að sækja um fleiri ferðir breytir það ekki þeirri staðreynd að grunnkerfið þarf að endurspegla raunverulegan kostnað. Þegar kostnaður við hverja ferð er jafn hár og raun ber vitni verður ljóst að breytingin nær ekki að jafna stöðuna. Þetta snýst um jafnræði ekki tölur á blaði Aðgengi að heilbrigðisþjónustu á ekki að ráðast af búsetu. Ég valdi að búa úti á landi en það á ekki að þýða að ég eða aðrar fjölskyldur fái lakari þjónustu eða þurfi að greiða mun meira fyrir hana. Það er ekki nóg að fjölga ferðum á blaði ef raunverulegur kostnaður stendur í vegi fyrir því að fólk geti nýtt sér þær. Spurningin sem við þurfum að spyrja er einföld: Ætlar kerfið að mæta raunverulegum kostnaði eða á landsbyggðin áfram að borga mismuninn? Því það er ekki jafnræði að bjóða fjórar ferðir ef fólk hefur ekki efni á að nýta þær. Höfundur er formaður Breiðra Brosa og íbúi á landsbyggðinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sif Huld Albertsdóttir Byggðamál Heilbrigðismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar