Víðistaðatún, lykill að öflugri vetrarútivist í Hafnarfirði Elísabet Rós Birgisdóttir skrifar 5. maí 2026 07:41 Hafnarfjörður er einstakur bær. Hann stendur á hrauni og er umvafinn náttúru sem býður upp á ótal tækifæri til útivistar allt árið um kring. Við eigum fallegar gönguleiðir, magnaðar hraunmyndanir, langa strandlengju og græn svæði sem gera bæinn að einum besta stað landsins til að njóta hreyfingar, náttúru og samveru utandyra. Ein af þessum perlum er Víðistaðatún, sannkölluð perla í hjarta bæjarins, fallegur almenningsgarður og vinsælt útivistarsvæði fyrir fólk á öllum aldri. Þar má finna fjölbreytta afþreyingu, útilistaverk, leiksvæði fyrir börn með aparólu, kastala og ærslabelg, grillhús og sex holu frisbígolfvöll. Á sumrin er þar einnig tjaldsvæði og stórt viðburðasvæði þar sem haldnir hafa verið fjölbreyttir viðburðir, svo sem Víkingahátíð og hundasýningar. Flest þekkjum við Víðistaðatún sem fallegt og líflegt útivistarsvæði á sumrin. En möguleikarnir yfir vetrartímann eru langt frá því að vera fullnýttir. Þar liggur spennandi tækifæri. Nýlega var sagt frá því í Fjarðarfréttum að öflugur hópur Hafnfirðinga hefði tekið þátt í einni stærstu gönguskíðakeppni heims, Engadin í Sviss. Sá árangur sem þar náðist er hreint út sagt glæsilegur. Hann byggir á metnaði, elju og áhuga einstaklinga sem hafa nýtt þær aðstæður sem eru í boði, meðal annars á Víðistaðatúni þegar færi gefst og í Bláfjöllum þegar veður leyfir. Þessi þróun segir okkur eitt en það er að áhuginn fyrir gönguskíðum er til staðar og hann fer vaxandi. Frá sumarperlu í heilsárs útivistarsvæði Gönguskíði eru íþrótt sem sameinar hreyfingu, náttúruupplifun og lýðheilsu á einstakan hátt. Sífellt fleiri vilja prófa, æfa og njóta þess að hreyfa sig utandyra yfir vetrartímann. Til að styðja við þann áhuga þarf góð aðstaða að fylgja með. Með tiltölulega einföldum og markvissum aðgerðum getum við stutt þá framtíðarsýn að gera Víðistaðatún að aðgengilegu gönguskíðasvæði fyrir alla, hvort sem fólk vill renna sér stuttan hring eftir vinnu, æfa reglulega eða njóta góðrar útivistar með fjölskyldunni um helgar. Með snjóframleiðslu og bættri aðstöðu mætti einnig nýta brekkuna við Víðistaðakirkju betur til leiks og sleðamennsku. Börn fengju aukin tækifæri til að leika sér í snjónum og fjölskyldur gætu átt saman góðar stundir utandyra, líka á dimmustu mánuðum ársins. Það þarf ekki alltaf að flækja málin. Stundum þarf bara að sjá tækifærið sem er beint fyrir framan okkur. Við getum meðal annars sett upp snjóbyssur til að tryggja betri nýtingu frostdaga, mótað og viðhaldið gönguskíðabrautum sem henta bæði byrjendum og lengra komnum, nýtt brekkurnar við Víðistaðakirkju betur fyrir leik, sleðamennsku og fjölskylduvæna útivist, bætt lýsingu og aðstöðu þannig að svæðið nýtist betur yfir dimmari mánuðina og stutt við skipulagða starfsemi, námskeið og kynningu á íþróttinni. Framsókn leggur áherslu á að bæta aðstöðu á útivistarsvæðum til að efla heilsu, lífsgæði og samveru íbúa. Víðistaðatún er kjörið dæmi um svæði þar sem hægt er, með markvissum og tiltölulega einföldum aðgerðum, að skapa enn meiri verðmæti fyrir samfélagið. Af hverju ekki að nýta það tækifæri? Með bættri aðstöðu gæti Víðistaðatún orðið enn öflugri miðstöð útivistar, bæði fyrir daglega hreyfingu og fjölskyldustundir allt árið um kring. Þetta snýst um Hafnarfjörð. Höfundur er á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Hafnarfjörður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar