Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar 3. maí 2026 08:33 Við sem búum í sveitarfélaginu Árborg eigum flest sameiginlegt að hafa á einhverjum tímapunkti staðið fram fyrir því að velja okkur búsetu. Við völdum öll það samfélag sem við töldum best að tilheyra, til að ala upp börnin okkar og eldast. Árborg býr yfir gæðum sem laða að. En hvað fylgir því að búa í gæðasamfélagi? Tíðindi síðustu daga eru að rekstur sveitarfélagsins er upp á við, sem er vel. En það er engin fjármálasnilld þar að baki sem sneri rekstrinum við. Það er búið að fara yfir það. Leitað var til íbúa um að leysa vandann. Svo má halda því til haga að það á ekki að teljast til afreka að reka opinberan sjóð yfir núllinu. Gæðastefna En hvað svo? Verkefni næstu ára er tryggja að við lærum af þessu og sjá til þess að sagan endurtaki sig ekki. Sem einstaklingar í framboði til að leiða sveitarfélagið ber okkur skylda að setja okkur gæðastefnu og skýrt verklag, ekki bara í fjármálum sveitarfélagsins, heldur í allri ákvarðanatöku. Við viljum skýra og gagnsæja gæðaferla. Þetta er ekki bara til að tryggja jafnræði heldur einnig jafnrétti í ákvarðanatöku. Hvort sem er um ræðir afgreiðslu mála eða upplýsingaflæði til íbúa. Framtíðarsýn Hvernig verðum við góð, og svo best? Ákvarðanir teknar í dag þurfa að eldast vel, jafnvel þó litið sé tugi ára fram í tímann. Gæði í ákvarðanatöku og verkferlum tryggja, svo dæmi sé tekið, að ákvarðanir teknar á stjórnsýslustigi bori ekki gat í veski íbúa. Við eigum að nýta okkur tæknina til að styðja starfsfólk, bæta ákvarðanatöku og tryggja betri nýtingu almannafjár. Slík nálgun er ekki aðeins grundvöllur góðrar stjórnsýslu, heldur lykillinn að því að skapa gæðasamfélag þar sem fólk vill búa til framtíðar. Því það er jú ástæða þess að við völdum að búa hér, ala upp börnin okkar og eldast. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Árborg Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Árborg Viðreisn Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Við sem búum í sveitarfélaginu Árborg eigum flest sameiginlegt að hafa á einhverjum tímapunkti staðið fram fyrir því að velja okkur búsetu. Við völdum öll það samfélag sem við töldum best að tilheyra, til að ala upp börnin okkar og eldast. Árborg býr yfir gæðum sem laða að. En hvað fylgir því að búa í gæðasamfélagi? Tíðindi síðustu daga eru að rekstur sveitarfélagsins er upp á við, sem er vel. En það er engin fjármálasnilld þar að baki sem sneri rekstrinum við. Það er búið að fara yfir það. Leitað var til íbúa um að leysa vandann. Svo má halda því til haga að það á ekki að teljast til afreka að reka opinberan sjóð yfir núllinu. Gæðastefna En hvað svo? Verkefni næstu ára er tryggja að við lærum af þessu og sjá til þess að sagan endurtaki sig ekki. Sem einstaklingar í framboði til að leiða sveitarfélagið ber okkur skylda að setja okkur gæðastefnu og skýrt verklag, ekki bara í fjármálum sveitarfélagsins, heldur í allri ákvarðanatöku. Við viljum skýra og gagnsæja gæðaferla. Þetta er ekki bara til að tryggja jafnræði heldur einnig jafnrétti í ákvarðanatöku. Hvort sem er um ræðir afgreiðslu mála eða upplýsingaflæði til íbúa. Framtíðarsýn Hvernig verðum við góð, og svo best? Ákvarðanir teknar í dag þurfa að eldast vel, jafnvel þó litið sé tugi ára fram í tímann. Gæði í ákvarðanatöku og verkferlum tryggja, svo dæmi sé tekið, að ákvarðanir teknar á stjórnsýslustigi bori ekki gat í veski íbúa. Við eigum að nýta okkur tæknina til að styðja starfsfólk, bæta ákvarðanatöku og tryggja betri nýtingu almannafjár. Slík nálgun er ekki aðeins grundvöllur góðrar stjórnsýslu, heldur lykillinn að því að skapa gæðasamfélag þar sem fólk vill búa til framtíðar. Því það er jú ástæða þess að við völdum að búa hér, ala upp börnin okkar og eldast. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Árborg
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar