Hvernig ræktum við frið í huga fólks? Sæunn Stefánsdóttir skrifar 5. maí 2026 12:30 UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur það að markmiði að efla frið og sjálfbæra þróun með alþjóðlegu samstarfi á sviði menntunar, vísinda, menningar og tjáningarfrelsis. Það er óhætt að segja að starf stofnunarinnar hafi sjaldan verið mikilvægara en nú á tímum hraðra samfélagsbreytinga og ólgu í samskiptum þjóða. Rík þörf er á samvinnu þjóða til að vernda menningararf, efla menntun og tryggja að tækniframfarir á borð við gervigreindina nýtist öllum eða eins og einkunnarorð stofnunarinnar sjálfrar tiltaka, að enginn verði skilinn eftir. Þátttaka Íslands í UNESCO skiptir einnig miklu máli. Ísland kemur að borðinu með reynslu af sjálfbærri auðlindanýtingu, sterku menntakerfi og lifandi menningararfi, auk þess að vera virkur þátttakandi í umræðu um mikilvægi tungumála, jafnréttis og lýðræðis á alþjóðavettvangi. Nýverið lauk Ísland setu sinni í framkvæmdastjórn stofnunarinnar þar sem við höfum átt fulltrúa sl. fjögur ár. Ísland leggur einnig sitt af mörkum með margvíslegum öðrum hætti. Til dæmis með starfi GRÓ – þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu þar sem við tökum árlega á móti tæplega 100 þátttakendum í Sjávarútvegsskólanum, Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum eða Landgræðsluskólanum. Þátttakendur fara heim reynslunni ríkari til sinna heimalanda þar sem þeir leggja af mörkum við þróun mála á sínum sérfræðisviðum. En frá upphafi hafa hátt í tvö þúsund sérfræðingar frá þróunarlöndum komið hingað til náms í skólunum fjórum. Fæstir gera sér grein fyrir því umfangsmikla starfi stofnana og verkefna sem fram fer hérlendis undir merkjum UNESCO. Eflaust vita þó margir af því að þjóðargersemar okkar eins og Þingvellir, Surtsey og Vatnajökulsþjóðgarður eru á heimsminjaskrá UNESCO. Að auki eigum við tvö jarðvanga, Reykjanes jarðvang og Kötlu jarðvang, sem eru meðal tæplega 200 jarðvanga í 48 löndum víðan um heiminn. Ekki er langt síðan við eignuðumst okkar fyrsta vistvang undir nafni UNESCO en Snæfellsnes hlaut inngöngu á þann lista sem vistvangur á síðasta ári. Þónokkra athygli vakti hérlendis þegar sundlaugamenning okkar Íslendinga komst nýverið á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns en áður hafði smíði og notkun norrænna súðbyrðinga verið skráð á listann. Reykjavíkurborg er bókmenntaborg UNESCO og 27 skólar taka hérlendis í verkefninu UNESCO-skólar sem er alþjóðlegt samstarfsnet skóla sem er starfrækt á vegum stofnunarinnar. Að auki starfa hér stofnanir á borð við Vigdísarstofnun, alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, og fyrrnefnd GRÓ þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu undir merkjum UNESCO. UNESCO-dagurinn hefur verið haldinn undanfarin ár sem vettvangur þeirra aðila og stofnana sem starfa undir merkjum UNESCO á Íslandi. Að þessu sinni viljum við opna samtalið enn frekar og bjóða öllum þeim sem áhuga hafa að fræðast um fjölbreytt og mikilvægt starf Íslands innan UNESCO og taka þátt í samtali um framtíðina og leggja sitt af mörkum við að rækta friðinn í hugum fólks. Verið hjartanlega velkomin í Eddu, hús íslenskunnar, 7. maí nk. á UNESCO daginn. Höfundur er formaður landsnefndar UNESCO á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Vísindi Skóla- og menntamál Mest lesið Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar