Viðskipti innlent

Horfa á eftir Stein­grími og spara 180 milljónir á ári

Eiður Þór Árnason skrifar
Steingrím Arnar Finnsson, fráfarandi forstjóri Fossa. 
Steingrím Arnar Finnsson, fráfarandi forstjóri Fossa.  Aðsend

Stjórn Fossa fjárfestingarbanka hefur samið við Steingrím Arnar Finnsson um starfslok en hann hefur verið forstjóri Fossa frá árinu 2023. Brynjar Þór Hreinsson tekur við eftir að hafa verið fjármálastjóri móðurfélagsins Skaga hf. frá árinu 2023.

„Ekki verður ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars og jafnframt er gert er ráð fyrir að tilfærsla verkefna, kostnaðarhagræði og einföldun á starfsemi móðurfélags skili allt að 180 milljónum króna í árlega lækkun kostnaðar á samstæðugrunni,“ segir í tilkynningu Skaga til Kauphallar. Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og Íslensk verðbréf eru hluti af samstæðu Skaga auk Fossa.

Vilja auka arðsemi

Stjórn Skaga er sögð hafa samþykkt uppfærðar áherslur í stefnu félagsins sem miði að því að auka arðsemi eftir umbreytingar síðustu ára en VÍS keypti Fossa árið 2023.

„Niðurstaðan eru aðgerðir í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Þá verður ráðist í sértæk verkefni sem miða að því að nýta styrkleika samstæðunnar til að ná fram hagkvæmari fjármagnsskipan og auka samningsbundnar tekjur í fjármálastarfsemi.“

Með breytingunum stígi Brynjar úr hlutverki fjármálastjóra Skaga en sitji áfram í framkvæmdastjórn Fossasamstæðunnar. Hann er sagður taka við forstjórastöðunni frá og með næstu mánaðamótum.

„Steingrímur mun vera félaginu áfram til ráðgjafar í þágu lykilviðskiptasambanda, þróunar viðskipta við erlenda aðila og annarrar tekjusköpunar félagsins,“ segir í tilkynningu.

„Upp er runninn rétti tíminn fyrir mig til að segja skilið við forstjórastól Fossa fjárfestingarbanka. Ákvörðunin byggir bæði á rýni á stefnu Skaga og þeim áhuga mínum á að nýta krafta mína að hluta til annars konar verkefna. Við tekur nýtt og spennandi ráðgjafahlutverk fyrir Fossa með áherslu á uppbyggingu erlendra tengsla þar sem mikil tækifæri eru til sóknar,“ er haft eftir Steingrími. 

„Afrakstur stefnurýni undanfarinna vikna er skýr sýn á einföldun, samvinnu og aukna arðsemi. Breytingarnar eru mikilvægt skref til þess að samstæða Skaga verði enn betur í stakk búin til þess að uppskera til framtíðar. Einföldun á skipulagi skapar forsendur fyrir enn betri arðsemi dótturfélaga, þar sem þau fá meira svigrúm og skýrara umboð til að sinna kjarnastarfsemi sinni ásamt áherslum þvert á samstæðu,“ segir Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga. 

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×