Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir og Ólafía Ingólfsdóttir skrifa 1. maí 2026 14:03 Eldra fólk er ómetanlegur hluti samfélagsins í Árborg. Þetta er hópur sem hefur byggt upp samfélagið okkar og lagt sitt af mörkum í gegnum árin. Því er mikilvægt að sveitarfélagið leggi áherslu á að þjónusta, umhverfi og tækifæri taki mið af þörfum eldri íbúa. Við viljum sjá samfélag þar sem fólk getur lifað sjálfstæðu lífi sem lengst, við góðar aðstæður og haft tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu. Félagsstarf eldri borgara er öflugt og mikilvægt, en það nær ekki til allra. Því þarf að tryggja fjölbreytt tækifæri til virkni og þátttöku, sem taka mið af ólíkum þörfum fólks. Einnig er mikilvægt að huga að þeim sem flytja í sveitarfélagið á efri árum. Aðstæður fólks eru mismunandi og því skiptir máli að móttakan sé góð, upplýsingar skýrar og aðgengilegar og að eldra fólk finni sig velkomið og geti tekið þátt í samfélaginu frá fyrsta degi. Stuðningur við aðstandendur og aðgengi að þjónustu Aðstandendur standa oft einir þegar á reynir. Þegar veikindi eða færniskerðing kemur upp breytist líf heillar fjölskyldu. Makar og börn taka á sig aukna ábyrgð, oft án þess að vita hvert á að leita eða hvaða úrræði eru í boði. Hér er mikilvægt að bæta aðgengi að upplýsingum og styrkja stuðning við aðstandendur. Tengiráðgjöf í Árborg hefur sýnt hversu miklu máli skiptir að fólk þurfi ekki að standa eitt og velta fyrir sér hvert það á að leita. Öflug tengiráðgjöf styrkir ekki aðeins aðgengi að úrræðum heldur einnig virkni og félagsleg tengsl eldra fólks. Mikilvægt er að byggja áfram á þeirri góðu vinnu. Umhverfi, lífsgæði og framtíðarsýn Daglegt umhverfi skiptir miklu máli fyrir lífsgæði. Gönguleiðir og útivistarsvæði í nærumhverfinu eiga að hvetja til hreyfingar og vera aðgengileg fyrir alla. Það þarf að vera auðvelt að fara út, ganga í rólegheitum og setjast niður þegar þörf krefur. Slík atriði eru grunnur að góðum lífsgæðum. Í kosningabaráttunni heyrum við oft loforð um öfluga þjónustu, en það sem skiptir máli er hvernig hún virkar í raun. Þetta snýst um daglegt líf eldra fólks. Við viljum tryggja að þjónusta sé skýr, aðgengileg og til staðar þegar fólk þarf á henni að halda. Við viljum einfalda upplýsingagjöf, styrkja tengiráðgjöf og styðja betur við aðstandendur, ásamt því að skapa fleiri tækifæri til virkni. Þá leggjum við einnig áherslu á að bæta nærumhverfi fólks og móttöku nýrra íbúa. Markmiðið er skýrt: Árborg á að vera samfélag þar sem fólk getur lifað góðu og sjálfstæðu lífi og tekið þátt í samfélaginu. Höfundar skipa 2. og 11. sæti á B lista Framsóknar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Árborg Eldri borgarar Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar