Stórasta Árborg í heimi? Guðný Björk Pálmadóttir skrifar 29. apríl 2026 07:01 Árborg er það sveitarfélag sem hefur vaxið hvað hraðast á undanförnum árum og íbúum fjölgað langt umfram áætlanir. Sú þróun sýnir að Árborg er eftirsóttur staður til búsetu, enda hvergi betra að vera. En örum vexti fylgja líka vaxtaverkir. Það er erfitt að vanda til verka þegar maður er stöðugt skrefi á eftir og þarf sífellt að bregðast við í stað þess að móta næstu skref. Nú er kominn tími til að við hættum að elta vöxtinn og byrjum að stýra ferðinni. Átt þú sæti við borðið? Skipulag og innviðauppbygging eru ekki bara formlegheit á blaði. Þetta eru mál sem hafa áhrif á daglegt líf fólks, lífsgæði og samfélagsanda áratugi fram í tímann. Þess vegna verðum við að spyrja okkur: hver á að hafa áhrif á þessar ákvarðanir og hvenær á samtalið að eiga sér stað? Að mínu mati kemur almenningur of seint inn í ferlið, eftir að meginstefnan hefur þegar verið ákveðin. Þá snýst samráð fyrst og fremst um að gera athugasemdir við tilbúnar tillögur í stað þess að taka þátt í mótun þeirra. Aukið gagnsæi og samráð við íbúa getur breytt þessari aðferð og gefið fólkinu sem raunverulega býr á svæðinu alvöru rödd við borðið. Hefur þú, kæri íbúi, skoðun á málinu? Íbúar Árborgar búa yfir gríðarlegri þekkingu á sínu nærumhverfi. Þeir vita og þekkja á eigin skinni: hvar þjónustu vantar, hvar börn og ungmenni vantar bætt svæði til útivistar og leikja, hvar álag er orðið of mikið á samgöngur og innviði, og hvar tækifæri til umbæta eru í þeirra nærumhverfi. Þetta er þekking sem horft er fram hjá þegar ákvarðanir eru teknar. Í dag eru þessar ákvarðanir einhliða og ekki í samráði og samtali við þá sem ætla að nota svæðið. Aukið íbúalýðræði í skipulagsmálum er skynsöm lausn. Þetta snýst ekki um að allir geti verið sammála, heldur um að ákvarðanir séu teknar með opnum hætti og á upplýstum grunni. Gagnsætt ferli býr til dýpri skilning og meiri sátt um niðurstöður, jafnvel þegar um erfiðar ákvarðanir er um að ræða. Valkostagreining og kosning Í stórum málum sem snerta framtíð samfélagsins ætti íbúum að gefast raunverulegt tækifæri til að taka þátt í vali og ákvörðunum. Viðreisn mun beita sér fyrir því að í stórum málum verði gerð valkostagreining sem hægt sé að bera undir íbúa með kosningu. Þetta eru mál eins og uppbygging íþróttasvæða, útivistarsvæða, staðsetning næsta skóla og annað sem hefur raunveruleg áhrif á líf fólks. Þetta eru ákvarðanir sem fólkið sjálft á að geta sagt sína skoðun á, en ekki ákvörðun sem liggur á herðum örfárra aðila. Stærð Árborgar mælist ekki aðeins í íbúafjölda „Stórasta Árborg í heimi“ snýst ekki um að vera stærst á kortinu, heldur um að vera öflugt samfélag með sterkum innviðum og skýra framtíðarsýn. Það krefst þess að við tökum skipulag og ákvarðanatöku alvarlega og treystum íbúum til að vera virkir þátttakendur í mótun bæjarins. Nú er tíminn til að stíga skrefið frá því að elta vöxtinn yfir í að stýra honum. Og það gerum við best saman. Höfundur skipar annað sæti á lista Viðreisnar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árborg Viðreisn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar