Hafnarfjörður, höfnin, samgöngur og samfélagið Guðmundur Fylkisson skrifar 30. apríl 2026 09:23 Ný tækifæri við Straumsvík. Við erum komin á þann stað að þurfa að taka skref til stækkunar á hafnarsvæðinu okkar til að þjóna betur stærri skipum sem sjá um flutninga til og frá landinu. Frá því rétt eftir árið 2000 hefur stækkun Straumsvíkurhafnar verið á skipulagi. Fyrir nokkrum árum fóru í gang áform um stórfellda uppbyggingu þar í tengslum við Carbfix-verkefnið og var þá farið í umhverfismat fyrir höfnina. Þótt þau áform verði ekki í Hafnarfirði, þá hefur sú vinna vakið vonir um nýja höfn. Þannig er hægt að nýta umhverfismatið sem þegar liggur fyrir í að uppfæra hönnun á nýrri höfn sem nýtist fyrir vöru- og efnisflutninga. Bærinn sá til þess að Vegagerðinn bætti við undirgöngum svo greið leið væri frá höfninni upp á iðnaðarsvæðið, til þess að sú umferð blandaðist ekki við almenna umferð um Reykjanesbraut. Kosturinn við svæðið þar sem nýja höfnin á að koma er að það er aðdjúpt fyrir innsiglingu, tryggð 12 metra dýpt, en uppbyggingin yrði að stórum hluta til á skerjum þannig að minni kostnaður verður við uppfyllingar og það að búa til landsvæði. Framsókn í Hafnarfirði vill að farið verði strax í það á nýju kjörtímabili að huga að þessum framkvæmdum. Þetta mun taka tíma og þetta mun kosta peninga. Með því að hefja framkvæmdir, veglagningu og brimvarnargarða, er hægt að búa til svæði sem tekur við jarðefni annars staðar í bæjarfélaginu vegna framkvæmda í stað þess að slíku efni sé ekið t.d. upp í Bolöldu og hefur það áhrif á umferð og loftslag m.a. Hafnir eru mikilvægar fyrir atvinnulífið Í dag er það svo að um Hafnarfjarðarhöfn, sér í lagi Hvaleyrarbakka, er inn og útflutningur á jarðefnum, brotajárni og byggingarefnum. Við erum með Hringrás og Furu og þaðan er útflutningur á járni og hjólbörðum til endurvinnslu. Við erum með steypustöðvar sem flytja inn sement, steypujárn og jafnvel möl. Við erum með malbikunarstöð sem flytur inn jarðefni til malbikunar og síðan er það saltið. Við hvert skip sem er að koma með hráefni eða sækja endurvinnsluefni verða til tugir, hundruðir eða jafnvel þúsundir ferða vörubíla frá höfninni, upp Ásbrautina/Strandgötuna, upp á Reykjanesbraut og síðan Krýsuvíkurveg. Á ári hverju telja þessar ferðir tugþúsundir, fram og til baka, og skiptir það máli í tengslum við samgöngumál í bænum og til frá höfninni. Sjálfstæður og öflugur rekstur Höfnin er sjálfstæður aðili innan bæjarkerfisins. Höfnin er vel rekin, með góðu starfsfólki, framkvæmir fyrir eigið fé á hverju ári og skilar góðum afgangi. Höfnin greiðir ekki arð til bæjarins. Þurfi höfnin að taka lán t.d. vegna framkvæmda þá hefur það áhrif á stöðu bæjarsjóðs í heild sinni og skuldastaða bæjarins versnar. Það er ekki nóg að stækka Straumsvíkurhöfn. Það þarf líka að bæta við hafnsögubáti sem hefur burði til að taka við stærri skipum. Nýr eða notaður dráttarbátur/hafnsögubátur kostar nokkur hundruð milljónir. Síðasta framkvæmd við stækkun á Hafnarfjarðarhöfn var Hvaleyrarbakki, þar sem dokkurnar eru og flutningskip koma að. Það var fyrir um 25 árum síðan og þegar saga hafnarinnar er skoðuð þá hafa stórframkvæmdir komið á 25 ára fresti. Sú framkvæmd greiddi sig upp á hálfum öðrum áratug, þ.e. tekjurnar af notkuninni greiddu til baka kostnaðinn við framkvæmdirnar. Framkvæmdir sem eru í gangi Á þessu ári er verið að klára endurbyggingu Norðurgarðs og erum mjög stolt af þeirri framkvæmd. Byrjað er á dýpkun vegna Hamarshafnar en þar verða rúmlega 60 stæði fyrir skemmtibáta auka pláss fyrir t.d. hvalaskoðunarbáta og svo þjónustuhús. Eins er verið að sinna viðhaldi á Suðurbakka en þilið þar er orðið götótt. Jafnframt er verið að vinna að útfærslu á 80 metra lengingu á Hvaleyrarbakka, þar sem hann kemur að olíugarðinum en með þeirri stækkun getum við þjónað enn betur stækkandi fiskiskipum sem sækja þjónustu til okkar í auknum mæli. Skemmtiferðaskipum fjölgar hjá okkur en á þessu ári er gert ráð fyrir rúmlega 30 skipakomum en voru 19 í fyrra og á þessu ári verður bætt úr aðstöðu fyrir farþega sem bíða þess að komast um borð. Tekjurnar skapast með því að veita góða þjónustu og eftirspurnin eykst þegar við veitum góða þjónustu og höfum góða aðstöðu. Það er ekki bara hagur Hafnarsjóðs, það hefur líka góð áhrif á bæjarsjóð því fyrirtæki sækjast eftir því að koma í Hafnarfjörð og með fyrirtækjum verða til atvinnutækifæri í okkar heimabyggð. Þetta snýst nefnilega um Hafnarfjörð, fólkið og fyrirtækin. Höfundur er formaður hafnarstjórnar Hafnarfjarðarhafnar og skipar 5. Sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Fylkisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Seðlabankastjóri og stríðsöxin Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson skrifar Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson skrifar Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski skrifar Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun