Hver vinnur vinnuna árið 2035? Halldóra Mogensen skrifar 5. maí 2026 07:16 Ný atvinnustefna Íslands til ársins 2035 er um margt metnaðarfull stefna. Hún horfir til langs tíma og leggur áherslu á nýsköpun, rannsóknir, tækniþróun og uppbyggingu atvinnulífs sem getur staðið undir sterkri stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni. Það er mikilvægt. Lítið hagkerfi eins og Ísland þarf að hugsa fram á við. Lausnin sem lögð er til í stefnunni er skýr: meiri framleiðni, meiri tækniþróun, meiri nýsköpun. Gott og vel. En nýsköpun fyrir hvað? Á nýsköpun að stytta vinnuvikuna? Auka lýðræðislegt vald fólks? Draga úr ójöfnuði? Bæta geðheilsu? Auka sjálfræði fólks gagnvart stórum tæknikerfum? Skapa meira svigrúm fyrir menningu, umönnun og sköpun? Þar sem meginmarkmið atvinnustefnunar er beinlínis skilgreint sem „kröftugur vöxtur útflutnings sem byggir á atvinnugreinum með mikla framleiðni“, tel ég ljóst að meiri nýsköpun á einfaldlega að skila sér í meiri framleiðni. Hver fær þá ávinninginn af framleiðniaukningunni? Engin heildstæð greining liggur fyrir á því hvernig áhrif gervigreindarknúin sjálfvirknivæðing mun hafa á íslenskan vinnumarkað næstu ár. Umræðan hér á landi byggir að mestu á erlendum rannsóknum sem eru síðan yfirfærðar á íslenskar aðstæður án þess að við vitum hvort þær eigi hér við. En jafnvel erlendar rannsóknir á áhrifum gervigreindar á vinnumarkað eru ekki til umfjöllunar í stefnu stjórnvalda.Það er alvarleg yfirsjón þegar verið er að móta atvinnustefnu til ársins 2035. Tökum fiskeldi sem dæmi. Í atvinnustefnunni er fiskeldi kynnt sem mikilvægt vaxtartækifæri fyrir landsbyggðina og útflutning þjóðarinnar. En hversu lengi verða þessi störf til í þeirri mynd sem við þekkjum í dag? Sjálfvirk fóðrunarkerfi, gervigreindardrifið eftirlit, skynjarar, fjargreining, sjálfvirk vinnsla og miðstýrð rekstrarkerfi eru þegar farin að umbreyta greininni erlendis. Það er vel mögulegt að eftir tíu ár verði fiskeldi enn verðmætari atvinnugrein, en með mun færri störfum í viðkomandi byggðum. Þá vaknar spurningin Hver verður geta stjórnvalda að tryggja uppbyggingu um land allt ef verðmætasköpunin vex en störfunum fækkar? Sjálfvirknivæðing starfa getur aukið framleiðni, dregið úr hættulegum störfum og skapað ný tækifæri. En án skýrrar stefnu um hvernig eigi að dreifa ávinningnum getur hún líka aukið misskiptingu og veikt stöðu vinnuafls gagnvart tækni- og fjármagnseigendum. Það skiptir máli hvað við mælum Atvinnustefna stjórnvalda setur fram níu mælikvarða til að meta hvort henni takist upp. Nær allir snúa þeir að efnahagslegum stærðum á borð við framleiðni, samkeppnishæfni, útflutning og tæknilega getu vinnumarkaðarins. Enginn þeirra mælir tekjudreifingu, misskiptingu, félagslega samheldni eða almenna velferð. Árið 2035 munum við því geta séð hvort hagvöxtur jókst og framleiðni varð meiri. En stefnan gefur okkur engin raunveruleg tæki til að meta hvort ávinningurinn skilaði sér til samfélagsins í heild. Bókstafurinn sem gleymdist Í stefnunni er lögð mikil áhersla á STEM-greinar - vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði. Það er mikilvægt. En í framtíð þar sem gervigreind er líkleg til að umbreyta og jafnvel taka yfir störfin okkar þarf að hugsa menntun sem meira en tæknilegt verkefni. Skapandi og gagnrýnin hugsun, siðferðileg dómgreind, menningarlegur skilningur og hæfni til að setja tæknina í félagslegt samhengi verða lykilfærni framtíðarinnar. Þess vegna tala sífellt fleiri fræðimenn og háskólar erlendis um að bæta við bókstafnum A (e. Arts) sem stafar þá STEAM fremur en STEM, þar sem listir og skapandi greinar eru hluti af nýsköpunarhugsuninni, ekki aukaatriði. Við þurfum ekki bara fólk sem getur þróað tækni og hannað tæknilausnir. Við þurfum líka fólk sem getur mótað sýn að því samfélagi sem við viljum byggja með tækninni. Framleiðni er ekki framtíðarsýn Ef atvinnustefna Íslands á að vera raunveruleg framtíðarstefna þarf hún að gera meira en að hámarka framleiðni. Hún þarf líka að spyrja hvernig tæknibreytingar munu koma til með að móta samfélagið og hagkerfið og hvernig við tryggjum að slík þróun sé samfélaginu og fólkinu öllu til góðs til langs tíma. Annars er hætt við að við byggjum hagkerfi sem eykur framleiðni og hagvöxt á súluritum í excel, en grefur undan samfélaginu sem hagkerfið á í raun að þjóna. Höfundur er stofnmeðlimur Samtaka um mannvæna tækni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldóra Mogensen Vinnumarkaður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar