Íþróttabærinn Kópavogur Beitir Ólafsson skrifar 29. apríl 2026 12:45 Það er öllum ljóst að í Kópavogi er í boði eitt það öflugasta íþróttastarf sem býðst á landinu. Úrvalið er mikið og iðkendafjöldi félaga í Kópavogi er hlutfallslega sá hæsti á landinu. Starf íþróttafélagana smitast út um allan bæ, starfið vel kynnt í skólum og aðgengi að þeim mjög gott. Frístundabíllinn sem er rekinn og skipulagður af félögunum skilar börnunum úr skólum og í sína íþróttaiðkun. Íþróttafélögin standa sína plikt í þágu íbúa þar sem stefna félagana er að engin sé útundan. Það eru allir velkomnir og reynt af fremsta megni að mæta þörfum allra. Þó svo að aðgengi okkar að íþróttum innan sveitarfélagsins sé gott og við íbúar berum ekki sjáanlega hnekki af, þá er mikið og þarft ákall frá íþróttarfélögunum til sveitarfélagsins. Á þeim fundum sem við í Miðflokknum höfum setið á og átt með íþróttafélögum, þá er alveg ljóst að innviðir íþróttafélaga eru komnir að þolmörkum. Húsnæði nær ekki utan um iðkendur, starfsfólk ekki með sómasamlegar starfsaðstæður, klefamál í ólestri og ekki hafa allir aðgang að klefa til fataskipta eða sturtuiðkunar. Borið hefur á brottfalli samkynhneigðra ungmenna og þeirra sem upplifa sig öðruvísi vegna skorts á klefum við þeirra hæfi. Í þessum málum þarf sveitarfélagið að stíga inn í, eiga raunverulegt samtal við íþróttafélögin og hefja uppbyggingu í þágu íþróttafélagana svo framfaraþróun geti átt sér stað.Stjórnendur í Kópavogi virðast hafa litla sem enga tilfinningu fyrir því hvernig mál og þarfir félagana standa. Miðflokkurinn er til í samtalið sem felst líka í því að hlusta hvernig hægt er að gera betur. Íbúar Kópavogsbæjar átta sig á mikilvægi Íþróttafélaganna í bænum. Stjórnendur bæjarins hafa hinsvegar ekki náð utan um mikilvægi íþróttafélaganna og verið tregir til að hlusta á ákall frá þeim um uppbyggingu á félagasvæðum svo framfaraþróun geti átt sér stað. Félögin hafa kallað eftir deiliskipulagsbreytingu á íþróttasvæði sínu svo hægt sé að framkvæma þegar tækifæri er og kostur gefst. Því ákalli hefur ekki verið svarað af bæjaryfirvöldum og því mun biðtími eftir úrbótum lengjast meðan iðkendafjöldinn eykst. Við í Miðflokknum í Kópavogi tölum fyrir skynsemi í skipulagsmálum. Illa ígrunduð og vanhugsuð þéttingarstefna kemur niður á innviðum eins og íþróttarfélögum, sérstaklega þegar vanræksla á uppbyggingu íþróttarmannvirkja á sér stað og hún nær ekki að haldast í hendur við ört stækkandi sveitarfélag. Íþróttarfélögin eru í eigu og byggð upp af íbúum Kópavogsbæjar. Í þeim starfar fólk með hagsmuni iðkenda að leiðarljósi. Sjálfboðaliðar og foreldrar eru grunnstoðir þess að íþróttarfélögin virki sem skyldi. Það er kominn tími til að stjórnendur bæjarins vakni og fari að starfa í þágu íbúa Kópavogsbæjar. Félögin snúast um svo miklu meira en félagsmerki á byggingu. Þetta snýst um samstöðu, forvarnir, andlega og líkamlega heilsu, samverustundir fjölskyldna og vina, takast á við þau verkefni sem í boði eru og þroskast í því samfélagi sem íþróttafélögin skapa í kringum iðkendur. Við í Miðflokknum í Kópavogi viljum að íþróttum og lýðheilsu sé gert hátt undir höfði. Samtal þurfi að eiga sér stað á milli félaga og stjórnenda Kópavogsbæjar. Einnig þarf að byggja til framtíðar svo framfaraþróun íþróttafélaga geti átt sér stað og að íþróttarfélögin ráði við ört stækkandi sveitarfélag. Við viljum standa við bakið á íþróttarfélögum og vanda til verka þegar kemur að börnum með fjölþættan vanda svo hægt sé að sinna þeim að ábyrgð og kostgæfni. Íþróttir eru og eiga að vera fyrir alla. Miðflokkurinn er til í þetta samtal. Ef það skiptir þig máli settu þá X við M þann 16. maí. Höfundur býður sig fram í 3. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar