Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Lovísa Arnardóttir skrifar 13. maí 2026 10:45 Um 13 prósent launafólks var í fyrra með heildarlaun á bilinu 600 til 650 þúsund. Vísir/Vilhelm Regluleg laun voru að meðaltali 816 þúsund krónur á mánuði árið 2025 samkvæmt greiningu Hagstofunnar. Sé eingöngu horft til launafólks í fullu starfi voru regluleg laun að meðaltali 913 þúsund krónur og miðgildið 826 þúsund krónur. Um 64 prósent fullvinnandi launafólks er með regluleg laun undir meðaltali. Samkvæmt Hagstofunni skýrist það af dreifingu launa. Lægstu launin dreifast á mun minna bil en hæstu launin sem veldur því að hæstu launin hafa mun meiri áhrif á meðaltalið en lægstu launin. Heildarlaun fólks í fullu starfi voru að meðaltali 1.058 þúsund krónur árið 2025. Þá var helmingur karla í fullu starfi með heildarlaun yfir 1.007 þúsund krónum á mánuði en helmingur kvenna í fullu starfi var með heildarlaun yfir 902 þúsund krónum á mánuði. Það munar 105 þúsundum þar. Í tilkynningu Hagstofunnar kemur jafnframt fram að karlmenn í fullu starfi hafi að jafnaði verið með fleiri greiddar vinnustundir en konur í fullu starfi og voru greiddar stundir að baki heildarlaunum karla þannig að meðaltali 176,9 stundir á mánuði árið 2025 en greiddar stundir kvenna 169,9 stundir. Fleiri greiddar stundir að jafnaði hjá körlum skýrir að hluta til hærri heildarlaun þeirra. Að auki er íslenskur vinnumarkaður samkvæmt Hagstofunni mjög kynskiptur og störfuðu til dæmis um 17 prósent starfandi karla hjá hinu opinbera samanborið við 40 prósent starfandi kvenna árið 2025. Sé horft til einstakra starfa voru forstjórar og aðalframkvæmdastjórar fyrirtækja og stofnana að jafnaði með hæst heildarlaun eins og verið hefur síðustu ár eða um 2,5 milljónir króna að meðaltali á mánuði árið 2025. Dómarastörf, sérfræðistörf við lækningar, störf yfirmanna framleiðslu- og rekstrardeilda í þjónustufyrirtækjum, störf tengd ráðgjöf og sölu verðbréfa, störf æðstu embættismanna ríkis og sveitarstjórna, sérfræðistörf við flugumsjón og yfirmenn tölvudeilda eru dæmi um störf þar sem heildarlaun eru að meðaltali hærri en 1,7 milljónir króna á mánuði. Lægstu heildarlaunin voru hins vegar í skrifstofustörfum við bóka- og skjalavörslu, póstflokkun, kótun og þess háttar þar sem heildarlaun voru að jafnaði um 597 þúsund krónur á mánuði, í störfum tengdum barnagæslu þar sem þau voru um 641 þúsund krónur á mánuði og í störfum við handþvott og pressun þar sem þau voru um 647 þúsund krónur á mánuði. Í tilkynningu Hagstofunnar kemur einnig fram að meðaltal heildarlauna fullvinnandi eftir starfsstéttum árið 2025 hafi verið á bilinu 766 til 1.634 þúsund krónur á mánuði, lægst hjá ósérhæfðu starfsfólki en hæst hjá stjórnendum. Dreifing heildarlauna sé nokkuð mismunandi eftir starfsstéttum, sem geti skýrst af ólíkum störfum innan einstakra starfsstétta. Það á meðal annars við um stjórnendur en í þeim hópi er að finna bæði æðstu stjórnendur fyrirtækja og yfirmenn deilda. Þá kemur fram að launadreifing heildarlauna í fullu starfi sýni meðal annars að nærri 63 prósent fullvinnandi starfsfólks í þjónustu og umönnun er með lægri heildarlaun en sem nema 800 þúsund krónum á mánuði og um 13 prósent hafi verið með heildarlaun á bilinu 600 til 650 þúsund. Launadreifing heildarlauna skrifstofufólks er samkvæmt tilkynningunni mun einsleitari en innan annarra stétta þar sem um 65 prósent fullvinnandi voru með heildarlaun á bilinu 600 til 900 þúsund krónur á mánuði. Mun meiri dreifing heildarlauna var sjáanleg á meðal sérfræðinga, stjórnenda og iðnaðarfólks. Regluleg laun Regluleg laun eru greidd mánaðarlaun fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Í þessum launum eru hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslur sem tilheyra launaliðum sem eru gerðir upp á hverju útborgunartímabili hjá launagreiðanda. Dæmi um slíkar greiðslur geta verið föst yfirvinna, fastar álagsgreiðslur, bónusar í framleiðslu, sölubónusar, vaktaálag og eftirvinna. Regluleg laun hlutastarfsfólks eru umreiknuð í laun fyrir fullt starf.Við samanburð á reglulegum launum milli starfa eða starfsstétta er gott að hafa í huga að í þeim störfum þar sem fastlaunasamningar eru algengir eða föst yfirvinna er ekki sérstaklega haldið utan um yfirvinnugreiðslur í launakerfi og eru þær greiðslur því hluti af reglulegum launum. Heildarlaun Heildarlaun eru öll laun einstaklingsins, þ.e. regluleg heildarlaun auk ýmissa óreglulegra greiðslna, s.s. orlofs- og desemberuppbótar, eingreiðslna, ákvæðisgreiðslna og uppgjörs vegna uppmælinga. Við útreikninga er hvorki tekið tillit til hlunninda né akstursgreiðslna. Fengið af vef Hagstofunnar. Efnahagsmál Fjármál heimilisins Kjaramál Mest lesið Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Sjá meira
Regluleg laun Regluleg laun eru greidd mánaðarlaun fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Í þessum launum eru hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslur sem tilheyra launaliðum sem eru gerðir upp á hverju útborgunartímabili hjá launagreiðanda. Dæmi um slíkar greiðslur geta verið föst yfirvinna, fastar álagsgreiðslur, bónusar í framleiðslu, sölubónusar, vaktaálag og eftirvinna. Regluleg laun hlutastarfsfólks eru umreiknuð í laun fyrir fullt starf.Við samanburð á reglulegum launum milli starfa eða starfsstétta er gott að hafa í huga að í þeim störfum þar sem fastlaunasamningar eru algengir eða föst yfirvinna er ekki sérstaklega haldið utan um yfirvinnugreiðslur í launakerfi og eru þær greiðslur því hluti af reglulegum launum. Heildarlaun Heildarlaun eru öll laun einstaklingsins, þ.e. regluleg heildarlaun auk ýmissa óreglulegra greiðslna, s.s. orlofs- og desemberuppbótar, eingreiðslna, ákvæðisgreiðslna og uppgjörs vegna uppmælinga. Við útreikninga er hvorki tekið tillit til hlunninda né akstursgreiðslna. Fengið af vef Hagstofunnar.
Efnahagsmál Fjármál heimilisins Kjaramál Mest lesið Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Sjá meira