Viðskipti innlent

Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ármann Þorvaldsson forstjóri segir bankann halda ótrauðan áfram á sinni vegferð.
Ármann Þorvaldsson forstjóri segir bankann halda ótrauðan áfram á sinni vegferð. Vísir/Lýður Valberg

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir fyrsta ársfjórðung ársins 2026 hafa verið mjög góðan í rekstri bankans, vaxtatekjur hafi haldið áfram að aukast, kostnaðaraðhald að skila sér og áfram sé góður vöxtur í lykilþáttum starfseminnar.

„Skömmu eftir lok fjórðungsins var tilkynnt um að hætt hefði verið við samrunaviðræður Kviku og Arion, í kjölfar niðurstaðna forviðræðna við Samkeppniseftirlitið. Mikil og vönduð vinna var lögð í þessar viðræður enda töldu samrunaaðilar allar vísbendingar til þess að mikil verðmæti hefðu skapast fyrir hluthafa og viðskiptavini ef af samrunanum hefði orðið,“ segir Ármann í tilkynningu um uppgjör bankans á fyrsta ársfjórðungi.

Þar kemur meðal annars fram að innlán frá viðskiptavinum námu 190 ma.kr., samanborið við 173 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 9,8 prósent á ársfjórðungnum. Þá voru útlán til viðskiptavina 217 ma.kr., samanborið við 208 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 4,3 prósent á ársfjórðungnum. Heildareignir námu 360 ma.kr., samanborið við 343 ma.kr. í lok árs 2025. Eigið fé samstæðunnar var 67 ma.kr., samanborið við 69 ma.kr. í lok árs 2025.

„Bankinn heldur ótrauður áfram á þeirri vegferð sem mörkuð var fyrir um tveimur árum síðan, sem byggist á umtalsverðum vexti með það að markmiði að skapa verðmæti fyrir hluthafa og aðra hagaðila, en afar vel hefur gengið að ná þeim markmiðum sem við kynntum á Fjárfestadegi Kviku 2024,“ segir Ármann í tilkynningunni.

Mikilvægt skref

Hann segir þetta mikilvægt næsta skref í þeirri vegferð að auka skilvirkni fjármagnsskipanar bankans. Í apríl hafi þau gefið út í fyrsta sinn svokölluð AT1 skuldabréf, sem teljast til viðbótar eiginfjárþætti 1, fyrir fjárhæð sem nemur um 4 milljörðum króna.

„Útgáfan fór fram í Svíþjóð og fékk afar góðar viðtökur þar sem kjörin, 4,25% yfir millibankavöxtum, voru mun hagstæðari en gert hafði verið ráð fyrir. Andvirði þessarar útgáfu, ásamt mjög sterkri eiginfjárstöðu fyrir hana, gerir stjórn bankans kleift að leggja til rúmlega 10 milljarða arðgreiðslu við hluthafafund sem boðaður hefur verið í byrjun júní. Þess utan gefur sterk eiginfjárstaða okkur mögulegt að stefna að allt að 4 milljarða endurkaupum á árinu, án þess að dregið sé úr áætlunum um lánavöxt né markmiðum um mikinn fjárhagslegan styrkleika,“ segir Ármann.

Hann segir að ef þessi markmið gangi eftir muni Kvika hafa skilað rúmlega 40 milljörðum króna til hluthafa sinna á einungis tveimur árum, á sama tíma og mjög góður vöxtur hefur verið í starfsemi bankans.

Hluthafafundur í júní

„Þessi breyting á fjármagnsskipan bankans mun jafnframt að öðru óbreyttu hafa umtalsverð jákvæð áhrif á arðsemi eiginfjár til framtíðar. Þá verður haldið áfram að sækja fram byggt á þeim sterka grunni sem hefur verið lagður á undanförnum árum, með öflugan rekstur og skýra stefnu að leiðarljósi.“

Stjórn bankans hefur boðað til hluthafafundar þann 4. júní 2026 þar sem lögð er til sérstök arðgreiðsla að fjárhæð kr. 2,35 á hlut, eða rúmir 10 milljarðar króna. Á aðalfundi 18. mars kom fram að eiginfjárstaða félagsins yrði áfram mjög sterk og að stjórn myndi meta frekari útgreiðslur síðar á árinu. Í ljósi þess að samruni Kviku og Arion banka verður ekki að veruleika er nú til staðar aukið svigrúm til að skila fjármunum til hluthafa. Hægt er að horfa í streymi hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×