Stolt framtíð í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir skrifar 12. maí 2026 11:11 Ég verð á hverjum degi vör við það mikla stolt sem íbúar í Kópavogi bera til samfélagsins okkar. Það er töluverð innstæða fyrir því stolti, því Kópavogur er öflugur, vaxandi og vel rekinn bær þar sem lögð er áhersla á þjónustu og lífsgæði íbúa. Þetta stolt er drifkrafturinn í okkar starfi og áminning um að þær ákvarðanir sem við tökum í dag móta líf þeirra kynslóða sem á eftir koma. Það er, óháð aldri, alltaf stór ákvörðun að velja sér heimili. Fyrir ungt par sem ákveður að hefja búskap þarf að huga að þeirri þjónustu sem er í boði þegar fjölskyldan stækkar, svo sem gæðum leikskóla og nálægð við grunnskóla. Fyrir fólk á miðjum aldri, sem þarf kannski að stækka við sig eða finna húsnæði sem hentar breyttum lífsstíl, skiptir máli að fjölbreytni sé til staðar í bænum. Fyrir eldri borgara okkar skiptir höfuðmáli að hafa greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, hreyfingu og félagslegri afþreyingu. Það eru ýmsir þættir sem ráða því hvar fólk ákveður að búa og staðreyndin er sú að margir líta svo á að best sé að búa í Kópavogi. Góður rekstur er grunnurinn Í Kópavogi er gott að eldast, gott að starfa og frábært að alast upp. Við leggjum metnað í að skólarnir okkar séu í fremstu röð, að íþrótta- og tómstundastarf sé fjölbreytt og að umhverfi okkar sé snyrtilegt og aðlaðandi. Þjónusta við íbúa á að vera einföld, skilvirk og nútímaleg. Með stafrænni vegferð höfum við gert fólki auðveldara fyrir að eiga í samskiptum við bæinn sinn. Stoltið okkar felst líka í þeim kröftugu fyrirtækjum sem kjósa að starfa í Kópavogi og þeim öflugu félagasamtökum sem auðga mannlífið. Þessi samvinna gerir bæinn okkar að þeim líflega stað sem hann er. Traustur fjárhagur og vandaður rekstur eru forsendur þess að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu. Við höfum lagt áherslu á ábyrgan rekstur og agaða fjármálastjórn. Það er sú ráðdeild sem gerir okkur kleift að lækka álögur á íbúa á sama tíma en fasteignagjöld eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða sækjum við fram í uppbyggingu innviða. Kópavogur er gott dæmi um að hægt er að reka stórt sveitarfélag af hagkvæmni og veita góða þjónustu. Það er ekki sjálfsagt mál og nægir þar að horfa til stjórnarfars Samfylkingarinnar í Reykjavík og nú á landsvísu. Framtíðin krefst skýrrar sýnar Það má þó ekki sofna á verðinum. Það er mikilvægt að horfa til framtíðar og taka ákvarðanir um það hvernig við viljum sjá Kópavog þróast á næstu árum og áratugum. Ef rétt er haldið á spöðunum mun Kópavogur halda áfram að vera fyrsta val íbúa og fyrirtækja. Það krefst þess að við skipuleggjum bæinn vel, tryggjum hagkvæma innviði og hlúum að grænum svæðum sem gera bæinn aðlaðandi samhliða því sem við tryggjum metnaðarfulla og góða þjónustu fyrir fjölskyldur. Við horfum fram á veginn með bjartsýni. Kópavogur er bær í sókn. Við höldum áfram að þróa byggðina okkar með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi, hvort sem um ræðir nýbyggingar eða endurbætur á eldri hverfum. Markmið okkar er skýrt: Kópavogur á áfram að vera eftirsóknarverðasta sveitarfélagið á Íslandi til að búa í, ekki bara í dag, heldur fyrir komandi kynslóðir. Með áframhaldandi festu í rekstri og metnaði fyrir hönd bæjarins eru okkur allir vegir færir. Við eigum margt að vera stolt af í Kópavogi og saman munum við halda áfram að gera bæinn okkar enn betri, tryggja lífsgæðin og byggja upp samfélag sem við getum öll verið stolt af um ókomna tíð. Höfundur er bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar