Sóun á almannafé í stað uppbyggingar Guðbjörg Magnúsdóttir skrifar 6. maí 2026 07:33 Keiluíþróttin á höfuðborgarsvæðinu á undir högg að sækja vegna skorts á aðstöðu. Borgaryfirvöld hafa ekki sýnt þeim fjölmörgu sem stunda þessa íþrótt skilning og aðstaða þeirra því verið neðarlega á forgangslistanum. Á sama tíma greiðir borgin 32 milljónum króna á ári í leigu á brautum í Keiluhőllinni. Þeir fjármunir viðhalda fyrirkomulagi sem virkar ekki. Sama upphæð færi langt með að standa undir kostnaði við uppbyggingu á keiluaðstöðu á vegum borgarinnar. Núverandi fyrirkomulag felur í sér sóun á almannafé. Staða þeirra sem leggja keiluíþróttina fyrir sig og félagsliða þeirra er óásættanleg. Æfingatímar eru iðulega felldir niður til að hleypa almenningi að brautunum. Nú heyrist að fyrirhugað sé að færa keppnir yfir á laugar- og sunnudagsmorgna. Þetta væri ekki liðið í öðrum íþróttum. Eins og staðan er núna nær æfingatímabil liðanna ekki yfir keppnistímabilið. Æfingar standa frá september til loka apríl vegna skorts á fjármagni og ekki hægt að halda mót í desembermánuði. Þrátt fyrir aðstöðuleysi hefur keiluíþróttarfólk náð aðdáunarverðum árangri. Yngstu keppendur í kvennaliði urðu nýlega bikarmeistarar og íslenskir drengir unnu til bronsverðlauna á Evrópumóti í Berlín, fyrst íslenskra liða. Ef sómasamlega væri búið að félagsliðum í keilu gæti árangurinn orðið enn meiri. Borgin hefur nú einstakt tækifæritil að gera bragarbót á þessum málum. Í efra Breiðholti er fyrirhugað að reisa dans- og varnaríþróttahús. Þar væri vel hægt að koma einnig fyrir aðstőðu til keiluiðkunar. Fjölnota hús af þessu tagi myndi styrkja samfélagið í Breiðholti verulega. Flokkur fólksins mun beita sér að alefli í borgarstjórn fyrir uppbyggingu á keiluaðstöðu. Börn og ungmenni eiga að hafa aðgang að fjölbreyttu íþrótta- tómstundastarfi. Það auðgar samfélagið í hverfunum og gengir að auki mikilvægu forvarnarhlutverki. Reykjavík getur staðið sig betur og með Flokk fólksins í borgarstjórn mun hún gera það. Höfundur er frambjóðandi í 3 sæti á lista Flokks fólksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkur fólksins Reykjavík Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Keiluíþróttin á höfuðborgarsvæðinu á undir högg að sækja vegna skorts á aðstöðu. Borgaryfirvöld hafa ekki sýnt þeim fjölmörgu sem stunda þessa íþrótt skilning og aðstaða þeirra því verið neðarlega á forgangslistanum. Á sama tíma greiðir borgin 32 milljónum króna á ári í leigu á brautum í Keiluhőllinni. Þeir fjármunir viðhalda fyrirkomulagi sem virkar ekki. Sama upphæð færi langt með að standa undir kostnaði við uppbyggingu á keiluaðstöðu á vegum borgarinnar. Núverandi fyrirkomulag felur í sér sóun á almannafé. Staða þeirra sem leggja keiluíþróttina fyrir sig og félagsliða þeirra er óásættanleg. Æfingatímar eru iðulega felldir niður til að hleypa almenningi að brautunum. Nú heyrist að fyrirhugað sé að færa keppnir yfir á laugar- og sunnudagsmorgna. Þetta væri ekki liðið í öðrum íþróttum. Eins og staðan er núna nær æfingatímabil liðanna ekki yfir keppnistímabilið. Æfingar standa frá september til loka apríl vegna skorts á fjármagni og ekki hægt að halda mót í desembermánuði. Þrátt fyrir aðstöðuleysi hefur keiluíþróttarfólk náð aðdáunarverðum árangri. Yngstu keppendur í kvennaliði urðu nýlega bikarmeistarar og íslenskir drengir unnu til bronsverðlauna á Evrópumóti í Berlín, fyrst íslenskra liða. Ef sómasamlega væri búið að félagsliðum í keilu gæti árangurinn orðið enn meiri. Borgin hefur nú einstakt tækifæritil að gera bragarbót á þessum málum. Í efra Breiðholti er fyrirhugað að reisa dans- og varnaríþróttahús. Þar væri vel hægt að koma einnig fyrir aðstőðu til keiluiðkunar. Fjölnota hús af þessu tagi myndi styrkja samfélagið í Breiðholti verulega. Flokkur fólksins mun beita sér að alefli í borgarstjórn fyrir uppbyggingu á keiluaðstöðu. Börn og ungmenni eiga að hafa aðgang að fjölbreyttu íþrótta- tómstundastarfi. Það auðgar samfélagið í hverfunum og gengir að auki mikilvægu forvarnarhlutverki. Reykjavík getur staðið sig betur og með Flokk fólksins í borgarstjórn mun hún gera það. Höfundur er frambjóðandi í 3 sæti á lista Flokks fólksins
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar