„Gerist eiginlega ekki betra“ Árni Gísli Magnússon skrifar 2. maí 2026 19:13 Hallgrímur Mar skoraði sigurmark KA í Akureyrarslagnum. vísir / vilhelm KA vann dramatískan sigur á nágrönnum sínum í Þór þegar liðin mættust á VÍS-vellinum í Þopinu í fimmtu umferð Bestu deildar karla.Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu undir lok leiks og var gripinn í viðtal að leik loknum.
Hvernig eru tilfinningarnar eftir þennan dramatíska sigur? „Þær eru mjög lúffengar, bara þrjú stig og Akureyrarslag og sigurmark í lokin þannig það bara gerist eiginlega ekki betra.“ Er þetta draumastaða, að taka víti í lokin í þessum stóra leik með allt undir? „Ég get sagt það af því ég skoraði úr því, en það var smá stressandi, ég hefði viljað vera bara tvö, þrjú núll yfir, skora nokkur mörk og hafa þetta öruggan sigur en þetta er sætara svona.“ Leikurinn var sá fyrsti milli liðanna í efstu deild í 24 ár og eftirvæntingin mikil og stemningin í stúkunni var svakaleg. „Bara geggjað að spila þetta, góður stuðningur báðu megin, banterar í stúkunni sem er bara mjög gaman og ég held að það gerist ekkert betra fyrir þessi lið tvö hérna en að spila svona leiki.“ Fyrsti sigurleikur KA Þetta var fyrsti sigurleikur KA á tímabilinu sem hafði hingað til aðeins eitt stig eftir fjóra leiki og segir Hallgrímur margt hafa vantað upp á í leik liðsins sem var betra í dag. „Við höfum bara ekki spilað eins og í dag. Ef við leggjum ekki inn vinnuna eigum við ekkert skilið og við voru aumingjar á móti Keflavík. Við nennum að berjast aðeins í dag þó að Þór hafi líka fengið sín færi og allt það en við endum á að sigra af því við nennum að berjast og ætlum bara að halda því áfram. Það er ekkert gefins í þessu.“ Að drepast í mjöðminni Næsti leikur gegn er heimaleikur gegn ÍBV á sunnudaginn eftir rúma viku og því líklegt að KA liðið fái leyfi til að fagna aðeins í kvöld. „Ég þarf fyrst og fremst að fá verkjastilli. Ég er búinn að vera drepast í mjöðminni og þarf bara að hugsa um það, ég er ekki að fara á djammið í kvöld þó við getum fagnað þessu og þó það sé laugardagur. Ég þarf að fá einhver verkjalyf og vera klár í næsta leik og menn mega fagna þessu eins og þeir vilja í kvöld held ég, bara passa sig í bænum.“ Hallgrímur er eðlilega ánægður með að bærinn sé gulur og blár fram í lok júli hið minnsta en þá mætast liðin öðru sinni. Hann er þó með báða fætur á jörðinni. „Það er bara mjög gaman en þessi sigur gefur okkur samt ekkert nema þrjú stig, við þurfum að halda áfram. Þeir eru enn fyrir ofan okkur í töflunni en við förum upp fyrir þá fljótlega.“
KA Besta deild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Sjá meira