Veldu þína leið - vertu kennari! Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar 10. maí 2026 14:48 Hvaða máli hafa kennarar skipt í þínu lífi, lesandi góður? Ég hef helgað stórum hluta starfsævi minnar á sviði menntavísinda og tekið þátt í að móta framtíðarkennara fyrir íslenskt menntakerfi. Kennaramenntun er í sífelldri þróun og í dag hafa sjaldan verið jafn mörg tækifæri fólgin í kennarastarfinu. Tækniþróun skapar ný og spennandi tækifæri en á sama tíma er enn ríkari þörf á að leggja áherslu á hið mannlega - það sem aðgreinir okkur frá gervigreind - þar á meðal persónuleg og siðferðileg ábyrgð, sjálfstæð og gagnrýnin hugsun, samskipti og tengsl við annað fólk. Hugurinn hvarflar að eigin skólagöngu og minningum um kennara sem mótuðu mitt líf. Sjálf man ég enn daginn sem ég færðist yfir á eldri barna deildina á leikskólanum Hlíðaborg þegar ég var líklega fjögurra ára Reykjavíkurmær. Leikskólakennari, sem þá gekk reyndar undir starfsheitinu fóstra, leiddi mig inn á nýju deildina þar sem allt var svo spennandi og öðruvísi. Að leikskóla loknum lá leiðin í grunnskóla og ýmis minningarbrot lifna við; flúortöflur sem við krakkarnir fengum, leikirnir og fjörið í frímínútum og raðirnar fyrir framan innganginn þegar bjallan hringdi. En best man ég eftir kennurunum mínum, Rósu, hlýja og umhyggjusama kennarann, sem kenndi mér stafina en veiktist alvarlega eftir fyrsta árið. Ég grét mig í svefn vegna hennar. Herdísi sem leiddi mig og samnemendur mína í átta ára bekk inn í undraheim þegar við sköpuðum okkar eigið land, og þar reyndi nú heldur betur á samvinnuhæfni, læsi, tjáningu og sköpun. Tónlistarkennaranum sem kenndi mér að finna og þekkja rytma og takt, með leikjum og söng. Íþróttakennaranum sem kenndi mér að ganga eins og könguló, og síðar, að klifra upp reipi. Og heimilisfræðikennarinn studdi mig með hlýju og velvild í gegnum erfiðan tíma í 9. bekk (núna 10. bekkur). Þá snerist allt um að ganga vel í samræmdu prófunum, jú og reyndar líka að finna sjálfa sig og reyna að fóta sig í flóknu lífinu. Það var síðan þegar í framhaldsskólann var komið sem ég man eftir kennurum sem leiddu mann af alvöru inn í heima ólíkra námsgreina; einn kenndi mér að meta franskar kvikmyndir og frönsk ljóð, annar kenndi okkur að skrifa fyrstu alvöru rannsóknarritgerðina (um frumbyggja Norður-Ameríku). Ég man líka eftir stærðfræðikennara sem notaði líkindareikning til að spila í Lottó hverja helgi. Ég man eftir kennslustund í stjörnufræði þar sem kennarinn sagði okkur að sólin myndi brenna allt vetnið sitt upp á um sex þúsund milljörðum ára og að heimurinn myndi þá farast. Ein skólasystir mín grét sárt við þær fréttir. Á öllum skólastigum kynntist ég eftirminnilegum kennurum sem áttu þátt í að móta hugmyndir mínar um sjálfa mig og veruleikann. Bestu minningarnar tengjast því þegar ég upplifði að kennarinn raunverulega sá okkur nemendur sína, bar virðingu fyrir okkur og brann fyrir því að miðla, leiða, fræða og gefa af sér. Vera góð fyrirmynd í alla staði, sanngjörn, hreinskiptin og góð manneskja. Reynsla mín er á engan hátt einstök, hvorki þá né nú í dag. Íslenska æskulýðsrannsóknin sýnir að stærstur hluti grunnskólanema upplifir góð tengsl og stuðning frá kennurum sínum, og eru ánægð í skólanum. Skólinn er staðurinn þar sem heimurinn opnast á svo margan hátt, en hann er líka staðurinn þar sem ungmenni upplifa áskoranir og takast á við lífið. Það er margþætt verkefni að mennta kennara og í náminu fléttast saman fagleg og fræðileg nálgun. Vettvangsnám er mikilvægur þáttur námsins þar sem kennaranemum gefst kostur að kynnast fjölbreyttu skólastarfi og þjálfa sig undir handleiðslu reyndra kennara. Frá og með hausti 2026 verður lögð rík áhersla á öflugt staðnám í nýju og glæsilegu húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu og á sama tíma verður unnið að því að auka gæði fjarnáms fyrir þau sem starfa samhliða námi eða búa á landsbyggðinni. Ég hvet öll þau sem vilja hafa áhrif og vinna með framtíðarborgurum landsins, til að íhuga kennarastarfið sem valkost og taka þátt í að opna heiminn fyrir ungu fólki. Í dag eru margar leiðir inn í kennaranám hjá okkur á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og hægt að velja á milli ótal kjörsviða og skólastiga. Veldu þína leið - taktu forystu og vertu kennari! Höfundur er forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Þ. Pálsdóttir Skóla- og menntamál Mest lesið Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Skoðun Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun