Íþróttir, lýðheilsa og forvarnir Kristján Davíð Sigurjónsson skrifar 29. apríl 2026 08:16 Íþróttahreyfingin hefur í áratugi verið einn mikilvægasti lykillinn að forvörnum á Íslandi og gegnt lykilhlutverki við að styðja foreldra í uppeldi og þroska ungmenna. Því er áhyggjuefni að sjá hvernig hluti íþróttastarfs á landinu hefur á síðustu misserum og árum færst nær afþreyingariðnaði og frá því sem dr. Þórólfur Þórlindsson, prófessor emeritus í félagsfræði, barðist fyrir um árabil, þ.e. heilsusamlegu lífi ungs fólks án vímugjafa. Íþróttahreyfing, þar sem áfengi er orðið sýnilegra og af mörgum nú talinn sjálfsagður hluti af ,,umgjörð" íþrótta á Íslandi, grefur undan samfélaginu og víkur frá hlutverki sínu hvað forvarnir varðar. Áfengisvæðing í kringum íþróttir sendir börnum og ungmennum röng skilaboð og vinnur gegn fjölskyldum sem treysta íþróttahreyfingum fyrir börnum og ungmennum. Þannig víkur hún frá forvarnarhlutverki íþróttahreyfingarinnar sem er forsenda fyrir því að ráðstafa eigi úr opinberum sjóðum, sköttum landsmanna til hreyfinga sem vinna gegn lýðheilsumarkmiðum á Íslandi. Er það heilsueflandi bær sem stuðlar að því að hvetja til og beinlínis horfa undan þegar þessi þróun á sér stað í nærsamfélaginu?Þessir fjármunir eru gríðarlegir sem streyma frá skattgreiðendum árlega inn í íþróttastarfið. Það er ein helsta forsenda þess að íþróttir hafi uppeldis- og forvarnargildi. Íþróttahreyfingin hefur staðið sig vel í gegnum árin, en síðustu misseri hefur þróunin verið áhyggjuefni. Áfengi er orðið sýnilegt á viðburðum sem tengjast íþróttafélögum og jafnvel inn í íþróttamiðstöðvum þar sem börn æfa daglega. Þetta skapar ómarkviss skilaboð. Foreldrar, afar og ömmur verða að fara að sjá hvert í stefnir ef fram heldur sem horfir. Í lýðheilsu vitum við að umhverfi mótar hegðun og viðhorf. Þegar áfengi verður hluti af menningu sem á að standa fyrir heilbrigði og fyrirmyndir er hætta á að forvarnarhlutverk íþrótta veikist, jafnvel hverfi og endi aðallega sem veðmálaíþróttir þar sem áfengi er norm, hluti af leiknum. Hluti skýringarinnar er að efstu deildir í boltagreinum hafa á undanförnum árum þróast í átt að afþreyingariðnaði þar sem fjárhagslegir hvatar ráða miklu. Þegar slíkar áherslur smitast inn í umhverfi barna og ungmenna verður forvarnarhlutverk íþrótta óljósara og áfengisvæðing fær aukið rými.Íþróttir á Íslandi hafa alla burði til að vera áfram sterkur vettvangur forvarna. Til þess þarf að tryggja að umhverfið sem börn alast upp í sé bæði skýrt, heilbrigt og laust við þau skilaboð sem áfengi sendir. Þetta snýst um að skapa heilbrigt umhverfi fyrir börn og ungmenni til framtíðar. Hefjum baráttu og starf dr. Þórólfs Þórlindssonar, frá 9. áratugnum, aftur til vegs og virðingar þar sem íþróttahreyfingin, ríkið og sveitarfélög taki sig á í þessum efnum og víki ekki frá mikilvægi þess að börn alist upp við heilsusamlegt líferni og íþróttir. Höfundur skipar 5. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ fyrir sveitastjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Mosfellsbær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar