Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar 1. maí 2026 09:32 1.maí er mikilvægur dagur í kjarabaráttu verkafólks þar sem vakin er athygli á þeim kaupum og kjörum sem vinnandi fólk fær fyrir starfsframlag sitt. Fólkið sem í langflestum tilfella heldur samfélaginu gangandi með sínu, oft ósýnilega, vinnuframlagi. Hvernig sem dæmi væri umhorfs á sjúkrahúsunum ef enginn skúraði gólfin? Þvotturinn væri ekki þveginn? Salernin ekki þrifin? Og svo mætti lengi telja. Ég er ansi hrædd um að starfsemi sjúkrahússins myndi leggjast fljótt niður, því ekki er hægt að framkvæma skurðaðgerðir í skítugri skurðstofu. Ráðafólk og seðlabankastjóri tala iðulega um að stilla verði kröfum um launahækkanir í hóf til að verðbólgan blási ekki upp, því það er jú svo verðbólgumyndandi að fólk hafi í sig og á. Hvað þá að fólk geti leyft sér munað eins og að fara til tannlæknis, sérfræðilæknis, fara í klippingu/snyrtingu, bíó, leikhús eða tónleika. Eins má ekki gleyma fötluðu fólki og öldruðum í þessari baráttu. Öryrkjar voru vinnuafl áður en veikindi eða slys svipti þau heilsunni og getunni til að vera á vinnumarkaði, og margir hverjir eru þó engu að síður enn virkir á vinnumarkaði. Aldraðir eru fólkið sem byggði upp landið og vann baki brotnu frá unga aldri, því er skömm af því hve margir í þeim hópi eiga um sárt að binda. En af hverju er ástandið eins og það er? Jú, húsnæðiskostnaður er stjarnfræðilegur og stærsti útgjaldaliður heimilanna, húsnæðisstuðningur hrekkur skammt, sér í lagi þegar sá stuðningur rennur beina leið út í leiguverðið sem tekur hækkunum í hverjum mánuði. Leiguþak eða leigubremsa er eina leiðin til að stemma stigu við brjáluðum húsnæðismarkaði.Matarkarfan hækkar stöðugt svo matarkarfan verður rýrari hjá þeim sem þurfa að telja hverja krónu margsinnis áður en henni er ráðstafað. En hvað er til ráða? Betri kjör fela ekki alltaf í sér hækkun launa því hægt er að bæta líf og lífskjör fólks með ýmsum öðrum hætti, þar er húsnæðisliðurinn stærsta breytan, stytting vinnuvikunnar er önnur og lækkun matarkörfunnar skilar sér í hollari og betri mat á borð fólks. Hættum að bjóða tekjulægstu hópum samfélagsins að vera breiðu bökin og komum fram við þau af virðingu. Bætum lífsskilyrði fólks og komum í veg fyrir að þau bugist undan álaginu. Höfundur skipar 4.sæti á lista Sósíalistaflokks Íslands í borgarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sósíalistaflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Verkalýðsdagurinn Mest lesið Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
1.maí er mikilvægur dagur í kjarabaráttu verkafólks þar sem vakin er athygli á þeim kaupum og kjörum sem vinnandi fólk fær fyrir starfsframlag sitt. Fólkið sem í langflestum tilfella heldur samfélaginu gangandi með sínu, oft ósýnilega, vinnuframlagi. Hvernig sem dæmi væri umhorfs á sjúkrahúsunum ef enginn skúraði gólfin? Þvotturinn væri ekki þveginn? Salernin ekki þrifin? Og svo mætti lengi telja. Ég er ansi hrædd um að starfsemi sjúkrahússins myndi leggjast fljótt niður, því ekki er hægt að framkvæma skurðaðgerðir í skítugri skurðstofu. Ráðafólk og seðlabankastjóri tala iðulega um að stilla verði kröfum um launahækkanir í hóf til að verðbólgan blási ekki upp, því það er jú svo verðbólgumyndandi að fólk hafi í sig og á. Hvað þá að fólk geti leyft sér munað eins og að fara til tannlæknis, sérfræðilæknis, fara í klippingu/snyrtingu, bíó, leikhús eða tónleika. Eins má ekki gleyma fötluðu fólki og öldruðum í þessari baráttu. Öryrkjar voru vinnuafl áður en veikindi eða slys svipti þau heilsunni og getunni til að vera á vinnumarkaði, og margir hverjir eru þó engu að síður enn virkir á vinnumarkaði. Aldraðir eru fólkið sem byggði upp landið og vann baki brotnu frá unga aldri, því er skömm af því hve margir í þeim hópi eiga um sárt að binda. En af hverju er ástandið eins og það er? Jú, húsnæðiskostnaður er stjarnfræðilegur og stærsti útgjaldaliður heimilanna, húsnæðisstuðningur hrekkur skammt, sér í lagi þegar sá stuðningur rennur beina leið út í leiguverðið sem tekur hækkunum í hverjum mánuði. Leiguþak eða leigubremsa er eina leiðin til að stemma stigu við brjáluðum húsnæðismarkaði.Matarkarfan hækkar stöðugt svo matarkarfan verður rýrari hjá þeim sem þurfa að telja hverja krónu margsinnis áður en henni er ráðstafað. En hvað er til ráða? Betri kjör fela ekki alltaf í sér hækkun launa því hægt er að bæta líf og lífskjör fólks með ýmsum öðrum hætti, þar er húsnæðisliðurinn stærsta breytan, stytting vinnuvikunnar er önnur og lækkun matarkörfunnar skilar sér í hollari og betri mat á borð fólks. Hættum að bjóða tekjulægstu hópum samfélagsins að vera breiðu bökin og komum fram við þau af virðingu. Bætum lífsskilyrði fólks og komum í veg fyrir að þau bugist undan álaginu. Höfundur skipar 4.sæti á lista Sósíalistaflokks Íslands í borgarstjórnarkosningum.
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar