Flokkur fólksins þorir og getur Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 3. maí 2026 18:02 Kjörorð Flokks fólksins hefur frá upphafi verið „fólkið fyrst og svo allt hitt.“ Meginmarkmið flokksins með þátttöku í ríkisstjórn var og er að berjast fyrir málefnum venjulegs fólks. Á rúmu ári höfum við náð í gegn málum sem hafa raunveruleg áhrif. Þetta er er sömuleiðis leiðarljós í framboði Flokks fólksins til borgarstjórnar. Reynslan sýnir svo ekki verður um villst að litlir flokkar geta knúið fram stór mál þegar viljinn er fyrir hendi. Í stjórnmálum skiptir nefnilega höfuðmáli að flokkar og frambjóðendur muni hverra erinda þeir ganga. Flokkur fólksins berst fyrir fyrst og fremst fyrir bættum kjörum og öryggi þeirra sem vilja gleymast og setur málefni þeirra framar sérhagsmunum. Berst fyrir hagsmunum þeirra sem eru fastir í fátæktargildrum. Flokkur fólksins hefur sýnt og sannað að hann stendur með eldra fólki, öryrkjum, fötluðu fólki, barnafjölskyldum, foreldrum í áföllum og þeim sem alfarið treysta á velferðarkerfið sér til framfærslu. Í Reykjavík eru verkefnin skýr. Þar þarf að verja grunnþjónustuna, efla þjónustu við eldri borgara, hraða uppbyggingu hjúkrunarheimila og dagdvalarúrræða, tryggja húsnæðisöryggi fyrir tekjulægri hópa. Þessar áherslur koma skýrt fram í stefnumiðum Flokks fólksins í Reykjavík. Þetta eru ekki innantóm loforð eins og árangur okkar á stuttu tíma í ríkisstjórn sýnir svo glöggt. Það mun efla störf okkar í borgarstjórn að vera í nánu samstarfi við ráðherra Flokks fólksins, Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra. Sameiginlega getum við lyft grettistaki í öllum megin áherslumálum okkar. Hvort sem um er að ræða húsnæðismál, velferðarmál, samgöngur, málefni barnafjölskyldna eða þjónustu við eldri borgara. Flokkur fólksins hefur heldur betur látið verkin tala í ríkisstjórn. Hann hefur knúið fram grundvallarbreytingar þannig að fólk sem reiðir sig á greiðslur almannatrygginga þurfi sitji ekki eftir þegar aðrir hópar hækka í tekjum. Við höfum líka séð umbætur sem tala beint inn í líf fjölskyldna á viðkvæmustu stundum. Ný lög um sorgarleyfi, aukinn réttur fjölburaforeldra og bætt staða kvenna sem glíma við alvarleg veikindi á meðgöngu eru dæmi um aðgerðir sem standa með fólki þegar mest á reynir. Og tæpi ég hérna aðeins á örfáum atriðum. Næsta skref er að fylgja sams konar málum kröftuglega eftir í Reykjavík. Við munum beita okkur af sama afli fyrir hagsmunum þeirra íbúa borgarinnar sem aðrir flokkar láta sitja á hakanum eða gleyma í vörnum fyrir sérhagsmuni. Við ætlum að hraða uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði, efla Félagsbústaði, skera niður biðlistana, bjóðum raunhæfar og sanngjarnar lausnir í leikskólamálum sem tryggja að börn fái þá þjónustu sem þeim ber. Reykjavík á að vera borg sem fyrst og fremst hefur það hlutverk að þjóna íbúum sínum. Borg sem setur grunnþjónustu, húsnæði, öryggi, skóla, velferð og virðingu fólks í fyrsta sæti. Borg þar sem Flokkur fólksins lætur verkin tala. Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guðmundur Ingi Þóroddsson Flokkur fólksins Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar