Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 30. apríl 2026 11:10 Viljum við auka aðgengi barna að sjónum og öðrum náttúruperlum borgarinnar? Viljum við að börn og ungmenni fái raunveruleg tækifæri til að kynnast hafinu, læra á það og njóta þess? Ef svarið er já, þá verðum við að byggja upp aðstöðuna til þess. Siglunes hefur sannað gildi sitt Siglunes hefur í nærri sex áratugi verið mikilvægur vettvangur fyrir frístundastarf barna og ungmenna í Reykjavík. Þar hafa kynslóðir barna farið á sumarnámskeið og kynnst siglingum, kajakróðri og öðru vatnasporti í öruggu umhverfi. Samt hefur framtíð Sigluness of lengi verið í lausu lofti. Fyrir nokkrum árum stóð til að loka starfseminni, en þá tókst að verja hana eftir baráttu fólks sem vildi vernda starfsemina og Framsóknar innan þáverandi meirihluta. Sá varnarsigur er þó ekki nóg. Það þarf að renna traustum stoðum undir starfsemina til framtíðar. Framsókn vill byggja Siglunes upp Í dag er aðgengið að sjónum of takmarkað, en möguleikarnir til að auka aðgengi fólks að haftengdri upplifun eru gríðarlegir í Reykjavík. Sumarnámskeiðin í Siglunesi hafa verið vinsæl og eftirspurnin oft meiri en pláss leyfir. Framsókn vill fjölga sumarnámskeiðum í Siglunesi og auka aðgengi grunnskóla að svæðinu á vorin og haustin. Í Siglunesi er þegar til staðar búnaður og reynsla af vatnasporti. Þar eru því mikil tækifæri til að gera vatnasport að raunverulegum valkosti fyrir fleiri borgarbúa með því að bjóða upp á kayakleigu, námskeið fyrir almenning og fjölbreyttara frístundastarf fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Sjórinn er hluti af Reykjavík og borgarbúar eiga að geta nýtt hann á öruggan og skipulagðan hátt. Framsókn vill tryggja rekstrargrundvöll Sigluness, bæta aðstöðuna fyrir barnastarf og opna svæðið fyrir fleiri. Byggjum líka upp aðstöðu fyrir siglingar Ný brú yfir Fossvog mun takmarka verulega siglingar inn Fossvoginn og því þarf að horfa til þess að byggja upp nýja aðstöðu fyrir siglingar í Reykjavík. Ef Reykjavík ætlar að vera borg þar sem haftengd upplifun og siglingar fá raunverulegt rými, þarf að byggja upp góða siglingaraðstöðu. Á næsta kjörtímabili þarf því að ráðast í skipulagningu framtíðarsvæðis siglinga í borginni í samstarfi við siglingaklúbba. Opnum dyrnar Framsókn vill að Reykjavík verði borg þar sem börn hafa aðgang að sjónum, náttúrunni og fjölbreyttu frístundastarfi. Ef við viljum útilíf í borginni, þá verðum við að byggja upp aðstöðuna. Þess vegna vill Framsókn byggja Siglunes upp og renna styrkum stoðum undir framtíð siglinga í Reykjavík. Setjum X við B. Höfundur er í 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar