Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar 29. apríl 2026 23:30 Viljum við fólk sem þorir að segja það sem þarf að segja ? Nú líður að því að landsmenn gangi að kjörborðinu og kjósi sér fulltrúa í borgarstjórn og sveitarstjórnum um allt land. Þá vandast nú valið. En við þurfum að velja og sá á kvölina sem á völina. Öll viljum við betra samfélag með góðum samgöngum, betri gjaldfrjálsum leikskólum, grunnskóla sem mæta börnum á þeirra stað, án aðgreiningar. Félagsþjónustu sem sinnir þeim sem þurfa þjónustu af alúð og nærgætni. Heilbrigðiskerfi sem virkar með starfsfólki með hjartað á réttum stað. Græn svæði, umhverfisvæn og umvefjandi. Bara betri heim með betra fólki ? Viljum við fólk sem þorir að segja það sem þarf að segja ? Fólk sem vill vel og þorir að opna munninn og jafnvel ganga í verkin sem þarf að græja ? Fólk sem hefur djörfung og dug ? Má það ? Ég held bara ekki. Eftir að hafa hlustað á forstjóra LSH á starfsmannafundi er ég hugsi. Rætt var um hagræðingu og rekstur. Nýjan spítala, gámana sem nú rísa í Fossvogi sem er alveg ný bráðamóttaka, líkt og skólastofurnar sem hafa verið reistar við grunnskóla landsins þegar mygla eða þrengsli hafi valdið vanda. Já skellum þeim bara í gámana. Það má vissulega spara á LSH og ég hef bent á leiðir til þess. Þegar ég var formaður Læknaràðs Landspítalans sem var og hét. Þegar ég sat í stjórn Læknafélags Reykjavíkur var mér kurteisislega bent á að það væri líklega bara best að þegja. Ekki vera að minnast á það að þú verður óvart yfirlæknir og þiggur laun sem slíkur á kostnað LSH þegar þú ert prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, jafnvel þó að þú skoðir aldrei sjúkling, þá eru laun þín tvöföld, má spara þar ? Svo mátti ég alls ekki minnast á að stóra byggingin sem nú byrgir okkur sýn í Vatnsmýrinni væri á röngum stað. Það var svo mikilvægt að prófessorarnir þyrftu stutt að ganga milli Læknagarðs og LSH. En nú er í lagi að segja en ekki þegja. Þegar fólki í hlutastarfi sem þorir að segja það sem þeim í brjósti ber er í launalausu leyfi er vikið úr starfi vegna “hagræðingar “ það er ekki í lagi. Kæru kjósendur munið að kjósa það fólk sem þorir að segja. Það er ekki bara betra að þegja. Höfundur er læknir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ebba Margrét Magnúsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar