Ráðabrugg Örn Sigurðsson skrifar 27. apríl 2026 16:16 Misvægi atkvæða er vopnið, sem ríki og borg beita af hörku gegn Reykvíkingum. Samtök um betri byggð, áhugafólk um betra borgarsamfélag, undirbýr því málshöfðun á hendur íslenska ríkinu vegna ólögmætrar yfirtöku besta mannvistar- og byggingarlands Reykvíkinga í Vatnsmýri þann 6. Júlí 1946 og lögsókn gegn Reykjavíkurborg vegna 80 ára vanrækslu á að verja brýna hagsmuni Reykvíkinga gegn ódæði ríkisins. Þann 24. apríl hefst söfnun áheita á karolinafund.com til þess að standa straum af rannsóknar- og lögfræðikostnaði og öðrum undirbúningi lögsóknar. Að óbreyttu er afleiðing ákvæða 31. gr. íslensku stjórnarskrárinnar sú að Ísland er ekki meðal fremstu lýðræðisríkja. Mikið misvægi atkvæða er kerfisgalli án hliðstæðu, sem hamlar meiri hluta kjósenda með skert vægi atkvæða í því ma. að hafa fullnægjandi áhrif á almenn lífsskilyrði sín en færir minni hluta kjósenda með aukið vægi ómakleg völd til þess ma. að ráðskast með örlög hinna. Þannig misbeita forkólfar Akureyringa, samherjar þeirra á landsbyggðinni og aðrir vörsluaðilar misvægisins td. þessu ómaklega valdi til þess að halda 80 ára gömlum herflugvelli í Vatnsmýri. Öll framboð á landsvísu („landsmálaflokkar“/„fjórflokkurinn“) eru sjálfkrafa ofurseld þessari bjögun þegar kemur að ágreiningi á milli þolenda skerts vægis og hinna með aukið vægi atkvæða. Í íslensku lagasafni eru um 800 lög, sem öll voru samin við þessi skilyrði. Mörg hver gætu verið fremur hlutlaus gagnvart búsetu kjósenda en önnur eru hlutdræg í þágu íbúa með aukið vægi atkvæða. Alþingi afgreiðir auk þess reglubundið lög og áætlanir, sem jafnan eru verulega hlutdræg svo sem fjárlög og samgönguáætlanir. Átakalínur íslenskra stjórnmála ráðast af búsetu, vægi atkvæða og þröngum sérhagsmnum fremur en af hefðbundnum stefnum hugsjóna, þjóðarhags og lífsskoðanna til hægri eða vinstri. Átökin um 80 ára gamlan herflugvöll í Vatnsmýri eru sannkölluð ormagryfja íslenskra stjórnmála. Þar halda kjörnir fulltrúar og ráðnir embættismenn sig þó að mestu til hlés, þjakaðir af þöggun og þrælsótta en senda minni spámenn fram á völlinn, gjarnan þá sem teljast eiga einhverra sér- og einkahagsmuna að gæta, svokallaða hollvini herflugvallarins. Og þar er leikurinn ójafn í baráttu við Samtök um betri byggð BB og aðra andstæðinga herflugvallarins því hinir hafa greiðan aðgang að fjármagni og fjölmiðlum. Þeir eru hvorki bundnir af samhenginu og heildarmyndinni, ekki af þjóðarhag og almannaheill né styðjast þeir við röksemdir, sanngirni og rekjanleika umræðunnar. Sterkar vísbendingar eru um að eftir hernám Breta 10. Maí 1940 hafi átt sér stað ráðabrugg forkólfa Flugfélags Akureyrar og áhrifaaðila í íslenskum stjórnmálum um að í stríðslok tæki Flugfélag Akureyrar við herflugvellinum, sem hernámsliðið tók strax að byggja, ma. með ráðgjöf forkólfa Akureyringa um staðarval í Vatnsmýri. Frá upphafi baráttu gegn herflugvelli í Vatnsmýri og stofnun Samtaka um betri byggð BB í lok 20. aldar hafa þingmenn í NA kjördæmi ítrekað lagt fram á Alþingi tillögur um að skerða skipulagsvald sveitarfélagsins Reykjavíkur til þess að tryggja áframhaldandi flugstarfsemi á kjörlendinu í Vatnsmýri, m.a. þessi 11 þingmál: 217. mál (HÞ) á 143. þingi; 361. mál (HÞ) á 144 þingi; 898. mál (HÞ) á 145.þingi; 847. mál (ÖJ) á 145. Þingi; 424. mál (NF) á 146. þingi; 392. mál (NF) á 148. Þingi; 86. mál (NTF) á 149. Þingi; 311. mál (NTF) á 150. Þingi; 39. mál (NTF) á 151. Þingi; 395. mál (NTF) á 153. Þingi; 328. mál (NTF) á 155. Þingi. Höfundur er arkitekt og situr í framkvæmdastjórn Samtaka um betri byggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arkitektúr Byggingariðnaður Hernaður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar