Og hildarleikurinn í Mjódd heldur áfram Helgi Áss Grétarsson skrifar 12. maí 2026 06:32 Allar götur frá árinu 2015 hefur Reykjavíkurborg borið ábyrgð á rekstri skiptistöðvarinnar í Mjódd og á þessu kjörtímabili hafa málefni skiptistöðvarinnar verið mér hugleikin, til dæmis hef ég ritað margar greinar um efnið, meðal annars þessar tvær: Undirskriftarlistinn: „Öryggisgæslu í Mjódd – Hættum að Bjóða Hættunni Heim“ Í kjölfar tveggja líkamsárása á skiptistöðinni í Mjódd var hrundið af stað undirskriftarsöfnun í byrjun desember á síðasta ári. Með því að taka þátt í undirskriftarlistanum var verið að skora á Reykjavíkurborg að tryggja viðunandi og sýnilega öryggisgæslu á skiptistöðinni. Þrátt fyrir að tæplega 600 manns hafi ritað undir áskorunina, þá tvo mánuði sem undirskriftarlistinn var virkur, var í framhaldinu ekki gripið til neinna sértækra öryggisráðstafana. Nýjasta atvikið Um nýjasta atvik ofbeldis á skiptistöðinni Mjódd var fjallað á visir.is, mánudaginn 11. maí: Miðað við þessa frétt og þær viðbótarupplýsingar sem ég hef aflað mér, þá var skiptistöðin í Mjódd nánast full af farþegum síðastliðið fimmtudagskvöld, 7. maí. Í kjölfar orðahnippinga á milli konu á fimmtugsaldri og ungmenna, í einu horni skiptistöðvarinnar, gripu ungmennin til þess ráðs að rífa í hár konunnar og láta högg og spörk dynja á henni. Töluvert magn af upptökum eru til af atburðarrásinni. Lögreglan hefur þær undir höndum. Öll kurl eru ekki komin til grafar um hverjar afleiðingar ofbeldisins kunna að verða fyrir fórnarlambið en ástæða er til að ætla að þær verði töluverðar, bæði andlega og líkamlega. Ákall um breytingar Sú krafa er sanngjörn að öryggisgæsla skiptistöðvarinnar verði færð í viðunandi horf, líkt og meðframbjóðandi minn í Miðflokknum, Lárus Blöndal Sigurðsson, ræddi um í grein sinni á visir.is, 9. maí síðastliðinn: „Miðflokkurinn mun sjá til þess að öryggisgæslu verði án tafar komið á við skiptistöðina í Mjódd, komist hann til áhrifa í kosningunum 16. maí.“ Höfundur er lögfræðingur og er í 5. sæti Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Allar götur frá árinu 2015 hefur Reykjavíkurborg borið ábyrgð á rekstri skiptistöðvarinnar í Mjódd og á þessu kjörtímabili hafa málefni skiptistöðvarinnar verið mér hugleikin, til dæmis hef ég ritað margar greinar um efnið, meðal annars þessar tvær: Undirskriftarlistinn: „Öryggisgæslu í Mjódd – Hættum að Bjóða Hættunni Heim“ Í kjölfar tveggja líkamsárása á skiptistöðinni í Mjódd var hrundið af stað undirskriftarsöfnun í byrjun desember á síðasta ári. Með því að taka þátt í undirskriftarlistanum var verið að skora á Reykjavíkurborg að tryggja viðunandi og sýnilega öryggisgæslu á skiptistöðinni. Þrátt fyrir að tæplega 600 manns hafi ritað undir áskorunina, þá tvo mánuði sem undirskriftarlistinn var virkur, var í framhaldinu ekki gripið til neinna sértækra öryggisráðstafana. Nýjasta atvikið Um nýjasta atvik ofbeldis á skiptistöðinni Mjódd var fjallað á visir.is, mánudaginn 11. maí: Miðað við þessa frétt og þær viðbótarupplýsingar sem ég hef aflað mér, þá var skiptistöðin í Mjódd nánast full af farþegum síðastliðið fimmtudagskvöld, 7. maí. Í kjölfar orðahnippinga á milli konu á fimmtugsaldri og ungmenna, í einu horni skiptistöðvarinnar, gripu ungmennin til þess ráðs að rífa í hár konunnar og láta högg og spörk dynja á henni. Töluvert magn af upptökum eru til af atburðarrásinni. Lögreglan hefur þær undir höndum. Öll kurl eru ekki komin til grafar um hverjar afleiðingar ofbeldisins kunna að verða fyrir fórnarlambið en ástæða er til að ætla að þær verði töluverðar, bæði andlega og líkamlega. Ákall um breytingar Sú krafa er sanngjörn að öryggisgæsla skiptistöðvarinnar verði færð í viðunandi horf, líkt og meðframbjóðandi minn í Miðflokknum, Lárus Blöndal Sigurðsson, ræddi um í grein sinni á visir.is, 9. maí síðastliðinn: „Miðflokkurinn mun sjá til þess að öryggisgæslu verði án tafar komið á við skiptistöðina í Mjódd, komist hann til áhrifa í kosningunum 16. maí.“ Höfundur er lögfræðingur og er í 5. sæti Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar