Vel tengd höfuðborg Birkir Ingibjartsson skrifar 5. maí 2026 06:46 Höfuðborgarsvæðið hefur vaxið hratt á síðustu áratugum og áhrif þess teygja sig sífellt lengra út fyrir borgarmörkin. Sú þróun er ekki tilviljun heldur endurspeglar breytt samfélag og aukinn hreyfanleika milli atvinnu- og búsetusvæða. Í dag er svo komið að suðvesturhorn landsins er smám saman að verða eitt samverkandi þéttbýlissvæði. Þessi staða kallar á skýra og heildstæða stefnu í skipulagi og samgöngum, þar sem horft er til svæðisins sem ein heild. Ein af forsendum þess að þessi þróun haldi áfram er að samgönguinnviðir fylgi eftir með öruggum og aðgengilegum tengingum milli svæða. Fjárfesting í fjölbreyttum og skilvirkum samgöngum er nauðsynlegar. Það á bæði við um vegakerfið og almenningssamgöngur, sem gegna mikilvægu hlutverki í sjálfbærri borgarþróun. Sundabraut er lykilframkvæmd í að tengja höfuðborgarsvæðið og Vesturland betur saman og létta á umferð innan austurhluta borgarinnar. Sundabraut þarf þó að vera framkvæmd af ábyrgð og taka mið af hagsmunum Reykjavíkur og borgarbúa. Samráð við íbúa nærliggjandi hverfa skiptir miklu máli og mikilvægt að sjónarmið þeirra fái vægi við mótun verkefnisins. Þannig verður lausnin ekki aðeins tæknilega góð heldur einnig Reykjavík til framdráttar. Suðurnesin gegna einnig stóru hlutverki í þessari heildarmynd. Þar er að finna fjölmennasta þéttbýlissvæði landsins utan höfuðborgarsvæðisins, auk þess sem svæðið hýsir helsta alþjóðaflugvöll landsins. Tengingar milli Suðurnesja og Reykjavíkur þurfa því að vera bæði öflugar og fjölbreyttar. Sérstök áhersla ætti að vera lögð á að efla almenningssamgöngur milli þessara svæða, sem myndi draga úr umferðarálagi og umhverfisáhrifum og auka lífsgæði þeirra sem ferðast daglega á milli. Í mínum huga eru hugmyndir um lestarsamgöngur milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar ekki draumórar heldur lausn sem þarf að fara skoða af alvöru á komandi kjörtímabili. Það er ekki hægt að tala um samgöngur til og frá höfuðborgarsvæðinu án þess að ræða Reykjavíkurflugvöll. Líkt og íbúasamtökin Hljóðmörk hafa bent á með skeleggum málflutningi sínum þá hefur ónæði af óþarfa flugi aukist á síðustu 10 árum. Er þá átt við ónæði af flugi frá einkaþotum, útsýnisþyrlum og kennsluflugi. Við viljum draga úr þessari óþarfa flugumferð um Reykjavíkurflugvöll og þeim neikvæðu áhrifum sem hún hefur á öryggi, heilsu og lífsgæði íbúa höfuðborgarsvæðisins. Einkaþotur ætti að flytja sem fyrst til Keflavíkur og útsýnisflug þyrla viljum við út fyrir borgarmörkin. Hvað kennsluflugið varðar þarf að ná betra jafnvægi um það innan hvaða ramma sú starfsemi starfar. Með markvissum aðgerðum má skapa betra jafnvægi milli starfsemi vallarins og hagsmuna þeirra sem búa og starfa í borginni. Svo þurfum við auðvitað að halda áfram leit að nýju flugvallarstæði fyrir innanlandsflug. Það er bæði hagur borgarbúa og flugsamfélagsins. Framtíð höfuðborgarsvæðisins og nágrennis þess ræðst af því hvernig tekst að samræma vöxt, skipulag og samgöngur. Með skýrri stefnu, samráði og markvissri uppbyggingu innviða eru hér allar forsendur til staðar að byggja upp vel tengt og sjálfbært borgarsamfélag, þar sem ólík svæði vinna saman sem ein sterk heild. Horfum til framtíðar. Höfundur skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Birkir Ingibjartsson Reykjavík Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar