Sterk rödd eldri borgara Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar 13. maí 2026 07:11 Flokkur fólksins hefur frá upphafi ljáð eldri borgurum og hagsmunum þeirra rödd á vettvangi stjórnmálanna. Stefna Flokks svarar vel kröfum Félags eldri borgara fyrir komandi kosningar, sem eru bæði skýrar og réttmætar. Tekjulágir lífeyrisþegar eiga ekki að búa við mismunum eftir því í hvaða sveitarfélagi þeir búa. Undanfarin ár hafa fasteignagjöld hækkað mikið í Reykjavík og margir eldri borgarar eiga erfitt með að ná endum saman. Flokkur fólksins í Reykjavík ætlar að endurskoða afsláttarkerfið strax og hækka skerðingamörk þannig að eldri borgarar í Reykjavík standi ekki verr að vígi en í öðrum sveitarfélögum. Við ætlum að bæta upplýsingagjöf og almenna þjónustu við eldri borgara. Ég vinn með eldra fólki alla daga. Þau ræða mikið um að þau viti ekki hvaða þjónustu þeim býðst og hvert þau geta leitað eftir upplýsingum. Þetta er eitthvað sem við getum lagað strax. Flokkur fólksins hafði frumkvæði að því á Alþingi að vekja athygli á ofbeldi gegn eldra fólki. Það er nauðsynlegt að rjúfa þá þögn sem ríkt hefur um þessi mál og auðvelda eldra fólki sem verður fyrir ofbeldi að hálfu maka, aðstandenda eða annarra að leita sér aðstoðar. Enginn á að lifa í ótta á efri árum, hvorki inni á heimili sínu né innan þjónustukerfisins. Flokkur fólksins telur einnig mikilvægt að heilbrigðisþjónusta inni á hjúkrunarheimilum og í dagdvöl verði efld. Það er óboðlegt að aldrað fólk þurfi að bíða mánuðum saman eftir heyrnartækjum, augnskoðun eða tannviðgerðum vegna kostnaðar eða skorts á þjónustu. Húsnæðismál eldri borgara kalla á nýja hugsun. Óhagnaðardrifin leigufélög þurfa aukinn stuðning og aðgang að lóðum svo hægt sé að byggja öruggt og hagkvæmt húsnæði fyrir eldri borgara með mismunandi þarfir. Flokkur fólksins vill að byggðir verði lífsgæðakjarnar þar sem fólk getur minnkað við sig og haldið sjálfstæði sínu. Fólk á að geta elst með reisn í húsnæði sem hentar aðstæðum þess. Flokkur fólksins kom fyrstur fram með tillögu um 50 þúsund króna frístundastyrk til eldra fólks. Við beitum okkur fyrir auknum virkniúrræðum og að eldri borgarar fái frítt í sund. Við ætlum einnig að tryggja að gjaldfrjálst sé í bílastæði fyrir alla ellilífeyrisþega – ekkert app og ekkert flækjustig. Hreyfing, félagsstarf og virk þátttaka bætir bæði líkamlega og andlega heilsu og dregur úr einangrun. Það er fjárfesting í lýðheilsu sem skilar sér margfalt til samfélagsins. Flokkur fólksins ætlar að endurvekja öldrunarráðið í borginni þannig að að rödd eldri borgara heyrist í borginni. Mikilvægt er að raunverulegt samráð sé haft við samtök eldri borgara. Ef Flokkur fólksins fær ekki brautargengi í borgarstjórn veikist rödd þeirra sem hafa hvað mest þurft á réttlæti og sanngirni að halda. Þá hverfur sterk rödd fyrir fyrir málefnum eldri borgara, öryrkja og efnaminna fólks úr borgarkerfinu. Það er ekki nóg að tala fyrir hagsmunum eldri borgara í hátíðarræðum. Flokkur fólksins hefur sýnt á Alþingi að hann lætur verkin tala þegar kemur að kjörum eldra fólks og mætt þar mikilli andstöðu frá Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og jafnvel Framsókn. Stöndum saman. Þinn stuðningur skiptir öllu máli. Setjum X við F, hinn 16. maí. Höfundur skipar 3. sæti Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Flokkur fólksins Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar