Stöðnun? Tölum um staðreyndir Bjarni Halldór Janusson skrifar 29. apríl 2026 18:33 Að undanförnu hafa ákveðnir frambjóðendur haldið því fram að Reykjanesbær hafi setið eftir og að hér ríki stöðnun. Sú mynd stenst hins vegar illa þegar horft er til þróunar síðustu ára. Reykjanesbær hefur vaxið hratt og íbúum fjölgað um nær þúsund á ári, eða um 60% síðasta áratuginn. Þessi vöxtur hefur kallað á umfangsmikla uppbyggingu í innviðum og þjónustu, sem hefur á sama tíma mótað ný og lifandi hverfi í bæjarfélaginu. Byggð hefur verið glæsileg íþróttaaðstaða í Innri-Njarðvík, nýr skóli sem telst meðal þeirra glæsilegustu á landinu, öflugt bókasafn og vinsæl sundlaug sem nýtist samfélaginu daglega. Stórsókn hefur verið gerð í leikskólamálum með byggingu þriggja nýrra leikskóla og innritun barna hafin við 18 mánaða aldur. Þetta endurspeglar raunverulegan vöxt samfélagsins og er þó aðeins brot af því sem hefur verið gert. Allt þetta hefur verið gert á traustum grunni. Jafnvægi hefur náðst í rekstri og sveitarfélagið hefur skilað góðum afgangi ár eftir ár síðasta áratuginn, að jafnaði um einn til tvo milljarða á ári. Staðan er enn sterkari þegar horft er til samstæðunnar. Hún hefur aldrei verið jafn vel rekin og skuldahlutfallið er nú það lægsta frá aldamótum, sem það hefur verið allt kjörtímabilið. Skuldaviðmið er í kringum 100% og því vel undir lögbundnu 150% hámarki og skuldahlutfall hefur lækkað hratt frá árinu 2014. Skuldahlutfall samstæðu hefur farið úr um 250% niður í 140% og skuldahlutfall bæjarsjóðs er nú í kringum 120% samkvæmt síðasta ársreikningi. Það er ekki mynd af stöðnun heldur ábyrgri fjármálastjórn. Þetta hefur ekki gerst í tómarúmi. Á undanförnum árum hafa bæði ytri áföll og óvenjulegar aðstæður haft áhrif á samfélagið og starfsemi sveitarfélagsins, þar á meðal veirufaraldur, eldsumbrot og erfið staða í flugi. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda rekstri sterkum og halda áfram umfangsmikilli uppbyggingu á sama tíma. Það að sveitarfélag standi í slíku álagi og haldi samt áfram með þessum hætti segir meira en óljósar fullyrðingar um stöðnun. Það vekur jafnframt athygli að þessir atburðir eru oft nefndir til að réttlæta hallarekstur fyrri ríkisstjórnar, en liðsmenn hennar viðurkenna þó ekki sömu áföll sem raunverulega áskorun fyrir sveitarfélag sem stóð í eldlínunni. Þar liggur ákveðin mótsögn. Þetta þýðir ekki að allt sé fullkomið eða að engu megi breyta í bænum. Þvert á móti. Það eru alltaf verkefni fram undan, nýjar áskoranir og svigrúm til umbóta. En ábyrg og heiðarleg umræða verður að byggja á staðreyndum og staðreyndir breytast ekki eftir flokkslitum. Einn plús einn er alltaf tveir. Við getum verið ósammála um áherslur og leiðir, en mat á stöðu sveitarfélagsins verður að byggja á raunverulegum gögnum og heildarmynd. Reykjanesbær hefur vaxið hratt, byggt upp sterka innviði og haldið fjárhagslegum aga á sama tíma. Það er sú mynd sem þarf að horfa til þegar framtíðin er mótuð. Höfundur er stjórnmálafræðingur og frambjóðandi á lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Halldór Janusson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar