Belonging Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar 13. maí 2026 07:52 (íslenska fyrir neðan) Most, if not all of us, want to belong to the community we live in. Regardless of our age, background, social class, origin, or gender. It is a universal human need to connect with other people. A lack of connection causes social isolation, loneliness, and sadness.¹ Much research has been conducted on this emotional human need for belonging within psychology, social, public health and educational sciences.² Governments and local authorities have the political capacity to create fertile ground for thriving communities where diversity is a societal strength. At the same time, these same authorities unfortunately also have the capacity to create barriers, exclusions, and restrictions on who among us belongs and who does not, as sociologist Nira Yuval-Davis has been diligent in pointing out.³ Some political parties will stop at nothing to gain votes and actively work towards excluding certain groups in their discourse and policies, as has been noticeable during this campaign among certain parties. It is a political choice to exclude groups from society, cause division, stoke prejudice, and make people suspicious in the eyes of the general Icelandic public. Governments around the world have moved away from the view that it is entirely the responsibility of newcomers to adapt to the prevailing cultural currents of their new society; collaboration between newer and older residents is far more likely to succeed in creating a supportive and good community.⁴ One of the greatest barriers facing people of foreign origin in Icelandic society is prejudice and discrimination. People do not get suitable employment or even any opportunity in the labour market despite repeated attempts. Being a receptive society is important and makes us a stronger and more interesting community, as there is great human capital to be found in a diverse group of people. Learning Icelandic is helpful and important to many people of foreign origin, it should be free and invested in as much as possible, but at the same time, all emphasis must not be placed solely on teaching the Icelandic language. People must have the time and space to learn the language. Icelandic society also needs to be an attractive and receptive society in order for people to be motivated to learn the Icelandic language. A society that has the interest and will to warmly welcome people of foreign origin and tries to learn something new about their culture, enriches its own life and culture in the process. Iceland has been a multicultural society for decades. In recent years, there has been a backlash for minority groups in Iceland. Vinstrið in Hafnarfjörður wants to ensure that bridges are built through increased participatory democracy, powerful collaboration with people of foreign origin, and that their voices are heard and have influence. Let ‘s build bridges instead of obstacles. The author is an anthropologist and is eighth on the list for Vinstrið in the municipal elections in Hafnarfjörður. Að tilheyra Flest, ef ekki öll, viljum við tilheyra samfélaginu sem við búum í. Hver sem aldur okkar er, bakgrunnur, stéttarstaða, uppruni eða kyn. Það er sammannleg þörf okkar mannfólksins að tengjast öðru fólki og skortur á tengingum veldur félagslegri einangrun, einmanaleika og depurð.[1] Margar rannsóknir hafa verið gerðar á þeirri tilfinningalegu þörf mannsins til að tilheyra innan sálfræðinnar, félags-, lýðheilsu og menntavísinda[2]. Ríkisstjórnir og sveitastjórnir hafa pólitíska getu til þess að skapa heilbrigðan jarðveg fyrir gróskumikil samfélög þar sem fjölbreytileiki er styrkleiki samfélagsins. Að sama skapi hafa þessi sömu yfirvöld því miður einnig getuna til þess að búa til hindranir, útilokanir og takmarkanir á því hver okkar tilheyra og hver ekki eins og félagsfræðingurinn Nira Yuval-Davis hefur verið dugleg að benda á[3]. Sumir stjórnmálaflokkar svífast einskins til þess að afla sér atkvæða og vinna gagngert að því að útiloka ákveðna hópa í orðræðu sinni og stefnumálum eins og áberandi hefur verið í þessari kosningabaráttu hjá ákveðnum flokkum. Það er pólitísk ákvörðun að útiloka hópa frá samfélaginu, valda sundrungu, ýta undir fordóma og gera fólk torkennilegt í augum hins almenna íslenska íbúa. Stjórnvöld víðsvegar um heiminn hafa fært sig frá því viðhorfi að það sé alfarið á ábyrgð aðkomufólks að aðlagast ríkjandi menningarstraumum hins nýja samfélags, samstarf nýrri og eldri íbúa er mun vænlegra til árangurs til þess að skapa stuðningsríkt og gott samfélag.[4] Ein stærsta hindrun fólks af erlendum uppruna í íslensku samfélagi eru fordómar og mismunun. Fólk fær ekki starf við hæfi eða jafnvel ekkert tækifæri til þess að spreyta sig á vinnumarkaði þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Að vera móttækilegt samfélag er mikilvægt og gerir okkur að sterkara og skemmtilegra samfélagi enda mikill mannauður fólgin í fjölbreyttum hópi fólks. Íslenskukennsla til fólks af erlendum uppruna er mikilvæg og ætti að vera frí og hana ætti að efla eins mikið og mögulegt er en að sama skapi má heldur ekki leggja alla áherslu á að kenna íslenska tungu. Fólk verður að hafa tíma og rými til þess að læra tungumálið. Íslenskt samfélag þarf líka að vera aðlaðandi og móttækilegt samfélag til þess að fólk hafi áhuga á að læra íslenskt mál. Samfélag sem hefur áhuga og vilja til að taka vel á móti fólki af erlendum uppruna og leggur sig fram við að læra um eitthvað nýtt um menningu þeirra auðgar líf sitt og menningu á sama tíma. Ísland hefur í áratugi verið fjölmenningarsamfélag. Á síðustu árum er hægt að segja að bakslag hafi orðið í málefnum ýmissa hópa á Íslandi. Við í Vinstrinu í Hafnarfirði viljum tryggja að brýr séu byggðar með auknu íbúalýðræði, öflugu samstarfi með fólki af erlendum uppruna og að þeirra raddir fái að heyrast og hafa áhrif. Byggjum brýr en ekki hindranir. Höfundur er mannfræðingur og í áttunda sæti á lista Vinstrisins í Hafnarfirði. [1] Allen, K.A., Kern, M. L., Rozek, C. S., McInerney, D., og Slavich, G. M. (2021). Belonging: A review of conceptual issues, an integrative framework, and directions for future research. Australian Journal of Psychology, 73(1), 87–102. [2] Baumeister, R. F., og Leary, M. R. (1995). The need to belong: Desire for interpersonal attachments as a fundamental human motivation. Psychological Bulletin, 117(3), 497–529. [3] Sjá t.d. Yuval-Davis, N., Wemyss, G., & Cassidy, K. (2019). Bordering. Polity Press og Yuval-Davis, N. (2011). The politics of belonging: Intersectional contestations. SAGE. [4] MacLeod, C. (2021). The changing concepts around immigrant integration. Migration Policy Institute. https://www.migrationpolicy.org/article/changing-concepts-immigrant-integration Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Skoðun Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Sjá meira
(
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun