Oddvitaáskorunin: Strumpur svo lýsandi gælunafn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. maí 2026 21:01 Í hjólakeppninni RIFT Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Hjalti Þór Vignisson er oddviti Framsóknar og stuðningsmanna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Það má segja að ég sé Hornfirðingur í húð og hár. Er fæddur á Höfn í janúar 1978 og ólst upp í sveitunum við Hornafjörð. Ég er kvæntur Guðrúnu Ingólfsdóttur sem ég á fjögur börn með, á aldrinum 12-23 ára. Ég lauk MA prófi í stjórnmálafræði um aldamótin. Undafarna áratugi hef ég öðlast víðtæka starfsreynslu, t.d. gegnt stöðu bæjarstjóra Hornafjarðar og síðustu fimm árin hef ég gegnt stöðu framkvæmdastjóra Stormar ehf, sem selur og flytur út bolfiskafurðir. Stærsta verkefnið undanfarin ár var stofnun og rekstur dótturfélags í Frakklandi. Í gegnum tíðina hef ég gegnt ýmis konar félags- og nefndarstörfum. Til dæmis setið í aðalstjórn Sindra og í stjórn og svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs. Framboðslisti Framsóknar og stuðningsmanna þeirra samanstendur af hæfileikaríku fólki með ólíkan bakgrunn. Við viljum vinna að breiðri sátt um stórframkvæmdir á vegum sveitarfélagsins. Við viljum bæði hlúa að vexti atvinnulífs og samfélags í breiðum skilningi. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Á höfuðborgarsvæðinu. Ég bjó í Reykjavík í nokkur ár þegar ég var í framhaldsskóla og háskóla. Pabbi býr í Reykjavík og ég var hjá honum nokkur sumur þegar ég var unglingur þannig að ég þekki borgina vel. Föðurfjölskyldan mín er úr Reykjavík. Amma og afi áttu hús í Heiðargerði þaðan sem ég á margar góðar minningar.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Þetta er erfið spurning því við Íslendingar eru svo ríkir af bókmenntum okkar. En Íslandsklukkan stendur efst. Hún er stórkostleg, persónurnar litríkar og þráður sögunnar vel fléttaður.“ Hjalti og Guðrún. Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Hundrað milóna niðurskurður í sveitarfélagi eins og okkar væri ekki einfalt verkefni. Við þyrftum að líta í ýmsar áttir en ég myndi eftir fremsta megni reyna að verja leik- og grunnskóla ásamt velferðarþjónstu.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Þessa spurning skil ég þannig að þetta sé einskiptist aðgerð og svarið litast af því. Hluti af þessum peningum myndu duga til að gera skólalóð við grunnskólann mun betri en nú er. Það er löngu kominn tími til að bæta þar úr. Ég myndi vilja nota hluta af þessu í að laga gangstéttar, fegra ásýnd bæjarins og setja í viðhald félagsheimila.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Í jöklanna skjóli“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Alltaf betra að hringja. Skilaboð geta misskilist.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Okkur hefur nú gengið mjög vel að skapa samstöðu um hlutina og það ríkir mikil eindrægni innan okkar raða.“ Hjalti Þór Vignisson er oddviti Framsóknar og stuðningsmanna Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Hafrannsóknunum, þetta er svo mikilvægt fyrir land og þjóð og það skortir frekari rannsóknir á lífríki hafsins. Held að þetta sé líka mjög áhugaverður starfsvettvangur.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Við þurfum að taka afstöðu til uppbyggingar á íþróttahúsi. Valkostagreining er ekki lokið og það gætu skapast umræður um hvar húsið ætti að standa. Spurningin er samt ekki hvort það muni rísa, bara hvar það muni standa. Húsið á eftir að standa í áratugi, okkur Hornfirðingum til sóma.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Til að svara spurningu númer 5 – til að velja titil á ævisöguna mína.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég er opin fyrir samstarfi við öll framboðin, útiloka engan. Oddvitarnir og aðrir á listum hinna framboðanna er allt úrvals einstaklingar.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Mistökin verða þegar maður undirbýr sig ekki nægjanleg vel, þá er alltaf hætta á að framkvæmdin verði slöpp. Mikilvægt er að vera heiðarlegur við aðra og reyna að hafa réttu ákvarðanirnar stærri og mikilvægari en þær röngu.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Við búum í góðu samfélagi. Hér er gott mannlíf, þjónusta góð miðað við stærð samfélagsins og frábært aðgengi að útivistarperlum.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Egg, annað hvort soðin eða spæld.“ Hjaldi heldur ræðu þegar hann var bæjarstjóri á árum áður. Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Mér finnst ekki hafa gengið nægjanlega vel að koma verklegum framkvæmdum á rekspöl. Það er kominn mikil skuld í ýmsum innviðum, t.d. í íþróttamálum, skólamálum, gatna- og gangstéttum, viðhaldi félagsheimila til að nefna dæmi.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Byggja nýtt íþróttahús, leggja gervigras á Sindravelli, endurbæta skólalóð Grunnskóla Hornafjarðar, reisa nemendagarðar fyrir Framhaldsskólann, laga aðstöðu lengdrar viðveru svo fátt sé nefnt.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Ég hlusta mikið á tónlist. Erfitt að velja á milli góðra tónlistarmanna en ef ég þyrfti að velja eitt væri það sennilega Ný batterí með Sigurrós.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Fyrst og fremst hægagangur í verklegum framkvæmdum. Það þarf að bæta ásýnd bæjarins og hafnarinnar. Álögur hafa ekki lækkað nægjanlega mikið og við erum að dragast aftur úr í samkeppni við önnur héruð þess vegna.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Strumpur – því það lýsir mér bara svo fjandi vel.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Lækka fasteignagjöld, byggja íþróttahús, setja gervigras á Sindravelli, aukið viðhald á félagsheimilum og svo margt margt fleira.“
Oddvitaáskorunin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarfélagið Hornafjörður Framsóknarflokkurinn Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira