Ertu eldklár í sumarbústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar 11. maí 2026 12:51 Sumarhús eru griðastaður til þess að slaka á í frístundum og þó margir nýti bústaðinn allt árið um kring er sumarið sá tími sem flestir dvelja þar lengst. Því eru vorin tilvalin til að kanna hvort öryggisatriðin séu á hreinu og sérstaklega eldvarnirnar þar sem húsin eru oft byggð úr timbri, frá veggjum út á verönd. Hér eru nokkur mikilvæg eldvarnarráð sem allir sumarbústaðaeigendur ættu að yfirfara reglulega. Reykskynjari, eldvarnarteppi, slökkvitæki og flóttaleið af svefnlofti eru lykilatriði inni i sumarhúsum. En einnig þarf að huga að ytri aðstæðum því sumarhús standa oft í gróðurfylltu umhverfi sem eykur hættuna á að verða fyrir gróðureldum sem geta breiðst hratt út við þurr veðurskilyrði. Er flóttaleið af svefnloftinu? Svefnloft eru mjög algeng í sumarhúsum enda góð nýting á rými. En ef stiginn upp á loftið er eina leiðin upp og niður þarf að bæta úr því. Gluggi á efri hæð þarf að opnast út og neyðarstigi utan á húsinu sem hægt er að klifra niður. Leiddu hugann að því næst þegar þú kemur í sumarhús hvernig þeir sem sofa á svefnloftinu eiga að komast út ef eldur kemur upp á neðri hæðinni. Slökkvitæki og reykskynjarar Komi upp eldur inni er grundvallaratriði að við verðum hans vör. Þess vegna er mikilvægt að hafa reykskynjara á öllum hæðum og inn í öllum herbergjum og muna prófa þá reglulega. Ef þú ert gestur eða með bústað á leigu, er góð regla að prófa reykskynjarana áður en farið er að sofa. Eldvarnarteppi á að vera í eldhúsi en það er sérlega gott ef kemur upp eldur í matarfitu við eldamennsku. Kerti, kamínur og gashellur þarf að fara gætilega með og góð forvörn að vera með gasskynjara í húsinu. Kamínur eiga helst að standa á steinefni, eða viðlíka efni sem þolir mikinn hita án þess að brenna. Öryggissvæði úti og eldklöppur Mikilvægt er að hafa autt svæði og án alls gróðurs sem getur orðið eldsmatur 1,5 metra umhverfis sumarhúsið, þetta er kallað öryggissvæði. Ef húsið stendur í brekku þarf öryggissvæðið að ná lengra niður brekkuna. Það getur skipt sköpum um útbreiðslu elds að hólfa lóðina með malarstígum eða skipta upp landinu á annan hátt með gróðurlausum beltum. Eldklöppur, einnig nefndar sinuklöppur, eru handverkfæri með spaða á endanum sem eru notaðar til að kæfa eld í sinu og ættu að vera við öll sumarhús. Almennt séð er góð regla að hirða gróður vel og grysja, því úr sér vaxinn gróður getur líka hindrað aðgengi slökkviliðs. Þá er gott er að hafa garðslöngu sem nær hringinn kringum húsið til að bleyta gróður eða slökkva elda. Útieldhúsið Að lokum er vert að tala um útieldhúsin. Sífellt fleiri kjósa að byggja sér skjólgóða eldunaraðstöðu úti sem er samtengd húsinu. Ef kviknar í útieldhúsinu þá á eldurinn greiða leið að húsinu. Gott er að hafa þetta í huga við hönnunina þar sem dæmi eru um slíka elda. Slökkvitæki, aðgangur að slökkvivatni og eldvarnarteppi eru besta vörnin svo ekki verði af litlum neista mikið bál. Ítarlegri upplýsingar um brunavarnir í frístundabyggð er t.d. að finna á heimasíðum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar og Eldvarnarbandalagsins. F.h. Eldvarnarbandalagsins Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Mogensen Slysavarnir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar