Fleiri fána! Guðmundur Edgarsson skrifar 4. maí 2026 06:15 Orð Snorra Mássonar þingmanns fyrir nokkru um notkun hins litskrúðuga fjölbreytileikafána í skólum landsins vöktu sterk viðbrögð víða í samfélaginu. Fánanum er reglulega flaggað við skóla, sem og hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum. Sumir töldu að með ummælum sínum hefði Snorri sýnt fordóma í garð hinsegin fólks, en aðrir lásu þau sem gagnrýni á undirliggjandi vinstri-vók hugmyndafræði sem beint sé að nemendum. Snorri hefur jafnframt bent á að íslenska fánanum sé ekki flaggað nægilega oft, sjónarmið sem margir hafa tekið undir. Þá eru einnig þeir sem kalla eftir fánum sem endurspegla önnur gildi en fjölbreytileikafáninn og íslenski fáninn, til dæmis grænfána sem tákn umhverfisverndar. Ljóst er að skiptar skoðanir ríkja um þetta fánamál. En til allrar hamingju er til lausn. Stóraukum fjölbreytileikann í fánaflórunni! Til viðbótar við íslenska fánann, grænfánann og fjölbreytileikafánann mætti til dæmis flagga fánum friðar, kærleika og málfrelsis. Friðarfáni myndi senda skýr skilaboð um að skólinn sé öruggur griðarstaður þar sem ofbeldi og ófriður eru ekki liðin. Fáni kærleikans undirstrikaði gildi umhyggju, velvildar og virðingar, svo nemendur væru í engum vafa um mikilvægi þeirra. Málfrelsisfáni myndi minna á að nemendur geti – innan marka velsæmis – tjáð skoðanir sínar frjálslega og óttalaust. Skólinn á jú að hvetja til opinnar og gagnrýninnar umræðu sem stuðlar að þroska nemenda. Og þannig mætti halda áfram: fánar samheldni, sköpunar og hamingju, sem dæmi. Best væri að flagga sem flestum slíkum fánum við skóla landsins allt árið um kring. Þannig fengju flestir fána að eigin skapi. Þá fyrst nyti fjölbreytileikinn sín í allri sinni dýrð! Höfundur er kennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslenski fáninn Hinsegin Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Orð Snorra Mássonar þingmanns fyrir nokkru um notkun hins litskrúðuga fjölbreytileikafána í skólum landsins vöktu sterk viðbrögð víða í samfélaginu. Fánanum er reglulega flaggað við skóla, sem og hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum. Sumir töldu að með ummælum sínum hefði Snorri sýnt fordóma í garð hinsegin fólks, en aðrir lásu þau sem gagnrýni á undirliggjandi vinstri-vók hugmyndafræði sem beint sé að nemendum. Snorri hefur jafnframt bent á að íslenska fánanum sé ekki flaggað nægilega oft, sjónarmið sem margir hafa tekið undir. Þá eru einnig þeir sem kalla eftir fánum sem endurspegla önnur gildi en fjölbreytileikafáninn og íslenski fáninn, til dæmis grænfána sem tákn umhverfisverndar. Ljóst er að skiptar skoðanir ríkja um þetta fánamál. En til allrar hamingju er til lausn. Stóraukum fjölbreytileikann í fánaflórunni! Til viðbótar við íslenska fánann, grænfánann og fjölbreytileikafánann mætti til dæmis flagga fánum friðar, kærleika og málfrelsis. Friðarfáni myndi senda skýr skilaboð um að skólinn sé öruggur griðarstaður þar sem ofbeldi og ófriður eru ekki liðin. Fáni kærleikans undirstrikaði gildi umhyggju, velvildar og virðingar, svo nemendur væru í engum vafa um mikilvægi þeirra. Málfrelsisfáni myndi minna á að nemendur geti – innan marka velsæmis – tjáð skoðanir sínar frjálslega og óttalaust. Skólinn á jú að hvetja til opinnar og gagnrýninnar umræðu sem stuðlar að þroska nemenda. Og þannig mætti halda áfram: fánar samheldni, sköpunar og hamingju, sem dæmi. Best væri að flagga sem flestum slíkum fánum við skóla landsins allt árið um kring. Þannig fengju flestir fána að eigin skapi. Þá fyrst nyti fjölbreytileikinn sín í allri sinni dýrð! Höfundur er kennari
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar