Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar 8. maí 2026 08:41 Reykjavík er ekki tímabundin sviðsmynd sem má reisa hratt, nýta og fella svo niður þegar hagnaðurinn hefur verið tekinn út. Hún er heimili fólks, hún er vettvangur lífs, minninga og framtíðar. Einmitt þess vegna verðum við að horfast í augu við það að við þurfum að byrja upp á nýtt frá grunni. Borg fyrir fólk, ekki fjárfesta Það á að vera upplifun að ganga um hverfi í Reykjavík. Göturnar eiga að láta okkur líða eins og útilistasafn þar sem hvert hús, hvert torg og hvert smáatriði hefur sérstöðu og sál. Það á að vera eftirsóknarvert að heimsækja íslensk hverfi, ekki vegna stærðar heldur vegna fegurðarinnar, hlýjunnar og karakterins. Íbúarnir eiga að finna stoltið við að búa þar, finna tengingu við umhverfið sitt og upplifa að borgin sé byggð fyrir fólk en ekki bara fyrir verktaka. Alltof lengi hefur húsbygging snúist um hraða og kostnað. Gráar blokkir rísa á örfáum mánuðum og byrja að láta á sjá innan áratugar þetta er ekki sjálfbært og þetta er ekki mennsk nálgun. Við getum ákveðið að byggja fyrir 100 ár ekki 20. Framtíðin er byggð í skólunum Ef þessi framtíð á að verða að veruleika verðum við að byrja á grunninum í skólunum. Þar lærum við hvernig við horfum á heiminn, hvernig við metum gæði og hvernig við skiljum fegurð, efni og form. Börn þurfa að fá að skapa með höndunum, ekki bara á skjá. Þau þurfa að upplifa hvað það þýðir að byggja eitthvað raunverulegt, eitthvað sem stendur og hefur gildi. Húsasmíði og verkmenntun eiga ekki að vera jaðargreinar heldur mikilvægur hluti af samfélagi sem kann til verka og ber virðingu fyrir því sem það skilur eftir sig. Hús eru ekki munaður heldur grunnþörf og þess vegna verðum við að kenna fólki að byggja þau vel. Ef við kennum ekki að byggja, þá munum við aldrei byggja betur. Endurreisn sem skiptir máli Endurreisn arkitektúrsins snýst ekki um tísku eða yfirborð hún snýst um gildi að setja manneskjuna í forgrunn Reykjavík er ekki spilaborg hún er sameiginlegt verkefni allra Íslendinga. Við þurfum að byrja á grunninum með því að kenna smíðar og endurvekja trúna á að það sem við byggjum í dag geti enn fyllt fólk stolti eftir hundrað ár. Höfundur er húsasmiður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Mikael Sverrisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar