Hvar er menningarhús Hafnfirðinga? Karólína Helga Símonardóttir skrifar 5. maí 2026 06:18 Hafnarfjörður er með ríka sögu um öflugt menningarlíf. Samt sem áður vantar eitt grundvallaratriði sem flest sambærileg sveitarfélög hafa þegar byggt upp, það er menningarhús. Slíkt hús er ekki aðeins vettvangur fyrir listir og menningu, heldur hjarta samfélagsins, staður þar sem íbúar koma saman, upplifa og skapa. Í dag er menningarstarfsemi í Hafnarfirði dreifð og aðstaða víða ófullnægjandi. Það dregur úr sköpunarkrafti og hamlar frekari vexti menningarlífs. Þörfin fyrir menningarhús er því orðin brýn. Skynsamleg og raunhæf lausn er til staðar Lausnin er nær en margir halda. Íþróttahúsið við Strandgötu er kjörinn kostur til þess að umbreyta í menningarhús. Staðsetningin er miðsvæðis, húsið er rúmgott og með réttri hönnun mætti skapa þar fjölnota rými fyrir tónleika, sýningar, leikhús, ráðstefnur og aðra menningarviðburði. Að endurnýta bygginguna er ekki aðeins hagkvæmt heldur einnig sjálfbær og ábyrg lausn sem fellur vel að nútíma kröfum um ábyrgð í opinberum framkvæmdum. Til þess að dæmið gangi allt upp er algjört lykilatriði að umbreytingin komi ekki niður á þeirri mikilvægu starfsemi sem þegar fer fram í húsinu. Þar er um að ræða skólaíþróttir grunnskóla og Flensborgarskóla, auk öflugs starfs Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Samstarf við ríkið er lykillinn Til að leysa þetta þarf markvisst samtal og samstarf við ríkið með það að markmiði aðhefja byggingu nýs íþróttahúss við Flensborgarskóla. Á þeirri lóð er rými fyrir slíka uppbyggingu sem myndi skapa betri og nútímalegri aðstöðu fyrir íþróttir en nú er í boði við Strandgötu. Verkefni af þessari stærðargráðu kallar á samstarf. Með sameiginlegu átaki Hafnarfjarðarbæjar og ríkisins má fjármagna og framkvæma þessa uppbyggingu. Slíkt samstarf er ekki fordæmalaust og fellur vel að sameiginlegri ábyrgð á uppbyggingu mennta- og íþróttainnviðum. Með þessari lausn myndi íþróttastarfsemi sem nú er á Strandgötu færast yfir í nýja húsið við Flensborg. Við það skapast raunverulegt svigrúm til að umbreyta núverandi húsnæði í menningarhús. Fjárfesting í samfélaginu Þessi leið er skynsöm fjárfesting á nýju Menningarhúsi fyrir Hafnarfjörð. Fjárfesting í lífsgæðum, menntun, ferðaþjónustu og atvinnulífi. Slík uppbygging styrkir sjálfsmynd bæjarins og gerir hann að enn meira aðlaðandi stað til að búa á og heimsækja. Hafnarfjörður hefur alla burði til að verða leiðandi afl í menningu á höfuðborgarsvæðinu. Það sem vantar er að taka ákvörðunina og láta hana verða að veruleika.. Við í Viðreisn ætlum að ganga í verkið. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karólína Helga Símonardóttir Viðreisn Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar